Vesturbæjarblaðið - dec 2021, Blaðsíða 11
Fjárhagsáætlun næsta árs sýnir berlega áherslur
núverandi meirihluta í Reykjavík. Við ætlum
að fjárfesta í börnunum okkar og unglingum
með því að veita fjármunum í auknum mæli í
menntun barna, skólaumhverfi þeirra og aðstöðu.
Nám er ekki bara skrifborð og stóll, heldur
þarf námsumhverfið allt að vera hvetjandi á
mörgum sviðum.
Ég fékk nýlega þann heiður að veita Árbæjarskóla
verðlaun fyrir sigur í Skrekk, árlegri hæfileikakeppni
grunnskólanemenda í Reykjavík. Ég vil óska þeim
nemendum innilega til hamingju með sinn árangur.
En þarna á sviðinu sá ég hvað við eigum ótrúlega
hæfileikarík börn, með hjartað á réttum stað,
sem munu svo sannarlega eiga eftir að ná langt.
Ekki bara í Árbæjarskóla heldur í skólum um alla
borg. Við þurfum að rækta hæfileika hvers barns
í skólunum.
Stórátak í viðhaldi
Í kjölfar efnahagshrunsins var ákveðið að spara í
viðhaldi og fjárfestingum skólabygginga og fjárfesta
frekar í mannauði og skólastarfi. Það hefur tekið
langan tíma að vinda ofan af þeirri viðhaldsskuld
sem myndaðist og nú þarf að taka skrefinu lengra.
Reykjavíkurborg hefur því látið meta ástand allra
skólabygginga í borginni, leikskóla, grunnskóla og
frístund, og greint hvar viðhalds er þörf. Hægt er að
skoða niðurstöður fyrir hverja skólabyggingu á vef
Reykjavíkurborgar.
25 til 30 milljarðar
Þessar niðurstöður verða notaðar til að ráðast
í risastórt viðhaldsátak, þar sem viðhaldsskuld
undanfarinna ára verður greidd. Til að nýta tíma,
mannafla og fjármagn með sem bestum hætti verður
viðhaldinu forgangsraðað eftir ástandi húsnæðis,
þar sem horft verður, í þessari röð, á öryggi;
rakamál; ytra byrði, klæðningar, þök og glugga;
loftræstingu; hljóðvist, ljósvist o.fl.; og aðgengismál.
Með því að leggja 25 til 30 milljarða í viðhald á
næstu fimm árum vonumst við til að standa á jöfnu
í viðhaldi skólabygginga og að börnin okkar muni
búa við mun meira öryggi og heilnæmara húsnæði í
öllum skólabyggingum.
Fjárfestum í
leikskólum og
stafrænni tækni
Við ætlum að verja fjórum
mi l l jörðum í að f jö lga
leikskóladeildum, til að brúa
bilið milli fæðingarorlofs og
leikskólavistunar fyrir enn
fleiri börn og í þeim hverfum
þar sem biðlistar eru lengstir.
Stafræna byltingin mun ná
til skólanna því við ætlum að
fjárfesta í tölvum og stafrænni
tækni fyrir leikskóla, grunnskóla og frístund til að
bæta námsumhverfið.
Við ætlum líka í stafræna umbreytingu fyrir
foreldra, með umbyltingu á innritun í leikskóla og
frístund barna og í umsókn um skólaþjónustu, á
forsendum notenda.
Fjárfestum til að mæta fjölbreyttum
þörfum
Við þurfum líka að horfa á innra starf skólanna
og rekstur. Því ætlum við að bæta við 1,5 milljarði
á hverju ári í rekstur grunnskóla. Það er sú upphæð
sem nýtt úthlutunarlíkan grunnskóla Reykjavíkur
segir að þurfi til að fullfjármagna grunnskólana
okkar. Ég fékk þann heiður að leiða gerð þessa
nýja úthlutunarlíkans og fá þannig innsýn inn í þau
fjölbreyttu verkefni sem mæta grunnskólakennurum
á hverjum degi.
Nýr formaður Kennarasambands Íslands, Magnús
Þór Jónsson, skólastjóri Seljaskóla átti stóran
þátt í að koma þessu nýja líkani á og áttum við
þar gott samstarf. Með úthlutunarlíkaninu munu
skólastjórnendur fá aukið faglegt frelsi, og ábyrgð,
til að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda með
teymisstarfi fagfólk á sviðum velferðar, heilbrigðis
og skóla. Þannig verður þörfum hvers skóla og
skólaumhverfis betur mætt, og dregið er úr
aðstöðumun á milli skóla.
Það er því bjart yfir skólastarfi í Reykjavík og
námsumhverfi barnanna.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar
11VesturbæjarblaðiðNÓVEMBER 2021
Motormax ehf.
Vatnagörðum 12
Sími 545 4040
motormax@motormax.is
Menntun, menntun, menntun • Er komið að húsnæðis
skiptum eða vantar þig
stuðning og ráðgjöf við
erfðaskrá, kaupmála eða
dánarbússkipti?
• Vilt þú fá lögmann þér við
hlið sölu fasteignar án þess
að greiða aukalega fyrir þá
þjónustu?
• BÚUM VEL veitir nýja
tegund þjónustu.
Kynntu þér málið.
Elín Sigrún, lögmaður
Tryggvagötu 11, 2. hæð
sími 783 8600
elin@buumvel.is
www.buumvel.is
Sérhæfð
lögfræði þjónusta
við búsetuskipti
með áherslu á 60+
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir.
Basarinn
nytjamarkaðu
austurveri
Háaleitisbraut 68
sími 562 6700
Opið virka daga 12-18
Basarinn
nytjamarkaður
austurveri
Háaleitisbraut 68
sími 562 6700
Opið virka daga 12-18