Vesturbæjarblaðið - dec. 2021, Síða 8

Vesturbæjarblaðið - dec. 2021, Síða 8
8 Vesturbæjarblaðið NÓVEMBER 2021 Þrjú ný nes í Skerjafirði Andvaranes, Otursnes og Reginsnes eru ný gatnaheiti í Skerjafirði. Þá fær nýtt torg nafnið Iðutorg. Innblásturinn að nýju götunöfnunum er fenginn frá Sigurði Fáfnisbana og sagnaheimi í kringum hann en Otur og Reginn eru bræður Fáfnis en fyrir eru í Skerjafirði til dæmis Fáfnisnes og Gnitanes. Í Fáfnismálum er sagt frá för Regins og Sigurðar upp á Gnitaheiði, þar sem Sigurður notaði sverðið Gram til að vinna á orminum Fáfni sem lá á vænum haug af gulli. Síðan steikti garpurinn hjarta Fáfnis yfir eldi. Þegar hann hugðist kanna hvort fullsteikt væri fékk hann dropa af hjartablóði ormsins á tunguna, „þá kunni hann fuglsrödd og skildi, hvað fuglarnar sögðu“ segir í Snorra Eddu. Og eftir að Sigurður hafði hlustað á snjallan ljóðasöng spörfuglanna um stund drap hann Regin, batt gullið í klyfjar og lagði á bak hestinum Grana og reið á brott. Nafnanefnd skipa Ármann Jakobsson, Guðrún Kvaran, Ásrún Kristjánsdóttir og Nikulás Úlfar Másson, sem er formaður nefndarinnar. Til viðbótar situr Hrafnhildur Sverrisdóttir verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa fundi nefndarinnar. Ný byggð í Skerjafirði. Fjölmenningarhátíð var haldin í Samfélagshúsinu Aflagranda 40 í vesturbænum miðvikudag­ inn 13. október þar sem kenndi ýmissa grasa. Krakkar frá leik­ skólanum Drafnasteini mættu og hengdu upp litríkar hendur sem þau höfðu útbúið og sungu fyrir gesti við mikinn fögnuð. Krakkar frá frístundaheimilu­ num Frostheimum og Skýjaborgir mættu og léku sér á Stóra leikvel­ linum sem Hlín mætti með en hún heldur m.a. utan um verkefnið Fjölbreytt kennsla. Friðrik frá Kramhúsinu mætti og hélt utan um hópefli með arabísku þema og Salsa Iceland sýndi dansa frá hinum ýmsu þjóðum. Gestir gátu gætt sér á mat frá m.a. Tyrklandi, Lettlandi og Litháen og gafst fólki einnig tækifæri á að prófa að tálga hjá Magga tálgara. Þórdís Erla setti upp ljósmynda sýningu sem sýndi starfsfólk Eflingar sinna undirstöðuatvinnu greinum landsins og svo söng Renata lög á litháísku, íslensku og ensku. Gestum gafst síðan kostur á að versla sér kvöldmat til að taka með heim því Bumbu borgarar mættu á svæðið með matar­ vagninn sinn. Hátíðin var styrkt af íbúaráði Vesturbæjar en hugmyndin að hátíðinni kom út frá verkefninu Velkomin í hverfið sem snýst um að taka vel á móti fjölskyldum sem koma erlendis frá og eru nýjar í hverfinu og tengja þær inn í samfélagið. Þessar myndir voru teknar á f jölmenningarhátíðinni í Vestur bænum. Myndirnar eru frá Iðunni, Lenu og Sirí. Fjölmenningarhátíð í Vesturbænum Framkvæmdum er að mestu lokið í Ægisborg. Elstu börnin í leikskólanum fengu um miðjan september tímabundna aðstöðu hjá íþróttafélaginu KR í Frostaskjóli. Fyrr í mánuðinum komu 28 börn og sjö starfsmenn aftur í Ægisborg þar sem búið er að skipta um gólfefni og setja hita í öll gólf. Ráðist var í þær framkvæmdir þegar úttekt leiddi í ljós raka í gólfplötunni. Börnin þökkuðu starfsfólki KR fallega fyrir sig þegar þau kvöddu Frostaskjól. Í bréfi sem þau afhentu þeim með listilega smíðuðum bikar segir m.a. "Takk fyrir að lána okkur salinn og borðin og vegginn til að hengja bréfin og fyrir að leyfa okkur að skoða bikarana. Þið eruð með flotta bikara. Það var gaman að vera með ykkur. KR er besti staðurinn í öllum heiminum." Framkvæmdum að ljúka í Ægisborg Frostaskjól er í næsta nágrenni við Ægisborg og hefur lengi verið gott samstarf milli leikskólans og íþróttafélagsins KR og börnin farið þangað reglulega í hreyfingu. Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi. Íslenskt handverk. Fæst um land allt. Þríkrossinn Stuðningur til sjálfstæðis Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • Vefverslun: www.skorri.is Öll hleðslutæki með afslætti fram að jólum Hleðslutæki 20% Afsláttu r Jólatilboð!

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.