Feykir


Feykir - 25.08.2021, Qupperneq 8

Feykir - 25.08.2021, Qupperneq 8
 Heilir og sælir lesendur góðir. Er að veltast í hausnum á mér ágæt vísa eftir Sigurbjörn Jóhannsson í Fótaskinni, man alls ekki hvort ég hef birt hana áður en segjum þá að aldrei sé góð vísa of oft kveðin. Bráðum kveð ég fyrða og fljóð ferðar til ei hlakka. En kærleiks dyggð og kynni góð klökkur öllum þakka. Finn í dóti mínu þrjár ágætar vísur sem ortar eru í kringum 1977, man því miður ekki hvaða pólitík ríkti þá, er merkt við þær að höfundur sé Jón litli. Á þá set ég allt mitt traust Einar, Geir og Pétur. Íslands trosið endalaust enska trúin étur. Framsóknar ég manninn met meir en nokkuð annað. Af hans beinum aldrei et illa steikt og hannað. Framsóknar ég fylli disk og færi þér hann Pétur. Minna ket en meiri fisk melta iðrin betur. Einhverju sinni upplýsti Davíð Hjálmar Haraldsson að hann gengi næstum daglega um svokallaðar Krossanesborgir. Kæmi þá andinn oft yfir menn og vísur yrðu til. Er þar hægt að mæta mörgum skokkurum og gaman að taka eftir hlaupalagi þeirra. Eitt sinn er hann mætti skokkara á hraðferð varð þessi vísa til. Sé ég einn er meta má mann á skokki. Hann er eins og hestur á höstu brokki. Dag einn þegar mjög hlýtt var í veðri og sumir hlauparar skemmtilega léttklæddir, verður þessi til. Hjón þar ein með stóran stert stílnum óðar vel ég kunni. Slettist vinstra brjóstið bert en blöktu hár í rassskorunni. Nú stendur yfir sá tími er laxveiðimenn eltast við sýnda veiði en ekki gefna. Einhverju sinni er þeir voru við veiðar í Sandá í Þistilfirði, Arngrímur Jóhanns- son, flugstjóri, og Ólafur G. Einarsson, alþingismaður, kom til þeirra bóndinn á Gunnarsstöðum, Jóhannes Sigfússon og lét þá heyra eftirfarandi vísu. Misjafnt hefur maður hvur af manndómsþreki vöndu. Alltaf fiskar Arngrímur en Ólafur fær ei bröndu. Öðru sinni er bóndinn frétti af þeim félögum við ána varð þessi til. Þetta er orðið eintómt baks ellin þessu veldur. Vísnaþáttur 790 ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is Arngrímur fékk engan lax Ólafur ekki heldur. Ein vísa kemur hér enn eftir Jóhannes og er hún gerð er þeir félagar voru þar að veiðum og Arngrími skrikaði fótur og féll í ána. Ólafur stóð nokkru neðar og hló dátt á meðan félaginn var að komast upp úr ánni. Drjúga stund hans drukknun beið dauðinn mátti vægja. Er hann loksins upp úr skreið Ólafur hætti að hlægja. Ýmislegt hefur enn rifjast upp af skrýtnum kveðskap Ólafs Bjarnasonar frá Stafni. Á yfirferð sinni um framhluta gamla Lýtingsstaðahrepps varð hans álit eftir- farandi á Einari Björnssyni, bónda í Svartárdal. Einars hausinn illa fraus í vetur með fálkanefið furðu svert. Fékk hann kvefið merkilegt. Um Jón bónda á Hofi, sem ég held að sé í Vesturdal og átti konu sem hét Valgerður, var þessi ort. Jón á Hofi jafnan vofu líkur Hakkar grút úr hámeri. Hann vill stúta Valgerði. Bóndinn á Írafelli, Björn Sigfússon, fær þessa. Er hann Bjössi eins og þjösni í framan yrkir sálma undrasnar. Og vill fálma í stúlkurnar. Heim kominn aftur á vestursíðuna liggur leiðin í Bollastaði og fær sá ágæti bóndi Pétur Pétursson þessa. Pétur bolli prúðum skolla líkur yfir svamlar ýsugeim. Eins og sá gamli hér um heim. Oft var fjör á dansiböllum hér áður fyrr, næsta vísa mun ort á einu slíku. Komst hún á kreik kringum 1966 án þess að höfundar væri getið, var reyndar af mörgum talin eftir grínskáldið Böðvar Guðlaugsson. Flott hringhenda þar á ferð. Allra handa örvar þrá asnablandan veika. Úr því fjandinn eiga má allan grandvarleika. Gott er að enda með annarri hringhendu sem komst á kreik um svipað leyti og einnig talin eftir Böðvar. Ég þótt fátt og alltof smátt ætti þrátt að bjóða. Taka máttu mig í sátt mál er að hátta góða. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi Sími 452 7154 Málþing í Kakalaskála um helgina Heimur Jóns og Helgu Næstkomandi laugardag, 28. ágúst, verður haldið málþing um Jón Arason, Hólabiskup, en hann var síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi fyrir siðaskipti, og Helgu Sigurðar- dóttur, fylgikonu hans. Málþingið átti að fara fram í fyrrasumar en var frestað vegna Covid. Jón var skáld og athafnamaður mikill og flutti hann m.a. fyrstu prentsmiðjuna á Íslandi til Hóla. Hann var tekinn af lífi ásamt tveimur sonum sínum á haustdögum 1550 í Skálholti. Vorið eftir komu dönsk herskip til landsins með það að markmiði að bæla niður alla mótspyrnu og taka meðal annars Hólastól í sína umsjá. Þegar fregnir af ferðum danskra bárust til Hóla fór Helga í felur í Blönduhlíðarfjöllum og endaði í mosalituðu tjaldi í Húsgils- dragi í hlíðum Glóðafeykis. Þar var Helga að sögn lungann úr sumrinu ásamt Guðrúnu Magnúsdóttur, sonardóttur sinni. Það var fyrir réttu ári síðan að minningarplatta um Helgu Sigurðardóttur var komið fyrir í Húsgilsdragi af áhugahópi um sögu og afdrif Helgu en mál- þingið sem nú er á dagskrá féll niður þá vegna Covid. Málþingin verið í sjö ár í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar „Þetta málþing átti að vera í fyrra, daginn eftir að farið var í Húsgilsdrag. Við tókum þann pól í hæðina að fjalla um siðaskiptin og þau biskupshjón. Minningarplatti um Helgu Sigurðardóttur, fylgikonu Jóns Arasonar á Hólum, í Húsgilsdragi suðvestur af Flugumýrardal, við suðurenda Glóðafeykis í Blönduhlíð í Skagafirði. MYND: PF Það eru einhverjar smábreyt- ingar frá því í fyrra en Guðrún Norðdal hefur bæst í hópinn og er nú ekki slæmt,“ segir Sigurður Hansen, listabóndi á Kringlu- mýri og eigandi Kakalaskála. „Þessi málþing hafa verið í ein sjö ár í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar. Við höfum verið meira tengd Sturlunga- tímanum en mér finnst allt í lagi að teygja sig aðeins fram í aldirnar.“ Sigurður segir að ef sótt- varnareglur herðist og setji mál- þingið í hættu á ný sé ráðgert að vera með dagskrána í beinu streymi á netinu. Málþingið hefst klukkan 14 með erindi Árna Heimis Ingólfssonar, tónlistarfræðings, en hann fjallar um kirkjusöng á Íslandi á dögum Jóns Arasonar. Eftir honum mun Ásgeir Jóns- son, seðlabankastjóri, segja frá biskupi, manninum á bak við mýtuna og Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, flytur erindi sitt; Kringum kvæði Jóns Arasonar. Eftir kaffihlé stígur Jón Karl Helgason á stokk og ræðir um helga dóma biskups og loks Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, og segir frá ævi og störfum Helgu Sigurðardóttur. Þann 18. ágúst sl. voru liðin tvö ár frá opnun sögu- og listasýningar frá átakatímum 13. aldar í Kakalaskála. Þrátt fyrir Covid takmarkanir hefur tekist að halda sýningunni opinni á mesta ferðamannatímanum en lokað var í byrjun ágúst í fyrra en að sögn Sigurðar Hansen var því lokað í þessari viku þetta sumarið. „Það er að verða fátt af fólki núna á svæðinu þannig að ég ætlaði að loka núna eftir helgina. Það var ágætlega sótt í sumar, sérstaklega í júlí, og gestir komið flesta daga þangað til í gær, þá kom enginn,“ sagði Sigurður í samtali við Feyki sl. föstudag. „Það hefur verið einhver reytingur alla daga og í júlí var talsvert mikið.“ /PF 8 32/2021

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.