Skessuhorn - 23.02.2022, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2022 17
Búið er að gefa út ársskýrslu Fab
Lab smiðju Vesturlands í Breið ný
sköpunarsetri fyrir árið 2021. Alls
heimsóttu 1.115 manns smiðjuna á
því starfsári. „Markmið með starf
semi Fab Lab smiðjanna er að auka
þekkingu skólafólks og almennings
á persónumiðaðri framleiðslu og
stafrænum framleiðsluaðferðum,“
segir í skýrslunni. „Verkefninu
er ætlað að auka áhuga á verk og
tækninámi í grunn og framhalds
skólum, auka tæknilæsi og tækni
vitund og efla hæfi til nýsköpunar
í námi og atvinulífi.“
Fjölbrautaskóli Vesturlands á
Akranesi er virkur þátttakandi í
Fab Lab smiðjunni og hefur tengt
hana inn á námsbrautir við skólann.
Alls voru fimm skráðir nemend
ur við skólann sem hafa sótt smiðj
una reglulega. 37 einstaklingar frá
Endurhæfingarhúsinu Hver og
Starfsendurhæfingu Vesturlands
notuðu smiðjuna reglulega og 14
einstaklingar frá Arttré og Fjöliðj
unni á Akranesi notuðu smiðjuna
reglulega. „Framundan er vinna við
að fullklára uppsetningu smiðjunn
ar, sem og kaup á tækjum og tólum
til að auka á möguleika smiðjunnar
í kennslu og stafrænni nýsköpun,“
segir í ársskýrslunni. arg
Góð aðsókn í Fab Lab
smiðju Vesturlands
Í hlaðvarpsþáttunum Lifa og njóta
spjallar Skagakonan Hildur Mar
ía Sævarsdóttir við fólk úr öllum
kimum samfélagsins. Fyrsti þáttur
inn kom út síðastliðið sumar og
óhætt er að segja að Hildur Mar
ía hafi sett markið hátt strax í upp
hafi en þar ræddi hún við tónlistar
konuna Grétu Salóme. Þær ræddu
saman um tónlistina og hvernig
það er að vera opinber persóna á
Íslandi. „Það kom mér mjög á óvart
hvað hún var fljót að samþykkja.
Ég sendi henni bara skilaboð og
spurði hvort hún vildi koma í spjall
til mín og fékk strax já og tveimur
dögum seinna vorum við að taka
upp,“ segir Hildur María í samtali
við Skessuhorn. Hildur María flutti
á Akranesi fimm ára gömul og hef
ur búið þar síðan, hún á tvö börn,
Sævar Þór sem er 14 ára og Helenu
Maríu 8 ára. Hildur María vinnur
hjá Akraneskaupstað í liðveislu og
líkar það starf mjög vel. „Allir dagar
eru ný ævintýri og það er svo mik
il gleði í þessu starfi. Mér finnst
það bara alveg æðislegt og skjól
stæðingar mínir eru frábærir,“ seg
ir hún ánægð.
Ekki alltaf
svona ófeimin
Hvernig byrjar maður með hlað
varpsþætti? „Ég held að það hafi
allir spurt mig að þessu. En ég hef
ekkert betra svar en að maður bara
byrjar,“ svarar hún og hlær. „Mig
hefur lengi langað að gera þetta og
ákvað bara að stökkva af stað af full
um krafti. Ég elska að hitta fólk og
spjalla og þykir gaman að ræða um
nánast hvað sem er,“ bætir hún við.
Hildur María tekur upp þættina í
Podcaststöðinni í Kópavogi þar sem
hún hefur aðgang að öllum búnaði
sem til þarf. Bróðir hennar, Pétur
Þór Sævarsson, sér um að klippa
og Jakob Ævarsson frændi henn
ar gerði stef fyrir þættina. Aðspurð
segir Hildur María það hafa geng
ið mjög vel að fá fólk til að koma í
þáttinn. „Ég sendi bara skilaboð og
annað hvort fæ ég já eða nei og svo
bara held ég áfram út frá því. Oft
ast er fólk mjög jákvætt en ef ekki
þá er það bara allt í lagi og ég spyr
bara næstu manneskju,“ segir hún
og heldur áfram: „Maður veit aldrei
hvort svarið maður fær nema að
spyrja og það er engin ástæða til að
vera feimin eða hrædd við það. Það
átti örugglega engin von á að heyra
mig segja þetta fyrir nokkrum árum
og ég hefði ekki sjálf trúað því. Ég
hef nefnilega ekki alltaf verið svona
ófeimin,“ segir hún og hlær. „En
það bara breyttist eitthvað og í dag
er þetta ekkert mál fyrir mig. Hvað
er það versta sem gerist?“
Lifa og njóta
Aðspurð segir Hildur María nafnið
á þáttunum, Lifa og njóta, vera vís
un í hennar mottó í lífinu. „Ég hef
alltaf sagt að ég vilji bara njóta lífs
ins, hafa gaman og já, bara lifa og
Ræðir við fólk úr öllum kimum samfélagsins
í hlaðvarpsþáttunum Lifa og njóta
njóta. Þetta var því eiginlega bara
fullkomið nafn á mína þætti,“ seg
ir hún. Þetta mottó endurspeglast
vel í þáttunum en hún leggur mikla
áherslu á að hafa notalegt andrúms
loft í stúdíóinu svo gestir hennar
geti notið þess að koma í spjall. „Ég
vil að fólki líði vel og geti spjallað
í rólegheitunum um hvað sem er,“
segir hún. „Ég hef verið ótrúlega
heppin með viðmælendur en þó ég
hafi oftast fengið til mín fólk sem er
þekkt í samfélaginu þá hef ég alltaf
fundið það strax að þetta er bara
venjulegt fólk og samtölin eru alltaf
áreynslulaus. Við spjöllum bara um
þeirra skoðanir og reynslu en ég
elska að hlusta á fólk segja mér frá
þeirra lífi og sjónarmiðum en all
ar skoðanir eru velkomnar í þáttinn
til mín. Ég er ekki að dæma fólk
og viðmælendur þurfa ekki að vera
sammála mér til að ég vilji tala við
þá. Við erum öll ólík og með ólíkar
skoðanir og það er bara í góðu lagi.
Ég vil heyra öll sjónarmið og allar
hliðar á málum,“ segir hún.
Hjalti Úrsus
stendur upp úr
Spurð hvaða viðtal sé eftirminni
legast er hún fljót að svara; „viðtalið
við Hjalta Úrsus.“ Hildur Mar
ía ræddi við Hjalta um son hans,
Árna Gils sem var ákærður fyrir til
raun til manndráps, en síðar sýkn
aður. „Þetta er mál sem hefur verið
í gangi í nokkur ár núna og er ekki
enn lokið. Það var ótrúlega magnað
að ræða þetta við Hjalta. Sonur hans
þurfti að þola ótrúlega hluti í gegn
um allt málið en samt er hvergi ver
ið að fjalla um þetta,“ segir Hild
ur María og bætir við að þó viðtöl
in sem hún hefur tekið séu ólík er
alltaf eitthvað í þeim sem stendur
upp úr. Hún hefur til dæmis tek
ið viðtal við Sigríði Klingenberg,
Ósk Tryggvadóttur sem framleiðir
efni fyrir OnlyFans, Hall Hallsson
rannsóknarlögreglumann og marga
fleiri. Þá tók hún viðtöl við stjórn
málafólk fyrir kosningarnar síðasta
haust og nú er hún byrjuð að taka
viðtöl við frambjóðendur í kom
andi sveitarstjórnar kosningum.
„Ég var að klára að taka viðtal við
Björgvin Pál Gústavs son sem er
að fara í framboð í Reykjavík og
er sá þáttur væntanlegur á streym
isveitur á allra næstu dögum,“ seg
ir hún og bætir við að væntanlega
muni hún tala við fleiri frambjóð
endur á næstu vikum.
Þegar blaðamaður Skessuhorns
ræddi við hana fyrir helgi var hún
að undirbúa stórt viðtal við Erlu
Bolladóttur þar sem hún ætlar að
taka þáttinn skrefinu lengra og taka
hann upp í mynd. „Ég er búin að
vera að kafa ofan í það mál í langan
tíma en þetta er alveg ótrúlegt mál
sem allir þurfa að kynna sér. Ég
hlakka mikið til að tala við hana,“
segir hún ánægð. „Ég mun setja
það í forgang að klippa þann þátt
svo hann komist í loftið sem fyrst.
Það eru margir búnir að segja mér
að þeir bíði spenntir eftir honum,“
segir hún og bætir við að margir
spennandi þættir séu væntanlegir á
næstu vikum.
Gott að fá stuðning
úr heimabyggð
Spurð hvort hún stefni á að gera
þetta að sinna aðal atvinnu seg
ist hún ekki endilega stefna á það.
„Mér þykir þetta ótrúlega gam
an og get vonandi haldið áfram
lengi. Ég er rosalega þakklát fyr
ir stuðninginn sem ég hef fengið
en Stefanía Sigurðardóttir á Moz
art hárgreiðslustofu á Akranesi hef
ur séð um mitt hár í mörg ár og
hún vildi styðja mig í þessu og er
núna styrktar aðili,“ segir Hildur
María og bætir við að hún sé mjög
þakklát fyrir slíkan stuðning úr sín
um heimabæ. „Mér þykir ótrúlega
gaman að fá að auglýsa fyrirtæki í
mínum heimabæ, enda mörg frábær
fyrirtæki þar,“ segir hún. Þá hef
ur hún einnig aðra góða styrktar
aðila sem gera henni kleift að halda
vinnunni áfram. En vilji fólk aug
lýsa í þáttunum Lifa og njóta er
hægt að hafa samband við Hildi
Maríu á Facebook eða í gegnum
Instagram þáttanna undir nafninu
podc.ast2021. arg/ Ljósm. aðsendar
Hildur María Sævarsdóttir stjórnandi
hlaðvarpsins Lifa og njóta.
Fyrsti gestur Hildar Maríu var Gréta Salóme.