Feykir


Feykir - 03.11.2021, Blaðsíða 7

Feykir - 03.11.2021, Blaðsíða 7
 Heilir og sælir lesendur góðir. Ekki þarf að hafa mörg orð um þann dásamlega hita sem gladdi okkur landsins börn á síðasta sumri. Einn af þeim sem varð að þola óbærilegan hita á sólpalli sínum var okkar góði félagi Pétur Stefánsson. Hér í sælum sunnanþyt ég syng af gleði kenndur. Úti á palli sæll ég sit af sólarljósi brenndur. Þrátt fyrir hitann kemur mikill hugur í kappann með að taka til hendi. Arka nú með skóflu skal skerpa afl og vinna. Grafa þarf í Þormóðsdal þar er gull að finna. Kannski hefur það verið um sama leyti sem Ingólfur Ómar orti svo: Regnið úðar græna grund grænkar lyng í mónum. Blærinn strýkur blíðri mund brekkum víðigrónum. Gunnar J. Straumland hugsar til vísna- gerðar. Enn í stöku stöku helst stuðlar hafa valdið, en vísan lítils virði telst ef vantar innihaldið. Veit því miður ekki um höfund næstu vísu. Þegar ellin er um megn og engu meir að flíka, þá er huggun harmi gegn að hinir eldast líka. Ármann Þorgrímsson er einnig að hugleiða þá miklu neyð sem stefnir í ef við, sem erum talin gamlingjar, höldum áfram að lifa. Ef að traustar teljast spár til þess margir vonir bera, aldur manna yrði of hár eitthvað róttækt þarf að gera. Birti nú í haust nokkrar af þeim vísum sem Adolf J. Petersen orti um veður- athugunarstaði, sem sumir hverjir eru nú ekki lengur starfandi. Langar að halda áfram með sýnishorn af því. Æðey vindur sunnan sjö súld og talsverð alda. Hornbjargsviti hefur tvö hitastig og kalda. Gjögur hefur góða tíð gæftir í betra lagi. Þess má vænta að verði hríð vond, úr lægðardragi. Næst upplýsir þulurinn Vestur-Húnvetn- inga um sitt veður. Ekkert skyggni úfið haf ógna norðan hríðar. Við Þóroddsstaði þokutraf þekur fjallahlíðar. Þá förum við Austur-Húnvetningar að kann- ast vel við það sem kemur næst: Hjaltabakka hríðarkóf Vísnaþáttur 795 ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is hörsl um tún og grundir. Vindur ótt úr sköflum skóf en skjól er sunnan undir. Góða vini er að hitta á næsta áfangastað skáldsins. Hafáttin á Hrauni gól hátt rís alda á sjónum. Hveravelli signir sól og sunnanblær í mónum. Ekki skal meira birt að sinni af þessum snilldar vísum Adolfs, verð þó kannski að taka þau orð mín aftur og bæta við einni úr syrpunni þar sem enn koma góðir vinir við sögu. Bergstöðum er bjart að sjá breytileg er áttin. Út við Drangey yglibrá er að fella máttinn. Haustlegt hefur verið orðið þegar Kristján bóndi á Skálá orti þessa vel gerðu hringhendu: Norðan vindar æða efldir nú er yndi frá í bráð. Fjallatindar skýjum skefldir skuggamyndum hylja láð. Davíð Hjálmar gerir grein fyrir mataræði sínu í næstu limru: Radín og radon ég bryð og ríf í mig geislavirk svið og bragða í glettni á brennisteinsvetni. Það kemur mér varla neitt við. Eftir að hafa fengið upplýsingar hjá veiðimanni, sem var félagi í Skotvís, um hvernig ætti að bera sig til við veiðarnar, varð þessi til: Nú er veiðin unun ein, æstur byssu-þundur í þaula skoða þúfu og stein og þefar eins og hundur. Þegar nú er byrjaður nýr vetur rifjast upp næsta vísa sem ég veit því miður ekki eftir hvern er. Bágt er að sjá hve bliknað fá blómakollar fríðir. Svona fyrir feigðar ljá föllum við um síðir. Allt í einu rifjast upp þessi undarlega vísa gamla Ísleifs Gísla á Sauðárkróki: Kærleiksamboð upp hann tók, ástar – gambri hreyfði. En „hárkamba“ eyjan klók engin sambönd leyfði. Gaman væri fyrir okkur í nútímanum að kunna slíka orðgnótt. Gott að enda með vísu Egils Jónassonar sem hann mun hafa gert um það leyti er hann varð áttræður. Þróttur dvínar, það er mjög við hæfi. Þó er ég í anda hress og glaður. Ég hef beðið alla mína ævi eftir því að verða gamall maður. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi Sími 452 7154 Það hafði verið í umræðunni í þó nokkurn tíma hjá okkur félögunum að það væri gaman að stofna pílufélag á Hvammstanga. Áhuginn var til staðar en það eina sem þurfti var spark í rassinn til að hefjast handa. Fyrir mánuði síðan hófust framkvæmdir og styrktarsöfnun. Peningalega séð fórum við hægt af stað en um leið og við fengum úthlutað húsnæði fór allt á fullt og einungis þremur vikum seinna vorum við búnir að opna. Við eigum þó enn eftir að klára ýmislegt sem farið verður í á næstu vikum. Á þriðja tug félagsmanna sækja í aðstöðuna og alltaf eru nýir að bætast við, karlar jafnt sem konur og tökum við vel á móti öllum. Hægt er að finna allar upplýsingar á Facebook síðu okkar. Í aðstöðu okkar má finna fjórar vandsmíðaðar pílubrautir. Pílukast er íþrótt sem hefur farið vaxandi á Íslandi síðustu ár og er íþróttin sú þriðja vinsælasta í Bretlandi um þessar mundir. Á Íslandi eru nú um tólf virk pílufélög og fer þeim fjölgandi. Keppt er mikið í íþróttinni á landinu í öllum landshlutum. Íslendingar eru til að mynda með landslið í íþróttinni. Opið er hjá okkur tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum frá 19:30 - 22:00 ásamt auka opnunartímum af og til. Stefnan er að vera með námskeið í íþróttinni seinna í vetur þar sem Íslandsmeistari kvenna kemur og heldur utan um það. Fyrirtæki og hópar geta haft samband við okkur og leigt aðstöðu okkar sér til skemmtunar, endi- lega hafið samband við okkur á Facebook. Vonandi sjáum við sem flesta í vetur. - - - - - - Ég skora á Gunnar Pál Helgason að koma með pistil. ÁSKORENDAPENNINN | palli@feykir.is Patrekur Óli Gústafsson | Formaður Pílufélags Hvammstanga Pílufélag Hvammstanga Patrekur Óli grillar á góðum degi. AÐSEND MYND 42/2021 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.