Feykir - 03.11.2021, Blaðsíða 1
Leikfélag Sauðárkóks frumsýnir nk.
föstudag í Bifröst barnaleikritið Ronju
ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren í
leikstjórn Sigurlaugar Vordísar
Eysteinsdóttur.
„Ronja er eitt af mörgum frábæru
leikverkum Astridar en hefur kannski
ekki náð alveg sama flugi og önnur eins
og t.d. Lína Langsokkur og Emil í
Kattholti, sem mér finnst persónulega
skrýtið því Ronja er bæði fjörugt og
fallegt leikverk og það sama má segja um
tónlistina í verkinu,“ segir Sigurlaug
Dóra Ingimundardóttir, formaður LS.
Ronja ræningjadóttir fjallar um
dóttur ræningjaforingjans Mattíasar og
hvað gerist þegar hún tekur upp á því að
vingast við Birki, son Borka erkióvin-
arins. „Við kynnumst þeim Ronju og
Birki og þeirra ævintýrum, við kynn-
umst skemmtilegum ræningjaflokkum
ásamt nornum, rassálfum, grádvergum
og hermönnum en sagan segir okkur
hversu mikilvæg vináttan er í blíðu og
stríðu og einnig að það er allt miklu
skemmtilegra þegar allir eru sáttir og allt
leikur í lyndi.“
Þröngt mega sáttir leika
Alls taka 23 leikarar þátt í 33 hlutverk-
um en alls koma um 60 manns að
sýningunni svo forvitnilegt er að vita
hvernig gangi að koma öllu þessu fólki
fyrir á sviðinu í Bifröst.
„Það er skítlétt, þetta er svo rosalega
stórt svið,“ segir formaðurinn sposk á
svip: „En svona að öllu gamni slepptu þá
gengur það furðuvel, sérstaklega eftir
að ég náði að töfra það fram að fram-
lengingin á sviðinu kæmi aftur með
samstarfi við gott fólk.“
Hún segir vel hafa gengið að manna
hlutverk og fá fólk í bakvarðasveitina en
alltaf sé hægt að bæta við sveitina.
„Við hjá LS erum ótrúlega rík af
frábæru og duglegu fólki sem hefur
mikinn metnað og áhuga á að starfa
með okkur aftur og aftur í leiksýningum.
Einnig er frábært að við erum líka að fá
nýtt fólk inn í hópinn. Það er alls ekki
sjálfgefið að fólk gefi ótrúlega mikið af
tíma sínum og setji margt annað á bið
sem þarf að gera þegar maður tekur þátt
í leikritum. En sem betur fer er líka
mjög gefandi, lærdómsríkt og skemmti-
legt að vera með og þetta allt verður til
þess að við náum að halda úti frábæru
starfi. Stjórn félagsins, leikstjóri og allur
leikhópurinn, innan sviðs sem utan,
leggur á sig gríðarlega vinnu til þess að
bjóða upp á blómlegt menningarstarf
og fyrir það er ég sem formaður ótrú-
lega stolt og þakklát.“
Ógnandi óvættir
Sigurlaug Dóra hvetur fjölskyldur til að
koma saman í leikhús og upplifa frábæra
menningu saman og styrkja í leiðinni
frábært starf leikfélagsins. Hún vill líka
lauma því að foreldrum að undirbúa
unga leikhúsgesti fyrir sýninguna: „Þó
að Ronja sé full af fjöri og gleðisprengj-
um þá gætu t.d. nornir og grádvergar
alveg látið einhverjum bregða en ef þetta
er vel útskýrt þá gengur þetta vel. Einnig
vil ég hvetja fólk til að huga vel að
sóttvörnum því C-19 er alls ekki búið en
ef allir passa sig þá er þetta vel gerlegt.“
/PF
42
TBL
3. nóvember 2021
41. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 4
BLS. 7
BLS. 8
Vivian Didriksen Ólafsdóttir
leikkona svarar Rabbinu
Bíó sem er eins og
feitur hamborgari
með frönskum og nóg
af sósu klikkar aldrei
Benjamín Elínór segir frá
Lúlla vini sínum
Lúlli horfir
ekki á íþróttir
Leikfélag Sauðárkróks setur Ronju ræningjadóttur á svið
Bjóðum alhliða lagnahreinsun á sérútbúnum bíl
Losum stíflur úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, regnvatns- og skólplögnum.
Hreinsum trjárætur úr lögnum. Myndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa
á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar
á sandföngum, fitu- og olíugildrum.
Holræsa- og stífluþjónusta
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland@terra.is
31
TBL
19. ágúst 2020
40. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS . 6–7
BLS. 4
Olíutankarnir á Króknum
teknir iður
Nýttir sem meltu-
geymar á Vestfjörðum
BLS. 10
Hrafnhildur Viðars hefur
opnað sérhæfða naglasnyrti-
stofu á Sauðárkróki
Game of Nails
Hera Birgisdóttir læknir segir
frá degi í lífi brottflutts
Saknar íslenska
viðhorfsins
„þetta reddast“
j l li l i t íl
Losum stíflur úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, regnvatns- og skólplögnum.
Hreinsum trjárætur úr lögnum. yndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa
á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar
á sandföngum, fitu- og olíugildrum.
lr - tífl j t
Leitið nánari upplýsinga í sí a 452 2958.
Sími 452 2958 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland terra.is
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Meirapróf - Vinnuvélanámskeið
Ökunám - Endurmenntun
Birgir Örn Hreinsson
Ökukennari
S: 892-1790
bigh@simnet.isHÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400
www.facebook.com/velavalehf
www.facebook.com/velavalehf
& 453 88 88 velaval@velaval.is
Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Stórprent í toppgæðum
Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og
plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum
Veðrið hefur leikið við landsmenn
undanfarna daga með hita upp á
20 tig og jafnvel meira o ð
sjálfsögðu stillu norðanlands sem
er ávísun á næturdö g. Á mánu-
dag morgun mátti sjá hvernig
áfallið baðaði umhverfið a.m.k. í
og við Sauðárkrók. Á Borgarsand-
inum höfðu maurköngulær
spunnið breiðu af fallegum vefjum
svokölluðum vetrarkvíða sem
Ingólfur Sveinsson, sá er tók
meðfylgjandi ynd, segir
jald æfa sjón.
Matthías Alfreðsson, skordýrafræð-
ingur hjá NÍ segir vetrarkvíða vera
náttúrufy irbrigði sem voðköngulær
eru þekktar fyrir að spinna og leggist
eins og silki yfir gróður. Blökkuló
(Eri one rctica) er dæmi um tegund
sem skilur eftir sig slíka þ æði.
Á vef Náttúrufræðistofnunar Ís-
la ds kemur fram að maurkönguló sé
tiltölulega sjaldgæf en fundin í öllum
landshlutum, e.t.v. algengari um
norðanvert landið en á landinu
sunnanverðu, á miðhálendinu í
Fróðárdal við Hvítárvatn.
Maurkönguló finnst í runnum og
trjám, einnig í klettum og skriðum,
ekki eins hænd að vatni og frænka
hennar sveipköngulóin (Larinioides
cornutus). Vefurinn er hjóllaga,
tengdur milli greina inni í runnum eða
utan í þeim eða á milli steina. Hér á
landi hafa maurköngulær fundist
kynþroska í júlí og ágúst.
Almennt
Maurkönguló er lítt áberandi þar sem
lítið er af henni og hún dylst vel í
kjörlendi sí u. Auk þess er vefurin
fíngerður og óáberandi, varla nema um
hálf r metri í þvermál ef aðstæður
leyfa.
Maurkönguló er mjög lík sveip-
könguló, þó heldur minni, og er
stundum vissara að aðgæta kynfæri til
að aðgreina þessar frænkur með vissu.
Oftast er afturbolur þó dekkri á
maurkönguló og ekki ljós rönd aftur
eftir honum iðjum. Miðbakið er að
mestu dökkt en ljóst þverbelti sker
dökka flekkinn í tvo hluta rétt framan
miðju á kvendýrum. Þetta getur þó
verið breytilegt. Neðan á afturbol eru
tveir svigalaga ljósir blettir eins og á
sveipkönguló, og fætur eru sömuleiðis
rauðleitir eða rauðgulir með dökkum
beltum.
Í heiminum eru þekktar um 44.000
tegundir köngulóa, á Íslandi 91 tegund
auk slæðinga. /PF
Köngulóin sveipar melgresið silki
Áfall næturinnar í s larg islum árdagsi s
Þessa skemmtilegu mynd tók Ingólfur Sveinsson sl. mánudagsmorgun af maurkönguló sem hafði strengt vef milli melgresisstráa. Sagði hann vefina hafa
verið fjölmarga á svæðinu og sagði slíka breiðu vefja sem baðaðir eru næturdögginni kallaða vetrarkvíða. Sáust þeir vel í morgunsárinu áður en döggin hvarf
með hækkandi sól. MYND: INGÓLFUR SVEINSSON
Patrekur Óli Gústafsson heldur
um áskorendapennann
Pílufélag
Hvammstanga
Ræningjar og r ssálfa ,
nornir og grádvergar í Bifröst
Uppfærsla LS á Ronju ræningjadóttur krefst fjölmenns leikhóps en 23 leikarar stíga á svið í hinum ýmsu
gervum. Hér eru Elva Björk Guðmundsdóttir, Emilía Lillý Guðbrandsdóttir og Sólveig Fjólmundsdóttir í
hlutverkum sínum að sinna ræningjanum sem Hlífar Óli Dagsson leikur. MYND: GUNNHILDUR GÍSLADÓTTIR