Feykir


Feykir - 28.04.2021, Blaðsíða 8

Feykir - 28.04.2021, Blaðsíða 8
FRÁ BYGGÐASAFNI SKAGFIRÐINGA Inga Katrín D. Magnúsdóttir skrifar Áshús og fyrirhugaðar breytingar í Áskaffi Breytingar eru í upp- siglingu hjá Byggðasafni Skagfirðinga en Auður Herdís Sigurðardóttir, sem rekið hefur Áskaffi á safnssvæðinu í Glaumbæ um árabil, hefur ákveðið að snúa sér að öðrum verkefnum. Áskaffi hefur verið til húsa í svokölluðu Áshúsi, sem flutt var á safnssvæðið í Glaumbæ árið 1991. Húsið var byggt í Ási í Hegranesi á árunum 1883-1887 af hjónunum Sigur- laugu Gunnarsdóttur (1828- 1905) og Ólafi Sigurðarsyni (1822-1908). Aðalsmiðir húss- ins voru, ásamt Ólafi bónda; Þorsteinn Sigurðsson trésmið- ur (f. 1859, d. í Vesturheimi) en hann varð einkum þekktur fyrir kirkjubyggingar sínar, m.a. Sauðárkróks- og Silfra- staðakirkju; Eiríkur Jónsson (1863-1948) í Djúpadal sem byggði fjölmörg timburhús í Skagafirði; Guðjón Gunn- laugsson (1862-1945) í Vatns- koti, trésmiður; Sveinbjörn Sveinsson (1855-1939) hleðslu- maður og bóndi í Hornbrekku á Höfðaströnd og Hallgrímur Friðfinnsson, smiður, sem lítið er vitað um.1 Hjónin Ólafur og Sigurlaug voru miklir framfarasinnar og unnu ötullega að ungmenna- uppfræðslu, með námskeiðs- haldi fyrir bæði drengi og stúlkur. Ýmsar tækninýjungar voru teknar í notkun í Ási, bæði er viðkomu heimilis- iðnaði og búskap. Þar á meðal má nefna vindmyllu til að mala korn, fótstiginn hverfi- Áshús komið í Glaumbæ. Allt húsið var metið, haldið í þá viði sem stóðu enn fyrir sínu, nýjum viðum splæst í þar sem þurfti. Klæðninguna þurfti að mestu að endurnýja, nema að austan. Gamla timburhúsið í Ási í Hegranesi. Myndin er tekin 1988. MYNDIR: BYGGÐASAFN SKAGFIRÐINGA Þegar viðgerðum og málun var lokið árið 1994 kviknaði í húsinu, sennilega út frá málningar- eða lakktuskum sem gleymst höfðu við stigapallinn. Skemmdir voru talsverðar, málning bráðnaði og viðir sviðnuðu og koluðust í norður og austurherbergjum og húsið fylltist af reyk og sóti. Þá þurfti að hefja viðgerðir að nýju. Húsið flutt frá Ási. Keyrt var Blönduhlíð til suðurs og Langholt til norðurs að Glaumbæ. stein, eldavél, spunavél og hraðskyttuvefstól. Árið 1869 boðaði Sigurlaug konur til fundar í Ási til að ræða stöðu kvenna, sjálfstæðis- og hrein- lætismál og lagði fundurinn grunninn að stofnun kven- félags Rípurhrepps, elsta kven- félags á Íslandi. Sigurlaug var mikilsvirt hannyrðakona og leiðbeindi fjölmörgum ungum konum í handverki á heimili sínu. Hún stofnaði fyrsta kvennaskóla héraðsins í Ási árið 1877. Í húsinu var búið fram til 1977, sem síðan stóð autt í rúman áratug. Áhugi fyrrver- andi safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, Sigríðar Sig- urðardóttur og Þórs Magnús- sonar, þjóðminjavarðar á hús- inu leiddi til þess að Magnús Jónsson (1943-2013) bóndi í Ási bauðst til að gefa byggða- safninu húsið ef það nýttist í Glaumbæ. Á árunum 1989- 1990 var húsið undirbúið fyrir flutning, hlaðinn var kjallari fyrir það á safnssvæðinu í Glaumbæ og snemma vors 1991 var því lyft á bíl og því ekið að Glaumbæ þar sem því var komið fyrir. Þá um vorið hófst viðgerð á húsinu, en það var Trésmiðjan Borg sem tók að sér verkið með Braga Skúlason í broddi fylkingar. Haldið var í alla þá húsviði sem hægt var og nýjum viðum splæst í þar sem þurfti, en utanhússklæðninguna þurfti að endurnýja að stórum hluta. Handavinnan var gífurleg og tók viðgerðin sinn tíma. Viðgerðum á húsinu lauk vorið 1994. Í júní það ár, þegar lokið var við að mála húsið, kviknaði í því sennilega út frá málningartuskum sem gleymst höfðu á stigapalli að austan. Eldurinn olli miklum skemmdum, austur- og norð- urherbergin sviðnuðu og húsið fylltist af reyk og sóti. Litlu mátti muna að allt húsið brynni. Aftur var hafist handa við viðgerðir og málningar- vinnu. Hver einasta spýta var skafin og gert við mestu skemmdirnar. Húsið var klárt á ný vorið 1995. Með opnun Áshúss skap- aðist betri aðstaða til að taka á móti gestum safnsins, fyrir safnbúð, skrifstofu safnstjóra og sýningar. Hluti miðhæðar var leigð út til kaffistofu- reksturs, en að honum stóðu nokkrar nágrannakonur sem kölluðu kaffistofuna Áskaffi. Safnstjóri fór fram á að veit- ingarnar myndu endurspegla 8 17/2021

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.