Feykir - 08.09.2021, Blaðsíða 2
Öðruvísi mér áður brá! Nú hefur Kári Stefánsson, hinn eini
sanni, gefið það upp að hann vilji afnema allar
fjöldatakmarkanir heilbrigðisráðherra sem nú eru í gildi þar
sem þær séu illverjanlegar. Þetta
skýtur nokkuð skökku við frá fyrri
yfirlýsingum fræðimannsins sem oft
hefur gagnrýnt stjórnvöld fyrir að
ganga ekki nógu langt í Covid-
reglunum.
Hann segir nú að erfitt sé að sýna
fram á að smitandi einstaklingur
myndi smita fleiri í 2000 manna sam-
komu en 200 manna. „Leyfum leik-
húsum og tónleikasölum að nýta öll sín sæti með þeim skil-
yrðum að það yrði hleypt inn og út í hollum, engin hlé og gestir
sætu með sóttvarnargrímur,“ skrifaði Kári í aðsendri grein á
Vísi fyrr í vikunni.
Það vakti athygli í vor þegar Kári spáði því að þann 13.
október yrði búið að aflétta öllum Covid-aðgerðum á landinu.
Sagði hann í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar að þegar búið yrði
að bólusetja 200-250 þúsund Íslendinga ætti að vera óhætt að
ætla að lífið verði komið í nokkurn veginn eðlilegt horf.
Samkvæmt Covid.is í gær voru fullbólusettir á Íslandi orðnir
alls 264.629.
Það er ýmislegt sem maður er hugsi yfir. Margir sem horft
hafa á landsleiki Íslands í fótbolta undanfarið hafa klórað sér í
kollinum yfir fólksskipan í áhorfendastúku Laugardalsvallar
en þar sitja stuðningsmenn í einni kös í sóttvarnarhólfum
meðan jafn stór svæði eru algerlega mannlaus. Skondið á að
horfa svo ekki sé meira sagt. En svona er þetta bara. Reglurnar
eru settar og við hlýðum og bíðum eftir því að þetta Covid
hverfi fyrir fullt og allt.
En þar sem við erum stödd í þessum óvinsæla faraldri má
minnast á að ekki er um einstakan atburð að ræða því
mannkynið hefur þurft að glíma við sex heimsfaraldra frá
upphafi 20. aldar. Á Vísindavefnum segir að tvennt eigi þeir
sameiginlegt: Þeir eru allir vegna veirusýkinga og bárust allir
til manna úr dýrum. Því miður segja sumar spár að mannkynið þurfi að lifa við
þetta í framtíðinni líkt og með fugla- eða svínaflensuna. Sú
síðarnefnda getur verið ansi slæm og herjaði á Íslandi 2009 líkt
og enginn man í dag. Þar veiktust margir, talið að um 50 til 60
þúsund manns hafi smitast, fjöldi lagður inn á bráðamóttöku
og einhverjir létust. Leiðinlegt að enda á neikvæðu nótunum
en sagt var frá því fyrir ári síðan að ný svínaflensa í Kína gæti
orðið að heimsfaraldri. Krossum fingur og vonum að svo verði
ekki.
Páll Friðriksson,
ritstjóri
LEIÐARI
Heimsfaraldur handan við hornið
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
AFLATÖLUR | Dagana 29. ágúst til 4. september á Norðurlandi vestra
Átta togarar á botnvörpuveiðum
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Dúddi Gísla GK 48 Landbeitt lína 7.468
Hafrún HU 12 Dragnót 31.432
Hulda GK 17 Landbeitt lína 33.424
Kristinn HU 812 Landbeitt lína 40.120
Rán SH 307 Landbeitt lína 6.379
Steinunn SF 10 Botnvarpa 64.055
Sævík GK 757 Landbeitt lína 24.734
Þingnes SF 25 Botnvarpa 37.776 Alls á Skagaströnd 316.358
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 20.436 Alls á Hvammstanga 20.436
SAUÐÁRKRÓKUR
Akurey AK 10 Botnvarpa 98.085
Arnar HU 1 Botnvarpa 220.521
Drangey SK 2 Botnvarpa 156.657
Gammur SK 12 Þorskfisk/kolanet 154
Geir ÞH 150 Dragnót 6.087
Málmey SK 1 Botnvarpa 146.913
Onni HU 36 Botnvarpa 16.524
Viðey RE 50 Botnvarpa 160.857
Alls á Sauðárkróki 805.798
SKAGASTRÖND
Bárður SH 81 Dragnót 70.970
Þegar tölur síðustu viku eru skoðaðar þá er
gaman að sjá hversu margir togarar/bátar
landa á norðurlandi vestra eftir veiðar með
botnvörpu. En alls voru átta togarar/bátar sem
lönduðu á Króknum alls 805.798 kg í tíu
löndunum og var Arnar HU 1 aflahæstur með
220.521 kg.
Á Skagaströnd voru níu bátar á veiðum með
alls 316.358 kg í 27 löndunum og var aflahæsti
báturinn Steinunn SF 10 á botnvörpuveiðum með
64.055 kg.
Þá landaði einungis einn bátur á Hvamms-
tanga, Harpa HU 4, alls 20.436 kg í þrem löndunum
og var hún á dragnótarveiðum. Heildarafli á
Norðurlandi vestra var 1.142.592 kg. /SG
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 615 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 755 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Derringur í Miðgarði
Náttúran túlkuð með dansi
Skapandi sviðslistavinnustofa
fyrir krakka í 4.-10. bekk
verður haldin í Menningar-
húsinu Miðgarði í Varmahlíð
13.-17. september og ber
nafnið Derringur. Dansarar og
tónlistarfólk munu leiða þátt-
takendur áfram í að skapa
hreyfingu í gegnum leiki og
skapandi myndir. Námskeiðið
er þátttakendum að
kostnaðarlausu.
Derringur er lifandi dans-
vinnustofa leidd af dönsurunum
Snædísi Lilju Ingadóttur og
Valgerði Rúnarsdóttur auk tón-
listarmannsins Sveinbjarnar
Thorarensen sem starfar undir
nafninu Hermigervill.
Í tilkynningu frá Tónadansi,
samstarfsaðila Derrings, kemur
fram að innblástur vinnustof-
unnar verður sóttur í árstíðirnar
fjórar þar sem þátttakendur
munu ferðast um þær og skapa
hreyfingar í gegnum leiki og
lifandi myndir. Fá þeir að upplifa
hvernig dansinn túlkar vetur
og vor, snjó og rok, eldgos og
jökulsár og þar fram eftir
götunum.
Kristín Halla Bergsdóttir,
skapari Tónadans, segir vinnu-
stofuna sjálfstætt verkefni sem
Derringur heldur á landsvísu.
„Derringur hafði samband við
okkur í Tónadansi og úr varð
samvinna en við höfum verið að
fá til okkar dansara og sýningar í
gegnum árin. Okkur í Tónadansi
fannst þetta algjörlega tilvalið
verkefni fyrir haustið og í leið-
inni að auka áhuga ungs fólks á
mismunandi nálgun á sviðslist-
um, dansi, hreyfingu og tónlist.“
Kristín segir að þátttakendur
megi búast við einhverju mjög
svo nýju og spennandi enda
topp dansarar að kenna og frá-
bær tónlistarmaður.
„Þetta er frábært tækifæri
fyrir börn og ungmenni til að
kynnast listum á annan hátt.
Þetta er öllum að kostnaðar-
lausu svo það er um að gera að
skella sér á námskeið. Ég hvet
líka foreldra til að kynna nám-
skeiðið fyrir börnum sínum,“
segir Kristín Halla. /PF
Dansararnir Snædís Lilja Ingadóttir og Valgerður Rúnarsdóttir.
MYNDIN TEKIN AF FB-SÍÐU LIST FYRIR ALLA
Farskólinn kominn á skrið
Stéttarfélög bjóða félagsmönnum
Starfsemi Farskólans, miðstöðvar símenntunar á
Norðurlandi vestra, er komin á skrið þetta
haustið og hvert námskeiðið af öðru að hefjast.
Þar á meðal má finna ýmis tengd stéttar-
félögunum, HSN og sveitarfélaginu Skagafirði
ásamt íslenskunámskeiðum.
Líkt og áður munu stéttarfélögin Samstaða,
Kjölur, Sameyki, Aldan og Verslunarmannafélag
Skagafjarðar bjóða félagsmönnum sínum að sækja
valin námskeið sér að kostnaðarlausu en þau eru
öllum opin og eru aðrir hvattir til að kanna rétt
sinn hjá sínu stéttarfélagi.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á
heimasíðu skólans og Facebook. Í Námsvísi 2021,
sem dreift verður í næstu viku, verður þjónusta
Farskólans ítarlega kynnt. /PF
Landað á Skagaströnd. MYND: ÓAB
2 34/2021