Feykir


Feykir - 08.09.2021, Page 12

Feykir - 08.09.2021, Page 12
Séra Bjarni Jónsson á Mælifelli var hið mesta karlmenni á yngri árum. Það var einhverju sinni að áliðnu vori að Bjarni reið fram Blönduhlíð og fór vetrarveg um mýrar fyrir neðan bæi. Reið hann fram fyrir neðan Sólheima þar sem var engi jarðarinnar eins og á flestum bæjum í Hlíðinni. Þá bjó þar Eldjárn, sonur Hallsteins Jónssonar í Stokkhólma, stór maður og sterkur. Þegar Eldjárn sá til ferða Bjarna yfir engi sitt hljóp hann þegar niðureftir í veg fyrir hann með fáryrðum miklum, hví hann riði engi sitt í leyfisleysi. Bjarni svaraði hóglega og sagðist vera ókunnugur en sér hefði hér verið vísað til vegar og eigi mundu miklar skemmdir verða af ferð sinni með einn hest. Eldjárn varð því æfari og þreif í tauma á hesti Bjarna og vildi snúa honum við. Bjarni bað hann sleppa en Eldjárn sinnti því í engu. Þar sem þeir voru staddir voru þröngir og djúpir skorningar og steig Bjarni loks af baki og þreif til Eldjárns. Skipti þar fljótt um. Var svo mikill aflsmunur þeirra að Eldjárn fékk enga mótstöðu veitt og tróð Bjarni honum niður á milli þúfna og þjappaði nokkuð svo að honum. Hélt síðan leiðar sinnar en Eldjárn gat sig hvergi hrært þaðan er hann var kominn. Var þá komið að vitja hans heiman frá Sólheimum og honum hjálpað á fætur. Var hann þrekaður orðinn því ómjúklega hafði Bjarni farið um hann höndum. /Byggðasaga Skagafjarðar 4. bindi Byggðasögumoli | palli@feykir.is Hraustmenni takast á Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 34 TBL 8. september 2021 41. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 „Við erum með smá kynningu á körfuboltanum í Skagafirði og sýna erlendu leikmennina í meistara- flokkum karla og kvenna og reyna að fá smá tengingu milli krakka og leikmanna og vera góðar fyrirmyndir fyrir þessa krakka,“ segir Friðrik Hrafn Jóhannsson, en hann og Jan Bezica, þjálfari kvennaliðsins, ásamt erlendu körfu- knattleiksmönnunum mættu í frímínútur í Árskóla á Sauðárkróki á mánudagsmorgun til að lífga upp á íþróttastarfið, skapa smá skemmtun og hafa gaman. Það var ekki annað að sjá en að allir skemmtu sér Erlendu leikmenn Tindastóls í frímínútunum Léku körfubolta við Árskólakrakka Alþjóðleg brúðulistahátíð, Hvammstangi International Puppetry Festival eða HIP Fest, fer fram dagana 8.–10. október næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en von er á á þriðja tug erlendra listamanna frá átta löndum sem bjóða upp á fjölda sýninga og vinnusmiðja, auk fyrirlestra og kvikmyndasýninga með umræðum við listamennina á eftir. „HIP Fest er einstök viðbót í menningarlíf lands- manna, enda eina brúðulistahátíð landsins,“ segir í tilkynningu frá Handbendi – Brúðuleikhúsi núverandi Eyrarrósarhafa. HIP Fest var valinn menningarvið- burður ársins á Norðurlandi vestra árið 2020. „Þrátt fyrir verulegar samkomutakmarkanir á hátíð- inni í fyrra tókst hún einstaklega vel við mikla ánægju þátttakenda og áhorfenda. Brúðulistin er fjölbreytt og fornt listform sem stöðugt haslar sér meiri völl í menn- ingarlífi landsins. Á hátíðinni má líta fjölbreyttar sýn- ingar fyrir alla aldurshópa, sem nýta sér öll blæbrigði listformsins,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Miðasala fer fram á tix og dagskrá hátíðarinnar má gaumgæfa á heimasíðu hennar, thehipfest.com eða Facebooksíðu. /PF Styttist í flottustu brúðulistahátíð landsins HIP Fest á Hvammstanga Erlendir leikmenn meistaraflokka Tindastóls, ásamt þjálfurunum Friðriki Hrafni og Jan Bezica, léku sér í körfubolta með krökkunum í Árskóla í morgun. Mikil mildi þótti að hægt var að fá þau til að standa kyrr rétt á meðan smellt var af myndavélinni. vel og leikmennirnir hafi fengið mikla athygli unga fólksins sem sýndi hvað í því býr. Skotið var á körfu og svo var tekinn einn léttur leikur með óvenju mörgum í byrjunarliðunum. Nánar á Feykir.is. /PF

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.