Feykir


Feykir - 13.01.2021, Blaðsíða 5

Feykir - 13.01.2021, Blaðsíða 5
Júní Mörg ný störf til Sauðárkróks Á kynningarfundi í höfuð- stöðvum Húsnæðis- og mann- virkjastofnunar á Sauðárkróki voru kynntar fyrirhugaðar breytingar á bruna- og eitur- efnavörnum á Íslandi. Þar kom m.a. fram að um átta ný stöðugildi yrðu til á sviði brunaeftirlits og brunavarna hjá HMS á Sauðárkróki. „Það mun þurfa fólk með háskólamenntun, verkfræðimenntun og annað sem þarf til þess að halda utan um þessa nýju starfsstöð og þau verkefni, sem við erum að fara að hefja saman sem samfélag, að hefja átak í brunavörnum á næstu árum,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, ráðherra, í ávarpi sínu á fundinum. KK restaurant á Sauðárkróki hlaut Icelandic Lamb Award of Excellence viðurkenningu við hátíðlega athöfn, en það er markaðsstofan Icelandic Lamb sem að þeirri viðurkenningu stendur. Í umsögn dómnefndar sagði að það væri ánægjulegt að heiðra þetta metnaðarfulla veitingahús í miðju héraði lambakjötsframleiðslu á Íslandi og því sérstaklega fagnað að hráefnin séu sótt heim í hérað og notkun upprunamerkinga á matseðli metnaðarfull. Grunnskóli Húnaþings vestra og Varmahlíðarskóli kepptu til úrslita í Skólahreysti í Laugardalshöll ásamt sex öðrum skólum þar sem Húnvetningar lentu í fjórða sæti og Varmahlíð í því sjöunda. Dúxaði með 10 í meðaleinkunn Brautskráning frá Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra fór fram þann 5. júní. Dúx skólans, Þorri Þórarinsson, vann það einstaka afrek að hljóta meðaleinkunnina 10,0 á stúdentsprófi á náttúru- fræðibraut. 67 nemendur braut- skráðust frá skólanum en alls voru gefin út 74 prófskírteini. Lið Tindastóls og Kormáks/ Hvatar mættust á Sauðárkróki þar sem spilað var við ágætar aðstæður á rennisléttu gervi- grasi. Var þetta fyrsti leikur beggja liða frá því um veturinn en tekið var fram að gæði leiks- ins hafi engu að síður verið með ágætum og líkt og reikna mátti með í grannaslag þá var hvergi gefið eftir. Eftir fjörugan leik stóðu Tindastólsmenn uppi sem sigurvegarar, lokatölur 2-1 fyrir Tindastól. Gróska í golfinu Þorgerður Þórhallsdóttir kvaddi sunddeild Tindastóls. Hún átti að baki tólf ára farsælt starf sem sundþjálfari eftir að hafa verið kúturinn og korkurinn í deildinni þennan tíma, eins og segir í forsíðufrétt í Feyki þann 16. júní. Metþátttaka var í byrjenda- flokki á fyrsta móti sumarsins hjá Golfklúbbi Skagafjarðar þar sem 59 börn og unglingar kepptu. Skjálfandi jörð og Huginsbikar til Húnvetninga Jörð skalf víða á Norðurlandi sumarið 2020 og segir Feykir frá miklum jarðskjálftum sunnudaginn 21. júní. Stærsti skjálftinn, sem var 5,8 að stærð og átti upptök sín rúma 30 km norðnorðaustur af Siglufirði, fannst víða um land. Orsökuðu skjálftarnir grjóthrun úr fjöllum á Tröllaskaga og var fólk beðið að hafa varann á. Guðrún Helga Magnúsdóttir tók við formennsku Ungmenna- sambands Vestur-Húnvetninga af Reimari Marteinssyni á 79. héraðsþingi sambandsins. Guð- rún Helga er 23 ára gömul og er meðal yngstu formanna sambandsaðila UMFÍ. Húnvetnskar fóltboltastúlkur unnu Huginsbikarinn á TM- mótinu í Vestmannaeyjum en þær unnu alla sína leiki. Liðið var samsett af stelpum úr Kormáki á Hvammstanga, Börn Guðjóns Ingimundarsonar, Ingimundur, Sigurbjörg, Svanborg og Ingibjörg af- hjúpuðu minnismerki um föður þeirra, í endurbættri Sundlaug Sauðárkróks. MYND: PF vegna áhrifa COVID-19 og var styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands vestra. Að sögn Þórhildar M. Jónsdóttur, verk- efnastjóra Vörusmiðjunnar, er markmið verkefnisins að auka aðgengi neytenda á Norðurlandi vestra að vörum smáframleiðenda á svæðinu en viðkomustaðir bílsins eru frá Borðeyri í vestri til Ketiláss í Fljótum í austri. Úrhelli á Húnavöku og aurskriður á Reykjaströnd Í forsíðufrétt Feykis þann 22. júlí segir af tíðarfari og skjálfandi jörð en helgina áður hafði djúp lægð gengið yfir landið með miklu úrhelli og snjó i fjöllum. Setti veðrið örlítið strik í dagskrá Húnavöku, sem fram fór á Blönduósi en fella þurfti niður Blönduhlaupið og golfmót vegna þess. Þá varð stór jarðskjálfti aðfaranótt sunnudags 10 km NNV af Gjögurtá sem mældist 4,4 að stærð. Honum fylgdi fjöldi eftirskjálfta. Eftir úrhellisregnið féllu aurskriður á veginn utan Ingveldarstaða á Reykjaströnd í Skagafirði og varð ferðafólk innlyksa á Reykjum. Var það aðstoðað við að komast sína leið. Björgunarsveitir úr Skaga- firði og Eyjafirði sóttu slasaðan göngumann á Heljardalsheiði en hann hafði hrasað í brattri skriðu í fjalllendinu. Verkefnið var erfitt og krefjandi, skyggni slæmt og ekki hægt að nota þyrlu til leitar en í þess stað ferjaði hún leitarmenn eins nálægt slysstað og kostur var. Göngumaðurinn fannst eftir stutta leit og var hann við ágætis heilsu miðað við aðstæður. Var hann fluttur á sjúkrahús með þyrlunni. Útkallið tók í heildina um átta tíma en aka þurfti talsverða vegalengd og ganga um 20 km. 54 björgunarsveitarmenn tóku þátt í útkallinu frá sex björgunarsveitum beggja vegna Tröllaskaga. Á Blönduósi afhenti Anna Margrét Valgeirsdóttir síðustu 70 pokana sem saumaðir voru þar í átaki til að gera Blönduós að plastpokalausu samfélagi. Verkefnið hófst haustið 2017 og var hugmyndin sú að við- skiptavinir Kjörbúðarinnar á Blönduósi gætu fengið fjölnota poka lánaða og skilað þeim svo aftur í næstu búðarferð. Það var Anna Margrét sem hrinti verkefninu í framkvæmd og nú, 3000 pokum og 500 klukkustundum síðar, ætlar hún formlega að hætta poka- saumaskapnum, segir í fréttinni. Frh. í næsta tölublaði Feykis Fyrsta skóflastungan tekin að nýjum leikskóla á Hofsósi. MYND: AUÐUR BJÖRK Keppendur Grunnskóla Húnaþings vestra í Skólahreysti ásamt Magnúsi Eðvalds, kennara sínum. MYND AF FACEBOOK-SÍÐU SKÓLAHREYSTI Hvöt á Blönduósi og Fram á Skagaströnd en stelpurnar æfðu hver á sínu heimasvæði og hittust svo öðru hverju til að samhæfa spilamennskuna. Júlí Félagsmiðstöð fyrir 60+ Í Húnaþingi vestra var starf- rækt félagsmiðstöð fyrir 60 ára og eldri. Var mikill áhugi fyrir starfseminni og komu margar góðar hugmyndir að nám- skeiðum eða félagsstarfi fram. Golfklúbbur Skagafjarðar fagnaði 50 ára afmæli á árinu og var haldið upp á það með ýmsum hætti, meðal annars var haldið afmælismót þann 27. júní þar sem 70 kylfingar mættu til keppni. Eftir að Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra kölluðu eftir hugmyndum að átaks- verkefnum vegna áhrifa af COVID-19 faraldrinum var valið úr fjölmörgum hug- myndum sem bárust. Um helmingi þeirra fjármuna sem veitt var af sóknaráætlun til verkefnisins var veitt til verk- efna til eflingar ferðaþjónustu á svæðinu. Meðal verkefna sem styrkt voru var átak í hnitsetningu gönguleiða á Norðurlandi vestra og landslagsmyndbönd Helga Sæmundar Guðmundssonar, Norðvestur, með frumsaminni tónlist úr smiðju hans. Einnig voru framleiddir þættir sem N4-sjónvarpsstöðin tók upp og fengu heitið Uppskrift að góðum degi á Norðurlandi vestra. Hlutfallslega mest fjölgun á Norðurlandi vestra Íbúum Norðurlands vestra fjölg- aði hlutfallslega mest á tíma- bilinu 1. desember 2019 til 1. júlí 2020, eða um 1,3% sem voru 98 íbúar og var heildarfjöldi íbúa þá orðinn 7.425 manns. Mest fjölgaði í Sveitarfélaginu Skagafirði, um 66 manns en hlutfallslega fjölgaði mest í Akrahreppi, um 2,4%. Unnið var að úrbótum á 64 fjarskiptastöðvum á landinu en ljóst var eftir óveður vetrarins að bæta þyrfti rekstraröryggi fjarskiptastöðva og tryggja að almenningur geti kallað eftir aðstoð í neyðarnúmerið 112 í vá eins og þá skapaðist. Meðal þeirra úrbóta sem ráðast á í eru 36 fastar vararafstöðvar og verða fimm þeirra í Skagafirði og sex í Húnavatnssýslum en annars staðar eru rafgeymar eða tenglar fyrir færanlegar rafstöðvar. Smáframleiðendur á ferðinni Tólf smáframleiðendur á Norðurlandi vestra og Vöru- smiðja BioPol tóku höndum saman um verkefnið Smáfram- leiðendur á ferðinni sem fólst í því að ferðast um svæðið á smábíl og bjóða vörur sínar til sölu. Það er Vörusmiðja BioPol á Skagaströnd sem heldur utan um verkefnið sem er eitt af sérstökum átaksverkefnum 02/2021 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.