Skessuhorn - 23.02.2022, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 202212
Einar Vignir Einarsson hefur ver
ið til sjós í hartnær fimmtíu ár. Sjó
mennskuna byrjaði hann á grá
sleppuveiðum með föður sínum
og frá 16 ára aldri hefur hann ver
ið nánast samfellt til sjós. Ferill
inn er fjölbreyttur. Hann hefur ver
ið á fiskiskipum, trillum og strand
ferðaskipum við Íslandsstrend
ur. Olíu og flutningaskipum hefur
hann stýrt um heimsins höf og svo
loks vöruflutningaskipi síðustu fimm
árin hjá Samskipum sem skipstjóri á
Helgafellinu.
Einar Vignir rifjar upp sjómanns
ferilinn með tíðindamanni Skessu
horns. Ferill hans hefur verið far
sæll en oft hefur litlu mátt muna
að illa færi. Honum tókst á ögur
stundu að bjarga bátsfélaga sínum
frá drukknun og lenti í lífsháska við
strendur Kamerún þegar sjóræn
ingjar ætluðu með brugðnar sveðjur
að ráðast um borð í skip hans þegar
hann var að ferja það frá Íslandi til
Kamerún.
Byrjaði tólf
ára á grásleppu
„Ég byrjaði aðeins tólf ára gamall
að róa á grásleppu með föður mín
um, en þegar ég var 16 ára gamall
hitti ég Davíð heitinn Guðlaugsson
skipstjóra á Krossvíkinni og suðaði
í honum að fara með honum einn
túr. Hann var tregur til vegna þess
hversu ungur ég var. En gaf eftir að
lokum. Þetta var jóla og áramóta
túr. Það var nú bara þessi eini túr en
eftir hann var ekki aftur snúið. Ég
réði mig fljótlega á Þórkötlu II frá
Grindavík árið 1976 þar sem faðir
minn var skipstjóri. Við vorum fyrst
á netum og svo á loðnu um sumar
ið. Ég hafði alltaf ætlað mér að fara
í rafvirkjun eins og Eyleifur bróðir
minn og verða knattspyrnumaður
eins og hann, því ég leit mjög upp til
hans. En ég hafði nú ekki alveg vaxt
arlagið til þess að verða knattspyrn
umaður,“ segir Einar og hlær. „En
eftir veru mína á sjónum í Grinda
vík var ekki aftur snúið. Ég ákvað að
leggja sjómennskuna fyrir mig og
stefndi á Stýrimannaskólann. En það
gekk ekki alveg þrautalaust fyrir sig.
Báturinn var oft bilaður og tekjurn
ar litlar. Ég sagði föður mínum að ég
vildi hætta á bátnum, en hann hélt
nú ekki, en gaf þó eftir að lokum
þegar ég sagði honum að ég ætlaði í
Stýrimannaskólann. Ég fór í skólann
árið 1977 og útskrifaðist sem stýri
maður 1981.“
Bjargaði bátsfélaga
á ögurstundu
Strax að útskrift lokinni réði Einar
sig sem lóðs hjá Akraneshöfn og síð
an á Akraborgina þá um sumarið. En
um haustið réði hann sig til Bjarna
Sveinssonar á Skírni AK og síðan
á Rauðsey AK þar sem hann var í
nokkur ár á þessu skipum. „Eftir það
fór ég í fast pláss á Akraborginni árið
1985 og var þar í 34 ár. En þá bað
Marteinn Einarsson mig að koma
með sér á Höfrung AK, en hann var
þar skipstjóri á móti Guðjóni heitn
um Bergþórssyni. Það var alveg frá
bært að vera með þeim til sjós og ég
lærði mjög mikið af þeim og einnig af
Bjarna Sveinssyni. Þessi reynsla átti
eftir að nýtast mér vel síðar á mín
um sjómannsferli. Eftir að ég hætti á
Höfrungi AK, þegar hann var seldur,
réði ég mig á Skeiðfaxa, skip Sem
entsverksmiðju ríkisins. Við sigld
um með sement til Reykjavíkur, Ísa
fjarðar og Akureyrar. Ég var á Skeið
faxa í um átta ár. Eftir að ég hætti á
Skeiðfaxa var ég með trillu fyrir Óla
Björn Ólafsson úr Grímsey. Með
mér á trillunni var Freysteinn Bark
arson frá Akranesi. Í einum róðrin
um lenti ég í mínu fyrsta áfalli ef svo
má segja, sem fór þó vel að lokum.
Við vorum að draga út af Hraunun
um í ágætis veðri og með fullan bát
af fiski og eina trossu aftur á. Síðan
hvessir allt í einu eins og hendi væri
veifað. Ég sagði við Freystein að
ég leggi ekki í að halda áfram með
trossuna. Við lensum þessu bara út,
en hann stendur í bugt og fer með
henni útbyrðis. Ég náði að henda
björgunarhring út til hans og hann
átti í miklum erfiðleikum í ísköld
um sjónum en náði að koma annarri
hendinni inn í björgunarhringinn
og ég náði að draga hann að bátn
um en þá var mikið af honum dreg
ið. Ég tók á öllu sem ég átti og ég
held að ég hafi fengið einhvern yf
irnáttúrlegan aukakraft og tókst að
lyfta honum upp með bátshliðinni.
Hann var níðþungur og fötin hans
gegnblaut og þung. Mér tókst að
ná öðrum fæti hans inn fyrir borð
stokkinn og klemmdi hann á milli
fóta mér og tókst svo að velta hon
um yfir borðstokkinn. Ég var lengi
að ná mér eftir þessi átök og auðvit
að í andlegu áfalli. Þetta var að mig
minnir 1998. Ég hefði betur þegið
áfallahjálp eftir þessa lífsreynslu, en
manni fannst slíkt vera alger óþarfi,
því miður. Um sumarið fór ég með
bátinn í heimahöfn til Grímseyjar og
var þar á skaki áður en ég hélt heim
aftur.
Eftir það réði ég mig sem skip
stjóra á Snarfara sem gerður var út
frá Hafnarfirði. Við fiskuðum ágæt
lega en erfiðlega gekk að fá mann
skap og var ansi misjafn sauður í
áhöfninni oft á tíðum.“
Í lífshættu á leið
til Kamerún
Einar réði sig næst á til Bolungarvík
ur á skipið Vin áður en hann réði
sig aftur á Skeiðfaxa, en óvænt
ar vendingar urðu þegar hann var á
bryggjurúnti í Hafnarfirði sumarið
1977 og þar var skip í höfninni, Flosi
ÍS, sem búið var að selja til Kamer
ún. „Ég kannaðist við vélstjórann og
hann ætlaði með skipinu til Kamer
ún og mál þróuðust þannig að ég
var beðinn um af fyrrum eigend
um skipsins hvort ég væri til í það
að sjá um að sigla bátnum suður til
Afríku ásamt vélstjóranum og fjór
um mönnum frá Kamerún sem voru
komnir til þess að sigla með skipinu
og læra á það á leiðinni. Ég var treg
ur til í fyrstu og nefndi ákveðna upp
hæð við seljendurna, sem mér fannst
nokkuð há. Þeir gengu að því og átti
ég að fá greiðslurnar í þremur hlut
um eftir áfangastöðum á leiðinni.
Fyrstu greiðslu þegar ég kæmi til
Bretlands og síðan á Kanaríeyjum
og loks í Kamerún. Það stóðst allt
saman hjá þeim. Sigling skipsins,
sem nú hélt til Kamerún og hafði
fengið nafnið Sandrina, tók okk
ur um 30 daga en hefði átt að taka
um 23 daga. En við þurftum að fara
í höfn í Dakar í Senegal til þess að
fá nýja spíssa í aðalvélina. Þegar við
lögðumst að kom lögreglan, eða
hvort það voru hermenn, sem rudd
ust um borð og stálu öllum mat og
áfengi sem var um borð. Við skildum
ekkert hvað var í gangi og ég talaði
við yfirmann þarna og sagði honum
hvað hefði gerst og gat um leið bent
á tvo úr hópi þeirra sem voru þarna
með yfirmanninum. Hann sem bet
ur fór tók mig alvarlega og gekk á
undirmenn sína og varð fátt um
svör og við fengum í kjölfarið allt
til baka. Við skildum ekki þessar að
farir að þeir leyfðu sér að gera þessa
hluta að fara um borð og taka ráns
hendi það sem fyrir augu bar. Við
vorum í Dakar í eina viku og héldum
svo áfram siglingu okkar lokaáfang
ann til Kamerún. En það er gaman
að segja frá því að þegar við vorum í
Senegal leigðum við okkur leiðsögu
mann og fórum á eyju þarna rétt fyr
ir utan þar sem þættirnir vinsælu
Roots, eða Rætur með Kunta Kinte,
voru teknir upp. Þættir þessir urðu
mjög vinsælir um heim allan og þar
á meðal á Íslandi. Var mjög gaman
að sjá það.
Við vorum ekki búnir að sigla
lengi áleiðis til Kamerún þegar einn
Kamerúnmaðurinn kemur hlaup
andi inn í káetuna til mín alveg
stjarfur af hræðslu og segir að það
séu sjóræningjar að leggjast upp að
skipinu. Við hentumst út og þá hafði
lítill bátur lagst að skipinu og þeir
sem voru um borð sveifluðu stórum
sveðjum og reyndu að komast um
borð. Ég tók til þess ráðs að sveifla
gálganum að þeim og þeir lögðu
ekki í að koma um borð. Þarna stóð
ég í þessu í nokkra klukkutíma þar til
að þeir gáfust upp og fóru. Við vor
um mjög skelkaðir eftir þessa lífs
reynslu og ég held að þeir hefðu bara
gengið frá okkur ef þeir hefðu kom
ist um borð.“
Neituðu að afhenda
vegabréfin
Eftir þessar hrakningar komust þeir
loks til Douala í Kamerún. „Það var
vel tekið á móti okkur og góð veisla
var haldin okkur til heiðurs. Þegar
Sandrina var þarna komin var hún
orðin stærsta skipið í fiskveiðiflota
Kamerún. Síðan gerðist það að sá
aðili sem virtist sjá um allt sem snéri
að komu skipsins óskaði eftir því að
fá vegabréfin okkar því hann þurfti
þau m.a. til þess að panta flug fyr
ir okkur aftur heim. Ég trúði honum
alveg, en svo líður og bíður og við
sjáum ekki vegabréfin okkar aftur og
ég fer að spyrjast fyrir um þau hjá
honum. Þá kemur það upp úr kafinu
Það var ekki aftur snúið eftir fyrstu veiðiferðina
Rætt við Einar Vigni Einarsson um viðburðaríkan sjómannsferil
Einar Vignir Einarsson.
Skipstjórinn í brúnni.
Bræðurnir Einar Vignir og Eymar Einarssynir í skötuveislu hjá þeim síðarnefnda.
Einar og Sigríður með barnabörnin. Lagt af stað í jólatúrinn.