Feykir


Feykir - 25.08.2021, Page 2

Feykir - 25.08.2021, Page 2
Það er sagt að enginn fæðist með fordóma heldur séu þeir annað hvort innprentaðir í fólk vegna utanaðkomandi áhrifa eða viðkomandi einstaklingar tileinki sér þá á einhverjum forsendum. Fordómar birtast í margs konar myndum og ekki gera allir sér grein fyrir því hversu djúpstæðir þeir geta verið í hverjum og einum. Fordómar hafa alltaf fylgt manninum og sjálfsagt bæði bjargað fólki eða fargað. Flestir þekkja fordóma sem andúð á öðru fólki, hegðun þess, útliti, trúarskoðun eða kynþætti svo eitthvað sé nefnt. Mörg mannskæð stríð og hryðjuverk hafa átt sér stað, sprottin upp úr fordómum og fáfræði og í Gamla testamentinu má m.a. sjá mýmörg dæmi um fordóma sem enn eimir eftir af í hinni víðri veröld, svo ekki sé talað um ágrein-ing milli múslima og nærtækt að taka ágreining súnníta og sjíta sem dæmi. En fordómar snúast ekki bara um fólk eða ættbálka. Á vísindavefnum segir að fordómar séu þeir dómar sem við fellum án þess að hugsunin fái að gerjast eða þegar aðeins ein hlið máls hefur verið skoðuð. Fordómar séu oft skilgreindir sem andstæða gagnrýninnar hugsunar. Þetta hljóta allir að kannast við úr sínum ranni og við eigum eflaust eftir að sjá mikið af næstu vikur eða mánuði úr pólitíkinni. En hví ætli ég sé að spá í fordóma. Kveikjan er ekki merkileg. Ég var að skoða Facebook og sá að Vestfirðingur einn prísaði sig sælan að heimaslóðir hans væru laus við starrann, þann ófétisfugl, sem hreiðraði um sig í híbýlum fólks og væri algert flóabæli. Þetta minnti mig á þegar fuglinn sá var að gera sig heimakominn á Sauðárkróki á sínum tíma og ófagrar lýsingar hafði ég heyrt og lesið um þann varg. Mér leist satt að segja ekkert á þetta landnám og vildi helst halda honum í skefjum með róttækum aðferðum. Núna þykir mér vænt um starrann. Ég hef aldrei lent í neinu veseni með hann þó hann sæki sér æti í garðinum, sitji á sjónvarpsgreiðunni og skíti svalirnar út. Ég hef ekki hugmynd um hvort hann hafi gert sér hreiður við húsið mitt eða hvort flóin sem bítur mig sé ættuð af honum eða maríuerlunni, sem mér skilst að sé ekki síðri flóahýsill, sem einnig skoppar í kringum heimili mitt. Hann er einn af fáum fuglum sem nennir að draga fram lífið hér á Fróni á veturna og oft gleður hann mig með skemmtilegum eftirhermum. Hver hefur ekki heyrt hann herma eftir lóu til dæmis? Ég man nú ekki hvenær starrinn settist að á Króknum en ímynda mér svona 20 ár til að segja eitthvað. Á þeim tíma hef ég alla vega lagt niður fordóma gagnvart þessum litla vini. Það á einnig við um hrafninn sem ég man eftir að var talinn skaðræðisskepna til sveita og skrattans geitungarnir, sem þó hafa aldrei stungið mig. En það er efni í annan pistil. „Burtu með fordóma og annan eins ósóma,“ sungu Pollapönkararnir forðum. Dæmum ekki fyrirfram það sem við ekki þekkjum. Öflum okkur vitneskju og tökum skynsamlegar ákvarðanir er varða náungann og okkur sjálf. Góðar stundir. Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Fljúgandi fordómar Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum AFLATÖLUR | Dagana 15. til 21. ágúst á Norðurlandi vestra Strandveiðitímabilið á enda SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Hafrún HU 12 Dragnót 7.458 Hafrún HU 13 Handfæri 5.034 Hjalti HU 313 Handfæri 2.478 Hjördís HU 16 Handfæri 1.232 Hrund HU 15 Handfæri 2.960 Jenny HU 40 Handfæri 2.245 Kambur HU 24 Handfæri 2.375 Kópur HU 24 Handfæri 1.733 Kristín HU 168 Handfæri 1.216 Loftur HU 717 Handfæri 2.843 Ólafur Magnússon HU 54 Handfæri 1.580 Rán SJ 307 Landbeitt lína 8.331 Smári HU 7 Handfæri 634 Steini HU 45 Handfæri 1.572 Svalur HU 124 Handfæri 1.097 Sæunn HU 30 Handfæri 2.249 Særif SH 25 Lína 19.021 Sævík GK 757 Lína 4.874 Viktor Sig HU 66 Handfæri 1.964 Viktoría HU 10 Handfæri 2.046 Víðir EA 432 Handfæri 836 Von HU 170 Lína 17.122 Alls á Skagaströnd 117.038 HVAMMSTANGI Harpa HU 4 Dragnót 8.509 Alls á Hvammstanga 8.509 SAUÐÁRKRÓKUR Álborg SK 88 Handfæri 712 Drangey SK 2 Botnvarpa 204.196 Gammur SK 12 Þorsk/kolafisknet 1.081 Gjávík SK 20 Handfæri 2.392 Hafborg SK 54 Þorskfisknet 4.326 Helga María RE 1 Botnvarpa 139.248 Kristín SK 77 Handfæri 1.935 Maró SK 33 Handfæri 2.261 Málmey SK 1 Botnvarpa 142.760 Silver Framnes NO 999 Rækjuvarpa 854.690 Skvetta SK 7 Handfæri 2.016 Steini G SK 14 Handfæri 1.593 Tara SK 25 Handfæri 566 Vinur Sk 22 Handfæri 1.590 Alls á Sauðárkróki 1.359.366 SKAGASTRÖND Alda HU 112 Handfæri 6.303 Auður Hu 94 Handfæri 2.627 Bergur Sterki HU 17 Handfæri 1.753 Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 2.658 Blíðfari HU 52 Handfæri 2.366 Blær HU 77 Handfæri 1.423 Bragi Magg HU 70 Handfæri 1.623 Dagrún HU 121 Handfæri 2.411 Elfa HU 191 Handfæri 2.750 Greifinn SK 19 Handfæri 2.224 Þann 20. ágúst enduðu strandveiðarnar og má segja að veiðin hafi farið fram úr björtustu vonum hér á Norðurlandi vestra. Á vef smá- bátaeigenda er einnig sagt frá því að veiðin hafi aldrei verið meiri en í ár og var heildaraflinn 12.146 tonn á öllu landinu og þar af var þorskur alls 11.159 tonn. Verðmæti aflans er um fjórir milljarðar. Agla ÁR 79 var aflahæsti báturinn á öllu landinu með 51.115 kg en aflahæstu bátarnir á Norðurlandi vestra voru Loftur HU 717 með 37.716 kg, Blíðfari HU 52 með 36.139 kg og svo Auður HU 94 með 35.136 kg. Í síðustu viku fóru 27 bátar á strandveiðar frá Skagaströnd og var aflahæsti báturinn Alda HU 112 með 6.303 kg. Alls lönduðu strandveiðibát- arnir rúmum 60 tonnum. Þrír bátar voru á línu- veiðum, Særif SH 25, Sævík GK 757 og Von HU 170, með rúm 41 tonn saman. Rán SH 307 var eini báturinn á veiðum með landbeitta línu og land- aði 8.331 kg. Þá var Hafrún HU 12 eini báturinn sem var á dragnótarveiðum og landaði alls 7.458 kg. Alls var landað 117.038 kg í 79 löndunum á Skagaströnd. Á Króknum voru átta bátar á strandveiðum í síðustu viku og voru með rúm 13 tonn, aflahæstur var Gjávík SK 20 með 2.392 kg. Togararnir Drangey, Helga María og Málmey lönduðu samtals 486.204 kg en þar átti Drangey SK 2 vinninginn með 204.196 kg. Gammur SK 12 og Hafborg SK 54 voru á veiðum með þorskfisk- eða kolanet og lönduðu saman alls 5.407 kg. Þá landaði Silver Framnes 854.690 kg af rækju í Sauðárkrókshöfn og var þá heildaraflinn alls 1.359.366 í 33 löndunum. Enginn bátur landaði á Hofsósi en einn bátur var á dragnótaveiðum á Hvammstanga, Harpa HU 4, með alls 8.509 kg. Alls var landað 1.484.913 kg á Norðurlandi vestra í síðustu viku. /SG Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is | Sæþór Már Hinriksson, bladamadur@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 615 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 755 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Vegagerðin Skagfirskir verktakar með lægsta tilboð í Þverárfjallsveg Í síðustu viku opnaði Vegagerðin tilboð í bygg- ingu nýs vegar á milli Blönduóss og Skaga- strandar eða nánar tiltekið Þverárfjallsvegar (73) í Refasveit og Skagastrandarvegar (74) um Laxá. Tilboðin reyndust þrjú; frá Ístaki hf. í Mosfellsbæ, Borgarverki ehf. í Borgarnesi og Skagfirskum verktökum ehf. á Sauðárkróki sem voru með lægsta tilboðið sem var um 100 mill- jónum hærra en áætlaður verktakakostnaður. Áætlaður kostnaður var kr. 1.391.123.414 en tilboð Skagfirskra verktaka ehf. var 7,6% yfir þeim kostnaði eða kr. 1.496.400.000. Tilboð Ístaks og Borgarverks voru um og yfir 17% hærri en áætlaður verktakakostnaður Vegagerðarinnar. Um er að ræða byggingu nýs Þverárfjallsvegar í Refasveit frá frá Hringvegi norðan Blönduóss að núverandi Þverárfjallsvegi, um 8,5 km að lengd og nýs Skagastrandarvegar frá nýjum Þverárfjallsvegi að Skagastrandarvegi norðan Höskuldsstaða, um 3,3 km að lengd. Á Skagastrandarveg skal byggja nýja 106 m langa brú á Laxá í Refasveit. Brúin er í þremur höfum, steinsteypt og eftirspennt. Einnig skal byggja nýjar tengingar og heimreiðar, samtals um 4,5 km að lengd. Margir hafa beðið spenntir eftir þessum nýja vegi sem leysir af hólmi vegarkafla sem mörgum finnst leiðinlegur og jafnvel hættulegur á milli Blönduóss og Skagastrandar en vegurinn er bæði mjór og hæðóttur. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. nóvember 2023. /ÓAB Loftur HU 717 var aflahæstur strandveiðibáta á svæðinu. MYND: HALLDÓR GUNNAR ÓLAFSSON 2 32/2021

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.