Feykir - 28.04.2021, Page 12
Stigabergið beggja
vegna Tröllaskarðs [í
Hegranesi] er talið
mikill álfabústaður.
Árni Gunnarsson
fyrrum bóndi í Kefla-
vík sagði að í berginu
sunnan við Tröllaskarð
væri ríki svartálfa sem
næði suður að svonefndri Kvíalaut sem er skora
gegnum bergið út og upp af fjárhúsunum í Keflavík.
En í Stigaberginu norðan við skarðið væri heilt kon-
ungsríki hvítálfa og nokkur ófriður stundum milli
þessara álfabyggða.
Það var eitt vor á sauðburði að Árni í Keflavík var
um kvöldtíma að ganga við lambfé úti í Tröllaskarði þar
sem vegurinn liggur nú í gegn. Þar var þá ein ærin að
búast til og Árni ákvað að bíða eftir að hún bæri. Þá
syfjaði hann skyndilega svo að hann sofnaði. En innan
stundar kenndi hann vanlíðunar og vaknaði að honum
fannst. Heyrði hann þá talanda hjá sér, einhverjar þrjár
verur og vildi ein þeirra gera árás og klekkja á honum
en hinar tvær sögðu hvor eftir annarri: „Það er ekki
hægt, hann er svo vel varinn. Við skulum láta hann í
friði.“ Opnaði Árni þá augun og sá þrjá svartálfa aftan
við höfuð sér þar sem hann lá í lynginu. Þegar þeir sáu
hann opna augun og veita sér eftirtekt hurfu þeir í
klettinn fyrir ofan. /Byggðasaga Skagafjarðar
Byggðasögumoli | palli@feykir.is
Álfabyggð í
Stigabergi
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
17
TBL
28. apríl 2021 41. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Covid-19 hefur enn klærnar í samfélaginu þó vel
gangi að bólusetja landsmenn. Nokkur hópsmit hafa
að undanförnu verið mikið í fréttum og nú síðast
hefur athyglin beinst að Þorlákshöfn. Lið Tindastóls
og Þórs frá Þorlákshöfn mættust í Síkinu sl. sunnu-
dag og eflaust hafa einhverjir velt fyrir sér hvort smit
hafi mögulega borist norður yfir heiðar.
Stefán Vagn Stefánsson, formaður Almannavarna-
teymis Norðurlands vestra, segir ekki vitað um neina
tengingu á milli hópsmitsins og leikmannahóps Þórs
og því ekki ástæða til ótta. „Hinsvegar er alltaf mögu-
leiki á smiti burtséð frá þessu og því mikilvægt að fara
varlega og fylgja fyrirmælum almannavarna um
sóttvarnir,“ sagði Stefán Vagn í samtali við Feyki.
Feykir spurði Stefán einnig hvort ástæða þætti til að
senda leikmenn Tindastóls í skimun og hverjir tækju
ákvarðanir um slíkt. „Það er smitrakningarteymið sem
heldur utan um hverjir eru sendir í sóttkví og test.
Engin slík beiðni hefur komið eftir umræddan leik mér
vitanlega svo væntanlega er ekki nein tenging á milli
hópsmitsins og leikmannahóps Þórs,“ segir Stefán.
Það er því ekki ástæða til að óttast en fólki er að
sjálfsögðu bent á að halda áfram að fara að öllu með
gát; nota grímurnar, spritta hendur og passa upp á
fjarlægðarmörkin. /ÓAB
Förum áfram varlega
Skíðasvæði Tindastóls
Vel heppnað Snocross-
mót í Tindastólnum
Snocross-mót fóru fram á
skíðasvæðinu í Tindastóli nú
um helgina og var keppt bæði
laugardag og sunnudag.
Mótshald tókst vel og
aðstæður voru fínar á
laugardag en þoka setti strik í
reikninginn á sunnudegi. Það
var Vélhjólaklúbbur Skaga-
fjarðar sem hélt mótið með
góðri aðstoð frá sleðaköppum
frá Akureyri.
Keppendur voru mjög
ánægðir með hvernig til tókst,
brautin góð og ekkert vesen.
Allur ágóði af keppnishaldinu
rann til skíðadeildar Tindastóls
þar sem félagar aðstoðuðu við mótshaldið. Báða
dagana sýndi TindastóllTV frá keppninni beint en
útsendingarnar er nú hægt að skoða á YouTube-
rás VJ mynda.
Úrslit í keppni laugardags voru á þessa leið:
Sport-flokkur
1. sæti Bjarki Jóhannsson
2. sæti Axel Darri Þórhallsson
3. sæti Elvar Örn Jóhannsson
Pro Sport
1. sæti Einar Sigurðsson
2. sæti Hákon Birkir Gunnarsson
3. sæti Bergsveinn Ingvar Friðbjörnsson
Pro Open
1. sæti Bjarki Sigurðsson
2. sæti Baldvin Þór Gunnarsson
3. sæti Ívar Már Halldórsson
Hulda Jónasdóttir
Úrslit í keppni sunnudags voru á þessa leið:
Sport-flokkur
1. sæti Bjarki Jóhannsson
2. sæti Axel Darri Þórhallsson
3. sæti Elvar Örn Jóhannsson
Pro Sport
1. sæti Einar Sigurðsson
2. sæti Hákon Birkir Gunnarsson
3. sæti Bergsveinn Ingvar Friðbjörnsson
Pro Open
1. sæti Bjarki Sigurðsson
2. sæti Ívar Már Halldórsson
3. sæti Baldvin Þór Gunnarsson
Guðný Sif Gunnarsdóttir tók þessar fínu myndir á
keppnissvæðinu í Tindastólnum í blíðunni á
laugardeginum. /ÓAB & KBS
COVID-19 | Norðurland vestra