Feykir - 13.01.2021, Blaðsíða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Ráðning..
Sudoku
Krossgáta
FEYKIFÍN AFÞREYING
Feykir spyr...
Hvað ætlar þú
að gera á nýju
ári sem þú
gerðir ekki á
því seinasta?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : klara@nyprent.is
„Fara í göngur á
Tungudal og Egilsdal.“
Árni Gunnarsson
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
Á Íslandi er rekstur spilavíta ólöglegur þrátt fyrir að hann hafi verið
stundaður í skjóli nætur á ýmsum tímum m.a. í Reykjavík á árunum 2010-
2012 áður en því var lokað af lögreglu. Ótrúlegt, en kannski satt, þá voru
á 19. öldinni til aðilar sem höfðu þann eina starfa að gleypa teningana í
enskum ólöglegum spilavítum ef lögreglan gerði rassíu á staðnum.
Tilvitnun vikunnar
Það er alltaf byrjunin sem krefst mestrar fyrirhafnar.
– James Cash Penney
„Vonandi að fara á
heimsmeistaramót
íslenska hestsins
í Herning!“
Sigurlína Erla Magnúsdóttir
„Kaupa fleiri bíla.“
Brynjar Morgan eldri
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Flatbaka fátæka mannsins
F
Vegan hamborgarasósa:
1 til 11/2 dl vegan majónes
1/2 dl tómatsósa
1/2 dl mjög smátt saxaðar súrar
gúrkur
1 tsk. paprikuduft
1 tsk. hvítlauksduft
1 tsk. laukduft
salt
Aðferð: Allt sett í skál og hrært
saman.
Bjórsteiktur laukur:
2 stórir laukar
1 msk. sykur
1 msk. soyasósa
salt og pipar
2-3 msk. bjór
Aðferð: Skerið laukana í frekar
þunnar sneiðar. Steikið laukinn
upp úr smá olíu þar til hann fer að
brúnast vel.
Bætið við salti og pipar, sykri
og soyasósu og steikið í nokkrar
mínútur í viðbót. Bætið bjórnum
út í og steikið í góðar 5 til 10
mínútur.
Hamborgarabrauðið er frá
Gæða bakstri og er vegan. En svo
er bara að láta hugmyndaflugið
ráða þegar velja á áleggið en á
þessum borgara má einnig sjá hvít-
lauksmæjónes (hvíta sósan), tóm-
ata og kál.
EFTIRRÉTTUR
Frosin ostakaka
með Oreo botni
20 stk Oreo kexkökur
70 g bráðið vegan smjör (notið
hvaða vegan smjör sem er,
t.d. Ljóma smjörlíki)
1 þeytirjómi frá Alpro (2 dl)
2 öskjur Påmackan
rjómaosturinn frá Oatly (300g)
11/2 dl sykur
1 msk. vanillusykur
2-3 msk. kalt uppáhellt kaffi
(fer alfarið eftir því hversu
mikið kaffibragð þið viljið hafa)
Aðferð: Myljið niður Oreo kexið.
Hellið muldu kexinu í skál. Bræðið
smjörið, hellið því ofan í skálina og
blandið vel saman við kexið með
sleif. Hellið blöndunni í 20 cm
smelluform og þrýstið vel í
botninn. Setjið formið í frystinn á
meðan þið undirbúið fyllinguna.
Þeytið rjómann í stórri skál og
leggið til hliðar. Bætið restinni af
hráefnunum í aðra stóra skál og
þeytið saman. Bætið þeytta rjóm-
anum út í skálina og þeytið allt
saman í nokkrar sekúndur, eða þar
til allt er vel blandað saman. Hellið
blöndunni ofan í smelluformið og
setjið í frystinn yfir nótt eða í
allavega fjóra klukkutíma. Toppið
kökuna með því sem ykkur lystir.
Gott er að láta kökuna standa í
nokkrar mínútur áður en hún er
borin á borð, best ísköld.
Verði ykkur að góðu!
Vegan hamborgari
með bjórsteiktum lauk
Samtök grænkera á Íslandi hafa hafið átakið Veganúar en mark-
miðið með því er að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu
dýraafurða og kynna kosti vegan fæðis fyrir heilsu, umhverfi og
dýravernd. Er þá ekki tilvalið að koma með nokkrar girnilegar
Vegan uppskriftir...
AÐALRÉTTUR
Hamborgari með
bjórsteiktum lauk
Hamborgarar 4 stykki:
440 g formbar hakkið frá
Anamma – fæst í Hagkaup
og Bónus
1 msk. laukduft
1 msk. hvítlauksduft
1-2 tsk. sojasósa
1 tsk. gróft sinnep
eða dijon sinnep
2 tsk. kjöt og grillkrydd
salt og pipar
BBQ sósa til að pensla yfir
(má sleppa)
Aðferð: Takið hakkið úr frysti
u.þ.b. klukkutíma áður en matreiða
á borgarana. Setjið öll kryddin út í
þegar hakkið hefur aðeins fengið
að þiðna. Mótið fjögur buff úr
hakkinu (u.þ.b. 110 g hvert buff) og
steikið eða grillið í nokkrar
mínútur á hvorri hlið. Pennslið
með BBQ sósu áður en borgararnir
eru matreiddir ef þið kjósið.
( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is
Þessi lítur vel út! MYNDIR: VEGANISTUR.IS
Vegan ostakaka, nammi nammi namm...
„Hitta vini og ættingja oftar
en á síðasta ári.“
Elín Árdís Björnsdóttir
02/2021 11
Vísnagátur Sveins Víkings
Af henni fyrrum seyði saup
sakfellt barnið lamið hrísi.
Samningur um kjör og kaup.
Hverri gátu baninn vísi.