Feykir


Feykir - 08.09.2021, Blaðsíða 4

Feykir - 08.09.2021, Blaðsíða 4
Ég hef rekið mig á það að margt hefur breyst í verkalýðs- og hagsmunamálum á Íslandi síðustu áratugi. Þegar ég var að alast upp var Guðmundur Jaki áberandi persóna á sjónarsviðinu og sjálfsagt ekki að ósekju. Það var annar taktur í þjóðfélaginu þá. Atvinnuleysi og verðbólga algengt fyrirbæri sem lagðist helst á hina vinnandi stétt. Það var verkalýð- urinn í landinu sem borgaði yfirleitt brúsann að lokum. Nú á tímum er landslagið orðið annað. Flestir sem ég kannast við semja orðið sjálfir um eigin laun og fyrirtæki eru í stöðugri samkeppni um besta vinnuaflið. Það er vissulega kærkomin breyting frá því að vinna á strípuðum töxtum eins og tíðk- aðist. Það tel ég vera breytingu til batnaðar að stór hluti vinnu- aflsins skuli vera sjálfráður í eigin launa- málum. Nýlega hóf ég störf hjá Sambandi stjórnendafél- aga (STF) sem áður hét Verkstjórasamband Íslands. Það sem vekur athygli mína er að þegar maður ræðir verkalýðs- eða félagsstörf í dag við yngra fólk að þá rang- hvolfir það augunum. En því miður er það þannig að þú tryggir ekki eftir á. Þó að stjórnendur standi einhvers staðar á milli fyrirtækis og almennra starfsmanna þá þarf stjórnandinn ekki að fyrirgera rétti sínum til að eiga rétt á sjúkradagpeningum og öðrum styrkjum sem undir- menn þeirra fá í sínum stéttarfélögum. Það er of dýru verði keypt. En til að gera langa sögu stutta að þá er STF samband stjórnendafélaga sem gætir hagsmuna félagsmanna í ellefu aðildarfélögum sambandsins sem eru út um allt land. STF er einskonar regnhlífarsam- band fyrir ellefu aðildarfélög. AÐSENT | Eyþór Óli Frímannsson skrifar Nokkur orð um Samband stjórnendafélaga, STF Forðum varstu dökkeyg dís, dalinn allan fylltir sól, þó að ótíð væri vís var sem hjá þér gæfist skjól. Öllum þótti um þig vænt, ekkert fékk þar kostum rænt. Eðli þitt gat að sér hænt allt sem lifði um dalsins ból. Það var nú á þeirri tíð, þegar líf þitt friðar naut. Eins og stjarna undurfríð ein þá rannstu þína braut. Von og trú sem vitað er, vitund þín þá bar í sér. Þar til loftsteinn lenti á þér, lamaði sálar meginskaut! Rúnar Kristjánsson Stjörnuhrap Félagsmenn okkar eru aðal- lega fólk sem semur sjálft um sín eigin laun. Við höfum verkfallsrétt en höfum aldrei beitt honum. Við hjá STF gerum reglulega launakann- anir sem styðja við kröfur félagsmanna varðandi laun þeirra eftir fagi. Þess má geta að við gerum kjarasamninga fyrir okkar félagsmenn. Eins höfum við aðstoðað félags- menn við gerð ráðningar- samninga. Okkar sérstaða er gríðarsterkur sjúkrasjóður sem grípur félagsmanninn í veikindum sínum (launa- vernd) eða barns undir 18 ára. Við bjóðum upp á ríkulega styrki til menntunar og heilsu. Einnig bjóðum við upp á fín sumarhús víðs vegar um landið og leigu á hjólhýsum yfir sumartímann. Ég er vandvirkur og varkár maður. Þegar ég tók við starfi kynningarfulltrúa STF vildi ég gera ánægjukönnun hjá okkar félagsmönnum til að vera þess viss að ég væri ekki að selja gallaða eða skemmda vöru. Við fengum til liðs við okkur margreynt ráðgjafafyrirtæki sem hefur gert mikið af könnunum fyrir helstu fyrir- tæki landsins. Félagsmenn okkar voru spurðir um þjón- ustu STF; þjónustuveri, orlofs- kostum, sjúkrasjóði, stjórn- endanámi og menntasjóði voru gefnar einkunnir. Einnig var spurt hversu líklegt eða ólíklegt væri að þú mæltir með STF við vin eða vinnufélaga (NPS kvarði). Niðurstöðurnar voru þessu ágæta ráðgjafa- fyrirtæki ráðgáta. Því STF og aðildarfélög þess fengu það góða einkunn í skoðana- könnuninni að það skákar bestu fyrirtækjum landsins. NPS kvarðinn er 200 stiga kvarði sem nær frá -100 stigum til 100 stiga. Meðal- talsskor fyrirtækja á Íslandi er -14 stig. Fremstu fyrirtæki heims eru með 50-70 stig í einkunn. En STF er að fá 48 stig sem er í raun 148 stig af 200 mögulegum. Það verður að teljast frábær einkunn. Ég hef því í raun komist að því að ég er ekki að selja skemmda eða gallaða vöru heldur þvert á móti fram- úrskarandi afurð. Því vil ég hvetja alla þá sem vilja njóta góðrar þjónustu og kjara að skoða hvort aðild að stjórn- endafélagi sé ekki rökrétt skref inn í þeirra framtíð. Þeir sem semja sjálfir um eigin laun eða eru stjórnendur (vakt- stjóri, verslunarstjóri, bílstjóri, deildarstjóri, verkstjóri, tækni- stjóri, mannauðsstjóri, liðs- stjóri o.s.frv.) eru gjaldgengir í stjórnendafélag. Viljir þú kanna málið betur bendi ég á stf.is eða að hafa samband við Stjórnendafélag Norðurlands vestra. Eyþór Óli Frímannsson Höf. er kynningar- og menntafulltrúi STF 4 34/2021

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.