Feykir - 28.04.2021, Page 2
Hvort sem þú trúir því eða ekki þá er Sæluvika. Hvað getur
maður annað sagt en helvítis kóvid. Vegna þess er vikan
vængstýfð á báðum og stélið rytjulegt svo engu flugi er náð,
því miður. En í stað þess að snúa kvikindið úr hálsliðnum er
reynt að halda smá lífsmarki með sjúklingnum með von um
bata að ári. Það er virðingavert. Finna má nokkrar uppákomur
á Króknum í tilefni menningarvik-
unnar en flest atriði eru rafræn í ár
og ná vonandi að létta fólki lundina
og brjóta upp hversdaginn. Hvet ég
alla til að kynna sér hvað í boði er.
Eins og staðan er núna eru svo miklar
takmarkanir vegna sóttvarnareglna
að varla tekur því að dreypa á áfengi
– öðruvísi mér áður brá. Allar götur
frá upphafi Sæluviku, sem rekja má
allt til ársins 1885 og jafnvel fyrr
þegar sýslunefndarfundir fóru fram á Reynistað, má finna sögur
af fólki sem skemmti sér og öðrum, skvettu úr klaufunum, fann
mismikið á sér og dansaði fram á rauða nótt. Í bók Kristmundar
Bjarnasonar, Saga Sauðárkróks, er skemmtileg lýsing á Sælu-
vikustemningu fyrri tíðar og leyfi ég mér að grípa örlítið niður í
kaflann Skemmtanalíf:
Líklegt má telja, að sýslufundargleðirnar á Sauðárkróki hafi
drjúgum hresst upp á geðheilsu gestanna. Þessar sælustundir
bar hæst í fábrotnu lífi þeirra, voru kært umræðuefni og birtu-
gjafi langt fram í ókomna tíð.
Til voru þeir, sem glaumur Sýslufundarvikunnar varð aðeins
áfangi á refilstigum ofdrykkjunnar. Brennivínsberserkirnir
kunnu sér ekki hóf þá fremur en endranær. Því er ekki heldur að
leyna, að stundum varð svakksamt á skemmtunum þessum,
pústrar og ryskingar í ölæði. Jóhannes sýslumaður hafði
snemma á embættisferli sínum farið þess á leit við amtsráð, að
komið væri upp fangageymslu á Sauðárkróki - þó ekki sérstak-
lega vegna sýslufundarhalds. Þeirri beiðni var synjað. Varð
sýslumaður stundum að sleppa mönnum úr gæzluvarðhaldi
sökum húsnæðisskorts. Þegar brennivínsberserkir létu dólgs-
lega á skemmtunum í Tindastóli eða Poppspakkhúsi, lét sýslu-
maður stinga þeim í stóra poka (ullarballa), og var bundið
traustlega fyrir.
Var þetta kallað að ,,poka“ menn. ,,Ég man eftir nokkrum drykkju-
skap á Sauðárkróki, einkum af því, að þeir drukknu voru settir í
poka og gerð háðung að þeim,“ segir Alexander Jóhannesson í
bréfi til þess, er þetta ritar [Kristmundar]. Stundum voru pokarnir
hengdir upp á bita í danssalnum á Tindastóli, og fengu sak-
borningar að dúsa þar við dillandi harmonikuspil Bjarnleifs og
höfðu ekki af réttunum nema reykinn. Þung þótti þessi refsing,
en talið, að hún gæfi góða raun. Venjulega var dansað framundir
morgun. Eldar ásta og afbrýði loguðu stundum glatt, hressilegar
hneykslissögur um hin og þessi skötuhjú gengu um bæinn;
einhver hefur sagt: ,,að þau hafi haft í frammi hið mesta svínerí,
sem hefur heyrzt getið um hér á Sauðárkróki.“
Gangið hægt um gleðinnar dyr, farið varlega í netheimum og
gleðilega Sæluviku!
Páll Friðriksson,
ritstjóri
LEIÐARI
Stórfurðuleg Sæluvika
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 615 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 755 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
AFLATÖLUR | Dagana 18. apríl til 24. apríl 2021 á Norðurlandi vestra
Fækkun veiðidaga á grásleppunni
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Blíðfari HU 52 Handfæri 1.632
Dagrún HU 121 Grásleppunet 22.562
Elfa HU 191 Grásleppunet 8.618
Fengsæll HU 56 Grásleppunet 14.397
Hafdís HU 85 Grásleppunet 4.771
Hjalti HU 313 Grásleppunet 9.405
Hrund HU 15 Handfæri 625
Ísak Örn HU 151 Grásleppunet 8.988
Kambur HU 24 Grásleppunet 19.370
Már HU 545 Grásleppunet 8.961
Sæunn HU 30 Handfæri 978
Alls á Skagaströnd 137.482
HOFSÓS
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 9.300
Alls á Hofsósi 9.300
SAUÐÁRKRÓKUR
Badda SK 113 Grásleppunet 12.335
Drangey SK 2 Botnvarpa 105.457
Fannar SK 11 Grásleppunet 9.820
Hafey SK 10 Grásleppunet 12.284
Kaldi SK 121 Grásleppunet 7.661
Málmey SK 1 Botnvarpa 111.747
Már SK 90 Grásleppunet 8.996
Steini G SK 14 Grásleppunet 11.696
Alls á Sauðárkróki 279.996
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landbeitt lína 5.994
Arndís HU 42 Grásleppunet 3.762
Auður HU 94 Grásleppunet 5.169
Bergur Sterki HU 17 Grásleppunet 22.250
Nú eru þrjár vikur síðan fyrsti báturinn skráði sig inn á grásleppuveiðarnar hér á Norðurlandi
vestra og eins og áður hefur komið fram er mjög góð veiði en verðið ekki til að hrópa húrra
fyrir en þrátt fyrir það eru nú átján bátar á veiðum.
Í fyrstu var gefið út leyfi til að stunda hrognkelsaveiðar í 40 daga samfleytt eftir að bátur skráði
sig inn en nú hefur atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið gefið út þá reglugerð að veiði-
dögum fækki niður í 35 daga. Þessar fréttir koma ekki á óvart miðað við þá mokveiði sem hefur
verið og áttu margir von á að veiðin yrði stöðvuð.
Aflahæsti bátur vikunnar á
Norðurlandi vestra er Dagrún
HU 121 með alls 22.562 kg en
ef teknar eru allar þrjár vik-
urnar saman þá er Dagrún HU
121 einnig með vinninginn
eða alls 35.175 kg.
Annars er það að frétta úr
öðrum aflafréttum að Málmey
SK 1 landaði tæpum 112 tonn-
um á Króknum en alls var þar
landað 279.996 kg og þar af
62.792 kg af grásleppu. Á
Skagaströnd var það Dagrún
HU 121 sem var aflahæst með
22.562 kg en alls var landað
rúmum 137 tonn-um. Enginn bátur landaði á Hvammstanga þessa vikuna en einn bátur landaði
á Hofsósi, Þorgrímur SK 27, alls 9300 kg. Heildarafli á Norðurlandi vestra var 726.778 kg í síðustu
viku og af því var alls 191.045 kg af grásleppu. /SG
Um helgina fór fram rafrænt
forval hjá Vinstri hreyfingunni
grænu framboði í Norðvestur-
kjördæmi. Bjarni Jónsson,
sveitarstjórnarfulltrúi í
Sveitarfélaginu Skagafirði,
fékk flest atkvæði í fyrsta sæti
en Lilja Rafney Magnúsdóttir,
núverandi oddviti listans í
endaði í öðru sæti.
Í tilkynningu frá flokknum
kemur fram að valið hafi verið í
fimm efstu sæti á framboðslista
hreyfingarinnar í alþingiskosn-
ingunum sem fram fara í haust.
Niðurstaða forvalsins er
eftirfarandi:
1. sæti Bjarni Jónsson með
543 atkvæði í 1. sæti
2. sæti Lilja Rafney
Magnúsdóttir með 565
atkvæði í 1.-2. sætið
3. sæti Sigríður Gísladóttir
með 444 atkvæði í 1.-3. sæti
4. sæti Þóra Margrét
Lúthersdóttir með 622
atkvæði í 1.-4. sæti
5. sæti Lárus Ástmar
Hannesson með 679 atkvæði
í 1.-5. sæti
Átta voru í framboði. Á kjörskrá
voru 1454. Atkvæði greiddu
1049. Kosningaþátttaka var 72%
Auðir seðlar 3.
Kjörstjórn leggur fram lista
með 16 frambjóðendum fyrir
kjördæmisþing til samþykktar í
samræmi við lög og stefnu
hreyfingarinnar. /PF
Forval VG í Norðvesturkjördæmi
Bjarni Jónsson leiðir lista VG
í komandi alþingiskosningum
Málmey SK 1 í höfn á Króknum. MYND: FISK.IS
Bjarni Jónsson.
2 17/2021