Feykir


Feykir - 31.03.2021, Page 10

Feykir - 31.03.2021, Page 10
Snæborg Lilja Hjaltadóttir er fædd og uppalin á Sauðárkróki en flutti á Akureyri árið 2016 og hefur búið þar síðan. Snæborg er í sambúð með Roman Arnarssyni og eiga þau eina eins árs stelpu sem heitir Andrea Marín og svo er önnur stelpa á leiðinni svo Snæborg er aðallega að prjóna á þær og líka á lítil frændsystkini. Hve lengi hefur þú stundað hannyrðir? Ég lærði að prjóna í grunnskóla en hafði ekkert gert síðan þá, byrjaði síðan aftur í mars í fyrra í fyrstu Covid bylgjunni og hef bara ekki stoppað síðan. Hvaða handavinna þykir þér skemmti- legust? Ég er hrifnust af prjónunum og prjóna aðallega barnaflíkur, hef enn ekki lagt í fullorðinsflík. Hverju ertu að vinna að þessar mundir? Núna er ég að prjóna heimferðasett á væntanlegt kríli. Hvar fékkstu hugmyndina? Ég fæ nánast allar hugmyndir af Instagram, þar er endalaust af fallegum prjóna- flíkum og fullt af flottum íslenskum prjónaaðgöngum þar sem hægt er að fá hugmyndir. Hvaða handverk sem þú hefur unnið ertu ánægðust með? Ég held ég sé ánægðust með Unu samfellu sem ég prjónaði á dóttur mína þegar hún var yngri, það var ótrúlega krefjandi en tókst að lokum, síðan er ég mjög hrifin af eyrnaslapahúfunum. - - - - - Snæborg skorar á Guðrúnu Anítu, prjónasnilling á Blönduósi. „Byrjaði að prjóna í fyrstu Covid bylgjunni og hef bara ekki stoppað síðan“ ( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) klara@nyprent.is Snæborg Lilja Hjaltadóttir á Akureyri Eyrnaslapa húfur og Kára peysur. Snæborg og Roman. AÐSENDAR MYNDIR Móa lambhúshetta Lillebjørn fílahúfa. Fræ húfa, peysa og samfella. Frænkurnar Andrea og Sóldögg í Kára peysum með Unu eyrnabönd. Andrea Marín fín í Una samfellu. 10 13/2021

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.