Skessuhorn - 23.02.2022, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 202218
Fyrirtækjum og einstaklingum í
rekstri er þessa dagana boðið að
taka þátt í fyrirtækjakönnun lands
hlutanna. Síðast var hún í boði
haustið 2019. Með könnuninni hafa
landshlutasamtök, Byggðastofn
un og aðrir sem vinna að byggða
þróun reynt að gera sér grein fyr
ir stöðu atvinnulífsins vítt og breitt
um landið. Til skoðunar hafa ver
ið styrkleikar og veikleikar þess sem
og ógnanir og tækifæri. „Upplýs
ingar úr könnununum hafa ásamt
íbúakönnunum verið ein mikil
vægasta stoð þessara aðila til að
móta áherslur í starfi sem snýr að
stefnumótun landshlutanna til
framtíðar, áherslur í styrkveiting
um, ýmissi ráðgjöf, upplýsingagjöf
til stjórnvalda og jafnvel uppspretta
akademískra rannsókna á sviði at
vinnumála hérlendis,“ segir í til
kynningu frá Vífli Karlssyni hag
fræðingi hjá SSV.
Hingað til hefur þátttaka verið
góð á landsvísu, eða á bilinu 1600
2000 svör, en nú bregður svo við
að þátttakan er frekar dræm sem
er bagalegt fyrir verkefnið. „Að
standendur könnunarinnar vilja því
hvetja alla sem eru í rekstri á öllu
landinu, fyrirtæki og einstaklinga,
einyrkja og opinbera aðila að taka
þátt í að birta raunhæfa mynd af
stöðu atvinnulífsins til almennings
og stjórnvalda.“
Nálgast má hlekk á könnuna á
heimasíðu ssv.is mm
Á næstu dögum mun Kvenfélag
ið 19. júní í Borgarfirði hefja sölu
á happdrættismiðum í fjáröflunar
skyni og verður hægt að kaupa
miða til styrktar starfinu á facebook
síðu félagsins. Að sögn Rósu Mar
inósdóttur formanns varð kvenfé
lagið af sínum stærstu tekjulind
um síðustu ár vegna Covid19, eins
og svo mörg önnur fyrirtæki og fé
lög. ,,Okkar árlega jólabingó féll
niður í tvígang, árin 2020 og 2021.
Sömuleiðis féll Hvanneyrarhátíðin
niður en þar höfum við ávallt verið
með vinsæla kaffisölu. Því brugðum
við á það ráð núna að prófa að halda
happdrætti,“ segir Rósa. „Happ
drættismiðinn kemur til með að
kosta 2000 krónur en hægt verð
ur að kaupa tvo, þrjá eða tíu miða
saman á sérstöku afsláttarverði,“
segir Rósa.
Kvenfélagið 19. júní er góð
gerðar og líknarfélag og mun all
ur ágóði af happdrættinu renna
til Ungmennafélagsins Íslendings
sem stendur nú í kostnaðarsömum
endurbótum á laugarhúsi og um
hverfi Hreppslaugar. Að sögn Rósu
verður happdrættið afar glæsilegt
en dregið verður um 113 vinninga
föstudaginn 18. mars næstkomandi.
Gefnir verða út 1200 miðar, þannig
að vinningslíkur eru tæplega 10%
og því er til mikils að vinna. ,,Það
er ekki nokkur leið að halda svona
veglegt og glæsilegt happdrætti án
öflugra styrktaraðila og höfum við í
Kvenfélaginu 19. júní verið afskap
lega heppnar með að fá frábæran
stuðning ár eftir ár frá fjölmörgum
fyrirtækjum hér í héraðinu og utan
þess. Mig langar að nota tækifærið
og þakka þeim innilega fyrir það,“
segir Rósa að lokum ás
Í október á síðasta ári aug
lýstu Rótarýklúbbur Akraness
og Tónlistarskólinn á Akranesi
tónleika sem halda átti til minn
ingar um Hallbjörgu Bjarna
dóttur (1917–1997) söngkonu
og frumkvöðul í djasstónlist á
Íslandi. Hún ólst upp á Akra
nesi og átti þar heima fram á
unglingsár. Tónleikarnir áttu
að vera hluti af dagskrá Vöku
daga. Þegar þeir dýrðardagar
voru nýgengnir í garð gekk
kóvid bylgja mikil yfir bæinn
og útilokaði allt samkomuhald.
Ekki var samt hætt við tónleik
ana heldur var þeim frestað
um ótiltekinn tíma. Nú virðist
þeim sem standa að undirbún
ingi tónleikanna loksins óhætt
að halda þá og verða í Tón
bergi, sal Tónlistarskóla Akra
ness, sunnudagskvöldið 6. mars
klukkan 20. Fram kemur hóp
ur listamanna: Andrea Gylfa
dóttir, Brynja Valdimarsdótt
ir, Jónína Björg Magnúsdótt
ir, Davíð Þór Jónsson, Eðvarð
Lárusson, Óskar Þormarsson,
Valdimar Olgeirsson og nemend
ur Tónlistarskóla Akraness. Kynn
ir verður útvarpsmaðurinn vinsæli,
Ólafur Páll Gunnarsson. Miðasala
verður við innganginn en einnig í
forsölu í Pennanum Eymundsson á
Akranesi.
Björt mey og hrein
Hallbjörg var frumkvöðull í djass
tónlist á Íslandi. Rödd hennar vakti
athygli víða um lönd og hún starf
aði í Bandaríkjunum í Danmörku
og fleiri Evrópulöndum – kom
meðal annars fram á tónleikum í
Royal Albert Hall í London 1947.
Hér á landi muna líklega flestir eft
ir flutningi hennar á eigin lögum
við „Vorvísu“ Jóns Thoroddsen og
ljóðið „Björt mey og hrein“ eftir
Stefán Ólafsson frá Vallanesi.
Hallbjörg fæddist árið 1917.
Foreldrar hennar fluttu með hana
barnunga á Akranes. Þröngt var
í búi hjá þeim og skömmu síðar
komu þeir henni í fóstur hjá hjón
unum Kristínu Jónsdóttur og Jóni
Ólafssyni sem bjuggu að Brunna
stöðum. Það hús stendur enn við
Laugarbraut og er númer 19,
sem sagt fjórða húsið í norðaust
ur frá tannlæknastofunni. Þar átti
hún heima fram yfir fermingu en
snemma á unglingsárum fór hún
fyrst til Reykjavíkur og svo til Dan
merkur í leit að tækifærum til að
syngja og læra söng. Þótt veran í
Danmörku byrjaði á tómu brauð
striti, mest við eldamennsku og
þrif, reis frægðarsól Hallbjargar
hratt þar í landi og vel fyrir
tvítugt var hún tekin að koma
fram á tónleikum í Kaup
mannahöfn.
..og það heyrðist í
mér!
Stefán Jökulsson skráði
ævisögu Hallbjargar eftir frá
sögn hennar sjálfrar. Bókin
kom út 1989 og heitir Hall
björg eftir sínu hjartans lagi.
Þar segir frá bernsku henn
ar á Akranesi (á bls. 41): „Ég
var hávær að öllu leyti ef ég á
annað borð opnaði munninn.
Og hann var oft opinn því ég
var alltaf syngjandi. En mér
nægði ekki að syngja og tralla
eins og börn gera sjálfum sér
til yndisauka. Ég vildi syngja
fyrir fólk, syngja fyrir áheyr
endur. Ég opnaði alla glugga
heima á Brunnastöðum upp
á gátt og söng hástöfum svo
fólk heyrði í mér. Og það
heyrðist í mér! Þegar vindátt
var mér í hag barst söngurinn
langar leiðir.“
Í sömu bók segir frá því að bæði
fyrir og eftir seinni heimsstyrjöld
bjó Hallbjörg í útlöndum en hún
var hér á Íslandi á stríðsárunum og
söng bæði fyrir landa sína og fjölda
hermanna sem hingað komu frá
Bretlandi og Bandaríkjunum: „Ég
söng alltaf fyrir fullu húsi en margir
voru á móti djasstónlist… Til blað
anna bárust lesendabréf… Ég man
til dæmis eftir bréfi frá „söng
elskri húsmóður“ sem fáraðist yfir
þessari samviskulausu söngkonu
sem vildi hefja „frumskógamúsík“
til virðingar. Svo bætti þessi svo
kallaða söngkona gráu ofan á svart
með því að „dilla sér“ meðan hún
kyrjaði þennan ósóma.“
mm/ah
Kvenfélagið 19. júní fer af stað með happdrætti
Glæsilegir vinningar verða í Góuhappdrættinu.
Vegna Covid-19 hefur ekkert orðið af árlegu jólabingói kvenfélagsins, stærstu
fjáröflun þess. Ljósm. 19. júní.
Hvatt til þátttöku
í fyrirtækjakönnun
landshlutanna
Forsíða bókar Stefáns Jökulssonar sem segir ævisögu
Hallbjargar.
Tónleikar til minningar um
Hallbjörgu Bjarnadóttur