Feykir - 28.04.2021, Page 11
við og hrærið. Hrærið hvít-
lauknum, sólþurrkuðu tómötun-
um, rjómaostinum, rjómanum
og parmigiano reggiani út í.
Kryddið með fersku dilli, salti og
pipar. Í lokin blandið þið
spínatinu saman við og hrærið.
Leggið löngubitana í eldfast mót
og blandið saman við sósuna.
Dreifið rifnum osti yfir. Myljið
snakkið í matvinnsluvél eða setjið
í lokaðan poka og rúllið yfir það
með kökukefli og dreifið yfir
réttinn. Bakið í 18 - 20 mínútur
við 190°C eða þar til fiskurinn er
eldaður í gegn. Gott að bera þetta
fram með kartöflubátum eða
hrísgrjónum.
EFTIRRÉTTUR
Marengs í krukku
með Daim
1 marengsbotn
4 dl þeyttur rjómi
1/2 Daim súkkulaðipoki
3 msk. rjómi
smátt skorin jarðarber eftir
smekk
1-2 ástríðuávextir
fræ úr ½ granatepli
Aðferð: Byrjið á því að bræða
Daim súkkulaðið í potti ásamt 3
msk. rjóma við vægan hita og
kælið. Saxið smá af súkkulaðinu
áður til að skreyta með. Ef
blandan er of þykk þá er gott að
bæta smá rjóma saman við.
Þeytið rjómann. Brjótið mar-
engsinn í litla bita og dreifið í
botninn í krukku eða glasi. Því
næst setjið þið þeyttan rjóma,
ber, granateplafræin, ástríðu-
ávextina og svo hellið þið bræddu
Daim súkkulaði. Þetta endurtakið
þið aftur og endið svo á því að
skreyta með saxaða Daim
súkkulaðinu.
Verði ykkur að góðu!
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR :Bekkur.
Sudoku
Krossgáta
FEYKIFÍN AFÞREYING
Feykir spyr...
Hvað
gerðir þú
skemmtilegt
um helgina?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : klara@nyprent.is
„Vinna.“
Róbert Hlynur Sverrisson
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
Daffy Duck, eða Oddur Önd eins og hann hefur verið íslenskaður, er
teiknimyndapersóna sem kemur fyrir í þáttum eins og Looney Tunes og
Merrie Melodies frá Warner Bros samsteypunni. Millinafn Daffy Duck er
Dumas og ótrúlegt, en kannski satt, þá á hann ekkert íslenskt millinafn.
Tillaga Feykis er Ómar; Oddur Ómar Önd.
Tilvitnun vikunnar
Ég er alltaf tilbúinn til að læra þó svo
að mér líki ekki alltaf að vera kennt.
– Winston Churchill
„Skrapp með góðum vinum
í sund á Blönduósi og
fékk mér kaffi og tertu á
uppáhalds kaffihúsinu mínu,
Húnabúð.“
Guðbjörg Ósk Valgarðsdóttir
„Heyrðu, ég kom
heim af sjónum á
laugardagskvöldið og tók
svo slakann sunnudag.“
Jón Anton Valdimarsson
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Stefnir í rómantískt kvöld.
F
„Já, ég kíkti í sveitina og svo
bara að njóta blíðunnar og
vinna í garðinum.“
Sigríður Ósk Bjarnadóttir
Ofnbakaður fiskréttur
og krukkugotterí
Það er alltof sjaldan sem við borðum fisk á mínu heimili og
ákvað ég því að koma með einn mjög góðan sem allir á
heimilinu borða. Þá fann ég einn girnilegan eftirrétt sem mig
langar til að prufa um helgina, nema ég skipti út namminu í
Daim því mér þykir það svo agalega gott. Báðar þessar upp-
skriftir koma af heimasíðunni gerumdaginngirnilegan.is
AÐALRÉTTUR
Ofnbökuð langa
600 g langa (einnig gott að nota
t.d. þorsk eða ýsu)
ólífuolía
250 g sveppir
1 dl blaðlaukur, smátt saxaður
½ -1 dl hvítvín
1-2 hvítlauksrif, pressað eða
rifið
200 g sólþurrkaðir tómatar,
skornir í strimla
1 hreinn Philadelphia
rjómaostur
2 dl rjómi
1 dl parmigiano reggiano
1-2 msk. ferskt dill, smátt skorið
salt & pipar
100 g spínat
1 dl mozzarella ostur
6 dl mulið snakk)
Aðferð: Byrjið á því að skera
lönguna í bita og kryddið með
salti og pipar. Skerið sveppi og
blaðlauk smátt og steikið upp úr
ólífuolíu. Bætið hvítvíninu saman
( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is
Marengskrukka með Daim. MYND AF NETINU
Ofnbökuð langa. MYND AF NETINU
17/2021 11
Vísnagátur Sveins Víkings
Þreyttur hvílist honum á.
Hafður til skrauts á kjóla.
Inni í búri eg segginn sá.
Og svo er hann kominn í skóla.