Skessuhorn - 23.02.2022, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2022 7
Skagafiskur ehf. • Kirkjubraut 40, Akranesi • Sími: 518 1900 • skagafiskur@skagafiskur.is • facebook.com/skagafiskur
Tilboðsvika 28. Feb – 3.mars
Vertu velkomin í Skagafisk
við tökum vel á móti þér
Mánudagur: Bolludagur 15% afsláttur af fiskibollum
Þriðjudagur: Sprengidagur Það þarf ekki alltaf að vera
saltkjöt og baunir, hvað með að
breyta aðeins til og fá sér saltfisk.
15% afsláttur af saltfisk,
nætursaltaðri ýsu og þorski
Miðvikudagur: Öskudagur 15% afsláttur af plokkfiski
í grímubúningi
Fimmtudagur: Afmæli Skagafiskur heldur upp á 2 ára
afmælið sitt.
15% afláttur af öllu í fiskborði.
Fyrirtækið B. Vigfússon sér um
snjómokstur í Snæfellsbæ og eru
starfsmenn þess vel útbúnir til
þeirra verka. „Við erum með tvo
traktora með fjölblásara að aftan og
svo snjótennur að framan og eina
traktorsgröfu að auki,“ segir Vig
fús Þráinn Bjarnason snjóruðn
ingsmaður í samtali við Skessu
horn. Hann segir jafnframt að þeir
sjái nú tímabundið um snjóruðning
á Rifi og Hellissandi vegna veik
inda verktakans sem venjulega sér
um snjóruðning þar. „Vegna þess
bættum við traktorsgröfunni við
til þess að hafa undan, en við höf
um unnið nánast alla daga í febrúar
og það sem er af mánuðinum höf
um við rutt talsvert meiru af snjó en
allan síðasta vetur, en þá var reynd
ar óvenjulega snjólétt á Snæfells
nesi. Það koma dagar þar sem við
vinnum langt fram á kvöld og erum
svo komnir á fætur klukkan fimm á
morgnana,“ segir Vigfús að lokum.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri í
Snæfellsbæ segir að það hafist ekki
undan að ryðja götur og hreinsa
burtu snjó. Bæjarstjórinn seg
ir að ekki hafi snjóað svona mik
ið í tíu ár. „Það kemur mér á óvart
hversu mikið hefur snjóað á Hellis
sandi. Síðastliðinn laugardag var
óvenju mikill snjór þar og mikill
skafrenningur. Það voru snjóruðn
ingstæki á ferðinni allan daginn
fram á kvöldmat við vinnu á Hellis
sandi. Kostnaður við snjómokstur
er nú orðinn margfalt meiri en við
bjuggumst við, en þegar öll tæki
eru notuð er kostnaður bæjarins
þetta 600 til 800 þúsund krónur á
dag,“ segir Kristinn. af
Mesti snjóruðningur í áratug í Snæfellsbæ
Vigfús við vinnu sína á bryggjunni í Ólafsvík. Vigfús Þráinn Bjarnason fyrir framan traktorinn, en verð á svona vél með öllum
búnaði er 24 milljónir króna. Nýverið var keyptur annar snjóblásari til þess að
hafa undan í mokstri.
Öll tiltæk tæki eru notuð þessa dagana. Hér er Hjörleifur Guðmundsson að
aðstoða frænku sína við að moka úr innkeyrslunni.
Vegagerðin sér um snjómokstur í
gegnum aðalgöturnar í Ólafsvík, það
er að segja Ólafsbraut og Ennisbraut. Snjónum blásið. Hreinsað af bryggjunni.