Feykir


Feykir - 28.04.2021, Qupperneq 9

Feykir - 28.04.2021, Qupperneq 9
tíðaranda hússins og tækju mið af góðgæti sem boðið var upp á á skagfirskum heimilum um og fyrir miðja 20. öld. Meðal kaffistofurekenda fyrstu árin var Ásdís Sigur- jónsdóttir á Syðra-Skörðugili sem sá um reksturinn til aldamóta 2000. Þá keypti A. Herdís Sigurðardóttir frá Stóru-Ökrum reksturinn. Herdís, eins og hún er alltaf kölluð, hefur rekið Áskaffi í hartnær tvo áratugi. Hún hefur boðið upp á ýmsar hefðbundnar kræsingar og góðgæti sem sannarlega hafa lífgað upp á matarupplifun safngesta. Í sumar verður fyrirkomu- lag kaffistofunnar með breyttu sniði. Vegna heimsfaraldurs Covid-19 og fyrirhugaðrar lokunar safnssvæðisins, þar sem borgað verður fyrir að- gang að safnssvæðinu, mun safnið sjálft reka kaffistofuna í Áshúsinu. Vert er að minna á að lögheimilisíbúar Akra- hrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar geta keypt að- gangsmiða á safnið sem gildir í eitt ár frá kaupum hans, óháð fjölda heimsókna. Stefnt er að því að halda áfram að bjóða upp á hefðbundið góðgæti og efla matartengda viðburði á vegum safnsins. Starfsfólk Byggðasafns Skag- firðinga þakkar Herdísi fyrir einstaklega gott og gefandi samstarf á liðnum árum og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi. - - - - - Heimildir: 1 Pistillinn byggir á texta Sigríðar Sigurðardóttur, úr bókinni Áshúsið 1989-2009 í Glaumbæ, sem var útgefin af Byggðasafni Skagfirðinga árið 2011. Ýmsar kræsingar og góðgæti sem boðið hefur verið upp á í Áskaffi, í anda húsmæðra í lok 19. aldar og fram eftir 20. öld. Starfsfólk Byggðasafnsins ásamt Herdísi Sigurðardóttur á sólríkum degi við Áshúsið. Frá vinstri: Berglind Þorsteinsdóttir, Herdís, Ylfa Leifsdóttir, Inga Katrín Magnúsdóttir og Hrönn Birgisdóttir. Áshúsið stendur reisulegt á safnssvæðinu í Glaumbæ, prýðilegur fulltrúi timburhúsa frá 19. öld. Glaumbæ. Kanínur eru fyrirtaks inni gæludýr, með frábæran persónuleika og geta verið mjög skemmtilegar. Þær eru líka mjög félags- lyndar en þær þurfa líka sitt einkapláss en vilja þó alltaf vera nálægt fjölskyldunni því þær hafa ríka þörf fyrir samskipti og hreyfingu og þurfa einnig að hafa eitthvað við að vera. Kanínur eru í eðli sínu mjög forvitnar skepnur sem finna sér leið að tölvuvírum, snúrum, húsgögnum, teppum og geta nagað og skemmt mikið í kringum sig. Pappakassi með tómum rúllum undan salernispappír eða annars konar pappírs- vörur er gott dæmi um fyrirtaks leikfang fyrir kanínur. Súsanna Guðlaug, dóttir Halldórs Gunn- laugssonar og Hildar Þóru Magnúsdóttur á Ríp 3 í Hegranesi, á eina kanínu sem hún skírði Snúbba og svarar hér nokkrum spurn- ingum um þennan krúttlega loðbolta. Hvernig eignaðist þú gæludýrið? Ég eignað- ist Snúbba eftir að hafa óskað mér gæludýrs í langan tíma og verið dugleg að þrífa herbergið mitt. Hann kom til okkar fyrir ári síðan frá dýragarðinum Hraðastöðum í Mosfellsdal. Hvað er skemmtilegast við gæludýrið þitt? Hvað hann er mjúkur og hress. Gaman að sjá hann skoppa um húsið hjá okkur hér á Ríp. Hvað er erfiðast? Það er erfiðast að geta ekki gefið honum nægjanlega útiveru á veturna, en hann fær þó stundum að vera úti með hænunum og það líkar honum vel. Ertu með einhverja sniðuga eða merkilega sögu af gæludýrinu? Einu sinni týndum við Snúbba. Við leituðum um allt hús en fundum hann hvergi. Svo þegar ég ætlaði út að leita og fór til að sækja skónna mína, þá fann ég hann liggjandi ofan í skónum mínum. Súsanna og Snúbbi. AÐSEND MYND Týndi Snúbba sem fannst svo á öruggum stað ÉG OG GÆLUDÝRIÐ | siggag@nyprent.is Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir | Kanínan Snúbbi 17/2021 9

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.