Vísbending - 22.01.2021, Blaðsíða 1
Vikurit um viðskipti, efnahagsmál og nýsköpun ISSN 1021-8483
V Í S B E N D I N G • 3 . T B L . 2 0 2 1 1
Gylfi Zoega og Ásgeir
Brynjar Torfason skrifa
um sölu ríkisins á hlut í
Íslandsbanka
Hvað ber að varast í
einkavæðingu banka?
Lítil óvissa þyrfti
að ríkja um virði
vandræðaeigna
Kreppur leiða oft
til vinstrisveiflu í
stjórnmálum
22. janúar 2021
3. tölublað
39. árgangur
Hugleiðingar um einka væðingu
viðskiptabanka
Fyrirhuguð einkavæðing Íslandsbanka
hefur vakið umræðu á síðustu dögum
eins og við var að búast. Tímasetning
bankasölunnar hefur verið gagnrýnd. Á það
hefur verið bent á að mörg fyrirtæki sem
eru óstarfhæf vegna COVID kreppunnar
séu með lán í „frystingu“ í Íslandsbanka
og sum séu kannski ekki lífvænleg. Þess
vegna sé nokkur óvissa um verðmæti bank-
ans eins og mál standa. Nýjir eigendur
bankans muni einnig fá vald til þess að
ákveða hvaða fyrirtæki fái að lifa og hver
ekki, færa til eignarhald á fyrirtækjum og
móta samkeppnisaðstæður. Þess vegna sé
hugsanlegt að þeir sem vilja eignast bank-
ann vilji einnig hafa með uppgjör skulda
þessara fyrirtækja að gera. Þótt ákvörðun um
einkavæðingu hafi verið tekin við myndun
núverandi ríkisstjórnar og því ekki ásetn-
ingur ríkisstjórnar að koma bankanum til
slíkra eigenda, þá breytir það því ekki að
sjónarmið sem þessi geta átt rétt á sér við
núverandi aðstæður.
En einkavæðing kerfislega mikilvægs við-
skiptabanka væri viðkvæm jafnvel við bestu
aðstæður. Hverjar er ástæður þessarar við-
kvæmni? Hér verður fjallað um nokkrar slíkar.
Bankar eru ekki eins
og önnur fyrirtæki
Bankar, ólíkt öðrum fyrirtækjum, búa til
peninga. Þegar banki A veitir viðskiptavini
B lán þá verður reikningshaldsleg færsla
sem bókfærir kröfu A á B (eign A) og jafn-
framt er upphæðin sett inn á reikning B hjá
A (skuld A). Með einfaldri rafrænni færslu
verða peningar til. Eigendur viðskiptabanka
geta þá notið þess að geta búið til peninga
ef þeir komast upp með að lána sjálfum sér
eða einhverju eignarhaldsfélagi sem þeir ráða
yfir. En bankarnir auka einnig útlán með
peningamynduninni og hafa þannig áhrif á
verð fasteigna og hlutabréfa sem einnig getur
hagnast eigendum á óbeinan hátt.
Bankar eru hluti af greiðslukerfi hagkerfis-
ins. Í gegnum þá fara allar greiðslur og tekjur
fyrirtækja, einstaklinga og hins opinbera. Og
fyrir þessa þjónustu taka bankarnir gjöld sem
nema tugum milljarða á hverju ári. Greiðslu-
kerfið hér á landi er dýrt í samanburði við
greiðslukerfi nágrannalandanna. Hér vantar
að bankar gefi út ódýrt „innanlandskort“
til nota í viðskiptum innan lands eins og
þekkist á hinum Norðurlöndunum. Þess í
stað fara allar kortagreiðslur í gegnum erlend
kortafyrirtæki með ærnum kostnaði fyrir
einstaklinga og samfélagið allt. Þessi dýra
þjónusta er merki fákeppni.
Vegna þess að bankar geyma innistæður
okkar og vegna þess að þeir eru hluti af
greiðslukerfinu þá má ganga að því sem vísu
að ríkissjóður hlaupi undir bagga ef stór banki
verður uppiskroppa með eigið fé; virði eigna
lækkar vegna útlánataps eða misheppnaðra
fjárfestinga. Eigendur og stjórnendur banka
gera sér grein fyrir þessu og einnig þeir sem
lána þeim peninga.
Þessi kokteill verður enn eldfimari
þegar við bætum við takmarkaðri ábyrgð
eigenda viðskiptabanka. Viðskiptabankar
eru reknir í hlutafélagaformi svo að ábyrgð
eigenda takmarkast við verðmæti þess hlutar
sem þeir eiga. Af þessu leiðir að eigendur
hagnast þegar vel gengur en tjón getur lent
á lánardrottnum og skattgreiðendum. Þannig
urðu erlendir bankar fyrir miklu tjóni af falli
íslensku bankanna árið 2008.
Hagfræðingarnir Charles Goodhart og
Rosa Lastra (2020) hafa nýlega haldið því fram
að takmörkuð ábyrgð stjórnenda og ráðandi
eigenda sé stærsta orsök þess að bankar taka of
mikla áhættu í rekstri sínum. Þegar vel gengur
þá hagnast eigendurnir en þegar illa fer þá
kemur ríkissjóður til hjálpar. Svipað er uppi á
teningnum með fjárfestingasjóðum sem hafa
ekki baktryggingu ríkissjóðs. Í þessu tilviki eru
það lánardrottnar, þ.e.a.s. einstakir fjárfestar,
sem bíða tjón þegar fjárfesting mistekst en
eigendur sjóða hagnast þegar vel gengur.
Ríkisbankar og
einkareknir bankar
Saga bankastarfsemi á Íslandi kennir okkur
að ríkisbankar geta ekki síður orðið gjald-
þrota en einkareknir bankar. En það gerist
á annan hátt. Það er ekki vonin um hagnað
ef fjárfesting tekst vel sem hvetur stjórn-
endur til áhættutöku heldur „spilling“ í
þeim skilningi að peningar eru búnir til fyrir
fyrirtæki og verkefni á öðrum grundvelli en
arðsemi sem leiðir síðan til útlánataps. Þessi
spilling getur tekið ýmis form. Einstak-
lingur A er í stjórn ríkisbanka og einnig í
stjórn fyrirtækis sem tekur óhóflega mikið
af lánum í bankanum. Að lokum kemur í
ljós að fyrirtæki getur ekki greitt lánið til
baka og bankinn þarf ríkisstyrk til áfram-
haldandi reksturs. Einnig þekktist að tveir
stærstu stjórnmálaflokkarnir skipuðu hvor
sinn bankastjórann í ríkisbanka sem sáu svo
um að veita lán til fyrirtækja sem tengdust
stjórnmálaflokkunum. Á þennan hátt lenti
Landsbankinn í erfiðleikum löngu áður en
hann var einkavæddur.
Hins vegar hefur rekstur hinna tveggja
ríkisreknu banka gengið vel síðustu ár og
ekki hafa komið neinar ábendingar um að
viðskiptavinum sé mismunað. Dregið hefur
verið úr kostnaði.
En einkavæðing viðskiptabanka felur
í sér að hvati til áhættutöku margfaldast
vegna þess að í stað greiðvikni og lax-
veiðiferða ríkisbankastjórans kemur mikill
Gylfi Zoega
hagfræðingur
framh. á bls. 4
Einkavæðing
kerfislega mikil-
vægs viðskipta-
banka væri
viðkvæm jafnvel við
bestu aðstæður