Feykir - 08.09.2021, Page 4
Ég hef rekið mig á það að
margt hefur breyst í verkalýðs-
og hagsmunamálum á Íslandi
síðustu áratugi. Þegar ég var
að alast upp var Guðmundur
Jaki áberandi persóna
á sjónarsviðinu og
sjálfsagt ekki að
ósekju. Það var annar
taktur í þjóðfélaginu
þá. Atvinnuleysi og
verðbólga algengt
fyrirbæri sem lagðist
helst á hina vinnandi
stétt. Það var verkalýð-
urinn í landinu sem
borgaði yfirleitt
brúsann að lokum.
Nú á tímum er landslagið
orðið annað. Flestir sem ég
kannast við semja orðið sjálfir
um eigin laun og fyrirtæki eru
í stöðugri samkeppni um besta
vinnuaflið. Það er vissulega
kærkomin breyting frá því að
vinna á strípuðum töxtum
eins og tíðk-
aðist. Það tel ég
vera breytingu
til batnaðar að
stór hluti vinnu-
aflsins skuli
vera sjálfráður í
eigin launa-
málum. Nýlega
hóf ég störf
hjá Sambandi
stjórnendafél-
aga (STF) sem
áður hét Verkstjórasamband
Íslands. Það sem vekur athygli
mína er að þegar maður ræðir
verkalýðs- eða félagsstörf í dag
við yngra fólk að þá rang-
hvolfir það augunum. En því
miður er það þannig að þú
tryggir ekki eftir á. Þó að
stjórnendur standi einhvers
staðar á milli fyrirtækis og
almennra starfsmanna þá
þarf stjórnandinn ekki að
fyrirgera rétti sínum til að eiga
rétt á sjúkradagpeningum og
öðrum styrkjum sem undir-
menn þeirra fá í sínum
stéttarfélögum. Það er of dýru
verði keypt.
En til að gera langa sögu
stutta að þá er STF samband
stjórnendafélaga sem gætir
hagsmuna félagsmanna í ellefu
aðildarfélögum sambandsins
sem eru út um allt land. STF
er einskonar regnhlífarsam-
band fyrir ellefu aðildarfélög.
AÐSENT | Eyþór Óli Frímannsson skrifar
Nokkur orð um Samband
stjórnendafélaga, STF
Forðum varstu dökkeyg dís,
dalinn allan fylltir sól,
þó að ótíð væri vís
var sem hjá þér gæfist skjól.
Öllum þótti um þig vænt,
ekkert fékk þar kostum rænt.
Eðli þitt gat að sér hænt
allt sem lifði um dalsins ból.
Það var nú á þeirri tíð,
þegar líf þitt friðar naut.
Eins og stjarna undurfríð
ein þá rannstu þína braut.
Von og trú sem vitað er,
vitund þín þá bar í sér.
Þar til loftsteinn lenti á þér,
lamaði sálar meginskaut!
Rúnar Kristjánsson
Stjörnuhrap
Félagsmenn okkar eru aðal-
lega fólk sem semur sjálft um
sín eigin laun. Við höfum
verkfallsrétt en höfum aldrei
beitt honum. Við hjá STF
gerum reglulega launakann-
anir sem styðja við kröfur
félagsmanna varðandi laun
þeirra eftir fagi. Þess má geta
að við gerum kjarasamninga
fyrir okkar félagsmenn. Eins
höfum við aðstoðað félags-
menn við gerð ráðningar-
samninga. Okkar sérstaða er
gríðarsterkur sjúkrasjóður
sem grípur félagsmanninn í
veikindum sínum (launa-
vernd) eða barns undir 18 ára.
Við bjóðum upp á ríkulega
styrki til menntunar og heilsu.
Einnig bjóðum við upp á fín
sumarhús víðs vegar um
landið og leigu á hjólhýsum
yfir sumartímann.
Ég er vandvirkur og varkár
maður. Þegar ég tók við starfi
kynningarfulltrúa STF vildi ég
gera ánægjukönnun hjá okkar
félagsmönnum til að vera þess
viss að ég væri ekki að selja
gallaða eða skemmda vöru.
Við fengum til liðs við okkur
margreynt ráðgjafafyrirtæki
sem hefur gert mikið af
könnunum fyrir helstu fyrir-
tæki landsins. Félagsmenn
okkar voru spurðir um þjón-
ustu STF; þjónustuveri, orlofs-
kostum, sjúkrasjóði, stjórn-
endanámi og menntasjóði
voru gefnar einkunnir. Einnig
var spurt hversu líklegt eða
ólíklegt væri að þú mæltir með
STF við vin eða vinnufélaga
(NPS kvarði). Niðurstöðurnar
voru þessu ágæta ráðgjafa-
fyrirtæki ráðgáta. Því STF og
aðildarfélög þess fengu það
góða einkunn í skoðana-
könnuninni að það skákar
bestu fyrirtækjum landsins.
NPS kvarðinn er 200 stiga
kvarði sem nær frá -100
stigum til 100 stiga. Meðal-
talsskor fyrirtækja á Íslandi er
-14 stig. Fremstu fyrirtæki
heims eru með 50-70 stig í
einkunn. En STF er að fá 48
stig sem er í raun 148 stig af
200 mögulegum. Það verður
að teljast frábær einkunn.
Ég hef því í raun komist að
því að ég er ekki að selja
skemmda eða gallaða vöru
heldur þvert á móti fram-
úrskarandi afurð. Því vil ég
hvetja alla þá sem vilja njóta
góðrar þjónustu og kjara að
skoða hvort aðild að stjórn-
endafélagi sé ekki rökrétt skref
inn í þeirra framtíð. Þeir sem
semja sjálfir um eigin laun
eða eru stjórnendur (vakt-
stjóri, verslunarstjóri, bílstjóri,
deildarstjóri, verkstjóri, tækni-
stjóri, mannauðsstjóri, liðs-
stjóri o.s.frv.) eru gjaldgengir
í stjórnendafélag. Viljir þú
kanna málið betur bendi ég á
stf.is eða að hafa samband við
Stjórnendafélag Norðurlands
vestra.
Eyþór Óli Frímannsson
Höf. er kynningar- og
menntafulltrúi STF
4 34/2021