Feykir - 28.04.2021, Qupperneq 3
Árangursrík uppbygging starfsstöðva á
Hvammstanga og Skagaströnd
Vinnumálastofnun hlýtur
Byggðagleraugu SSNV 2021
Á ársþingi SSNV, sem haldið
var í fjarfundi 16. apríl, voru
Byggðagleraugu SSNV veitt í
fyrsta sinn en á heimasíðu
SSNV segir að undanfarið
hafi mikið verið rætt um
störf án staðsetningar og
almennt flutning starfa út á
land sem m.a. hefur lengi
verið baráttumál
sveitarstjórnarmanna á
Norðurlandi vestra.
Byggðagleraugu SSNV fyrir
árið 2021 hlýtur Vinnumála-
stofnun fyrir árangursríka
uppbyggingu starfsstöðva
stofnunarinnar á Hvamms-
tanga og Skagaströnd.
Til að vekja athygli á
þessu, og jafnframt hvetja og
þakka þeim sem vel hafa
staðið sig, hefur stjórn SSNV
ákveðið að veita á ársþingi
ár hvert, viðurkenninguna
Byggðagleraugun, þeirri
stofnun eða ráðuneyti sem
þykir hafa skarað fram úr í
fjölgun starfa eða verkefna á
Norðurlandi vestra eða með
öðrum hætti stuðlað að
uppbyggingu hans.
Á ssnv.is kemur fram að
viðurkenningunni sé ætlað
að hvetja forsvarsmenn
stofnana til að horfa með
„byggðagleraugunum“ á
verkefni sinna eininga og
nýta þau tækifæri sem gefast
til flutnings starfa eða
verkefna á landsbyggðina í
samræmi við áherslur
byggðaáætlunar og annarra
áherslna ríkisins.
„Byggðagleraugu SSNV
fyrir árið 2021 hlýtur Vinnu-
málastofnun fyrir árangurs-
ríka uppbyggingu starfs-
stöðva stofnunarinnar á
Hvammstanga og Skaga-
strönd. Starfsstöðvarnar
báðar hafa mikla þýðingu
fyrir samfélögin á Norður-
landi vestra og þykja fyrir-
myndardæmi um árangurs-
ríkan flutning verkefna á
landsbyggðina. Frá opnun
þeirra hafa þær eflst verulega
og starfa þar nú samtals vel
yfir 40 starfsmenn. Slíkur
fjöldi starfa hefur mikil áhrif
í hagkerfi svæðisins og stuðl-
ar að aukinni byggðafestu og
uppbyggingu í landshlut-
anum,“ segir í frétt sam-
takanna. /PF
Til stendur að reisa nýjan
gangnamannaskála við
Gedduhöfða á Grímstungu-
heiði, allt að 500m2 með
gistipláss fyrir 60 manns,
300m2 hesthús og aðrar
byggingar um 200m2.
Skálanum er fyrst og fremst
ætlað að þjóna gangna-
mönnum en gæti nýst breiðari
hópi svo sem ferðamönnum,
eftir því sem fram kemur á
heimasíðu Húnavatnshrepps.
Verkefnið krefst þess að
aðalskipulagi Húnavatnshrepps
verði breytt og hefur þegar verið
auglýst en tillögurnar liggja
frammi á skrifstofu hreppsins
að Húnavöllum og á skrifstofu
skipulagsfulltrúa að Hnjúka-
byggð 3 á Blönduósi til 4. júní
nk. Þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta eru hvattir til
að gera athugasemdir fyrir
áðurnefndan tíma og skila á
skrifstofu skipulagsfulltrúa.
Í greinargerð verkefnisins
kemur fram að nýi skálinn muni
koma í stað tveggja eldri sem
verið hafa í notkun um áratuga
skeið en eru mjög illa farnir,
Öldumóðuskála og Álkuskála
sem munu í kjölfarið verða
lagðir niður.
Markmið aðalskipulags-
breytingarinnar er að bæta að-
stöðu og nýtingu svæðisins en
nýr gagnamannaskáli mun
þjóna gangnamönnum en gæti
nýst breiðari hópi svo sem
ferðamönnum, eins og fram
kemur í greinargerðinni. Þar
kemur ennfremur fram að
skálinn tengist vel við núverandi
vegakerfi og reiðleiðum og
staðsetningin góð sé tekið tillit
til staðsetningar annarra skála-
svæða en Húnavatnshreppur og
sveitarfélagið Skagafjörður eiga
tvo gangnamannaskála skammt
frá, Galtarárskála og Ströngu-
kvíslarskála sem mikið eru
notaði vegna hestaferða.
Í dag er ekki mikil umferð
ferðamanna um Grímstungu-
heiði og segir í greinargerðinni
að þessi nýja skálabygging sé
fyrst og fremst hugsuð til þess
að koma í stað gömlu skálanna
tveggja. Áætlaður heildarfjöldi
þeirra sem gista í skálanum yfir
árið er undir 500 manns.
Nánar má fræðast um
verkefnið á heimasíðu Húna-
vatnshrepps. /PF
Innskotsmyndin er úr greinargerð verkefnis við Gedduhöfða á Grímstunguheiði og
sýnir svæðið sem áætlað er að reisa gangnamannaskála. Gulu hringirnir umlykja
Galtarár- og Ströngukvíslarskála.
Gedduhöfði á Grímstunguheiði
Reisa á nýjan gangnamannaskála
Keppni í slaktaumatölti T2 í
Meistaradeild KS í hesta-
íþróttum fór fram í reiðhöllinni
Svaðastöðum þann 21. apríl sl.
Guðmar Freyr Magnússon og
Glymjandi frá Íbishóli sigruðu
með einkunnina 7.71 og fleiri
fjaðrir fóru í hatta
Íbishólsliðsins sem sigraði
liðakeppnina eftir keppni
kvöldsins.
Bjarni Jónasson landaði öðru
sætinu í slaktaumatöltinu með
hryssuna Þórhildi frá Hamarsey
með einkunnina 7,42 og í því
þriðja lentu Védís Huld
Sigurðardóttir og Hrafnfaxi frá
Skeggsstöðum með 7.33. Því
næst komu Fanney Dögg
Indriðadóttir og Trygglind frá
Grafarkoti með einkunnina
7.25, Finnbogi Bjarnason og
Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli með
einkunnina 7.13 og Mette
Mannseth og Blundur frá
Þúfum með einkunnina 6.04.
Eins og fram hefur komið
stóð lið Íbishóls uppi sem
sigurvegari í liðakeppninni í
slaktaumatöltinu og leiðir nú
keppnina þegar mótið er
hálfnað.
1. Íbishóll 150,2 stig
2. Þúfur 141,5 stig
3. Hrímnir 136,7 stig
4. Storm Rider 117,2 stig
5. Hofstorfan 106,5 stig
6. Uppsteypa 100,5 stig
7. Leiknisliðið 89,5 stig
8. Equinics 88 stig
Það er ekkert verið að tefja í
Meistaradeildinni því í kvöld er
komið að næstu grein þegar
keppt verður í fimmgangi. Þau
sem ætla sér að mæta í
reiðhöllina ættu að hafa í huga
að fólk sem ætlar að sitja saman
panti miða saman þar sem sæti
verða númeruð og einungis þeir
sem panta þannig fá sæti hlið
við hlið.
Fyrir hina sem vilja fylgjast með
á skjánum er hægt að nálgast
beina útsendingu á slóðinni
https://mdks.tindastolltv.com. /PF
Kampakátir liðsmenn Íbishóls eftir spennandi keppni Meistaradeildar KS í
hestaíþróttum í síðustu viku MYND af FB
Meistaradeild KS í hestaíþróttum
Íbishóll lið kvöldsins í slaktaumatölti
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, veitir viðurkenningunni viðtöku.
Viðurkenningarskjalið er hannað af Ólínu Sif Einarsdóttur, grafískum hönnuði ÓE
Design, sem búsett er á Sauðárkróki. MYND: SSNV.IS
Allir með Feyki!
Það er mikilvægt að halda úti fjölmiðli sem segir fréttir
og fjallar um fólk af Norðurlandi vestra. Það gerir Feykir.
Áskrifendur eru Feyki nauðsynlegir.
Er ekki upplagt að gerast
áskrifandi að góðu blaði
og fréttum af þínu fólki?
Hafðu samband í síma 455 7171
eða sendu póst á feykir@feykir.is BORGARFLÖT 1 | 550 SAUÐÁRKRÓKUR | SÍMI 455 7176 | FEYKIR.IS
17/2021 3