Feykir


Feykir - 03.11.2021, Blaðsíða 12

Feykir - 03.11.2021, Blaðsíða 12
Einn kunnasti hestamaður Íslands á áratugunum um og eftir aldamótin 1900 var Bjarni Jóhannesson (1861-1941), jafnan nefndur Hesta-Bjarni. Hann var fæddur og uppalinn á Reykjum [í Hjaltadal] og varð þjóðsagnapersóna í lifanda lífi fyrir tamningar og verslun með hesta. Þolinmæði hans við baldna og erfiða fola voru engin takmörk sett. Sagt var að hann hefði aldrei barið hest til hlýðni, hversu óþægur og þrjóskur sem hann var, en sigrað með þolinmæði. Fræg er saga af því er Bjarni kom á bæ til að sækja tamningafola sem var í stóði spölkorn frá. Bóndi sendi vinnumenn sína eftir folanum og tók langan tíma og fyrirhöfn áður tækist að ná honum og yfirbuga svo að koma mætti upp í hann beislinu. Töldu menn þá björninn unninn og fengu Bjarna tauminn. En hans fyrsta verk var að taka út úr honum beislið. Og svar Bjarna til hinna undrandi áhorfenda var: „Mér líkaði ekki hvernig ég tók hann.“ Bjarni fór fjölmargar hestasöluferðir norður og austur um land og jafnvel suður. Hvaðeina sem Bjarni sagði um kosti og eðli hesta var talið sannmæli og naut hann því óskoraðs trausts og virðingar á þessu sviði. Hann stundaði oft barnakennslu á vetrum en tamningar á sumrin og veit enginn fjölda þeirra hrossa er hann tamdi eða lagaði. /Byggðasaga Skagafjarðar 6. bindi Byggðasögumoli | palli@feykir.is Hesta -Bjarni Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 42 TBL 3. nóvember 2021 41. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Starfsfólk Byggðastofnunar bauð síðasta föstudag gestum og gangandi að koma og samfagna því að nýtt og glæsilegt húsnæði hafi verið tekið í notkun á Sauðárkróki. Ekki stóð á gestakomunni og segir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri, ánægjulegt að sjá þann áhuga sem fólk sýnir starf- semi stofnunarinnar. Aðalsteinn segir fjölda fólks hafa heim- sótti stofnunina þennan dag en viður-kennir að hafa klikkað á að telja. „Ánægjulegt er að sjá þann áhuga sem fólk sýnir starfsemi stofnunarinnar og þeim verkefnum sem hún vinnur að. Húsið og búnaður þess hefur reynst okkur vel, hönnun þess og smíði er af mjög háum gæðum og verktökum til sóma. Áhersla var lögð á að húsið væri bjart og fallegt og bjóði upp á sveigjanleika þannig að starfsemin geti þróast áfram ásamt því að hljóðvist og loftgæði og öll vinnuaðstaða sé svo góð sem verða má,“ segir hann. Starfsfólk flutti í húsið um miðjan júní 2020 og hefur því verið í nýjum húsakynnum í um 16 mánuði Margmenni í opnu húsi Byggðastofnunar Loksins veislufært Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar og Bjarni Jónsson, nýkjörinn alþingismaður VG í Norðvesturkjördæmi, gátu líklega rætt sitthvað gagnlegt fyrir byggðir landsins á milli þess sem þeir ræddu við aðra gesti Byggðarstofnunar. MYND: PF Á heimasíðu Blöndu- ósbæjar segir frá því að bærinn stefnir á að gefa út viðburða- dagatal með dagskrá flestra þjónustuaðila, kirkjunnar, félaga, safna og skóla auk upplýsinga um tón- leika, jólamarkaði og öðru því sem fylgir aðventunni. Eru fyrirtæki, stofnanir, félög og einstaklingar sem standa fyrir viðburðum og þjónustu á aðventunni hvött til að senda inn upplýsingar en viðburðadagatalinu verður dreift á öll heimili og fyrirtæki á Blönduósi og sveitum í kring. Upplýsingar um viðburði er hægt að senda á Kristínu Ingibjörgu, Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa Blönduósbæjar á netfangið: kristin@blonduos.is eða í síma 455-4703 í síðasta lagi þriðjudaginn 16. nóvember nk. /ÓAB Njótum töfra aðvent- unnar í heimabyggð Blönduós Frá Æskujóla-tónleikum á Blönduósi. MYND: RÓBERT DANÍEL Vélgæsla- og viðhaldsstarf Dögun leitar að nýjum liðsmanni. Félagið starfrækir mjög tæknivædda vinnslu sem krefst þekkingar og útsjónarsemi við rekstur og umsjón. Um er að ræða fjölbreytt starf á sviði vélstjórnunar, viðhalds, iðnstýringa og fleira. Helstu verkefni: Vélgæsla og viðhald. Umsjón með viðhaldi og viðgerðum. Rekstur vélbúnaðar, tækja- og iðnstýrikerfa. Allskonar reddingar og inngrip þegar þörf er á! Vinnutími getur verið breytilegur. Hæfniskröfur: Reynsla og þekking af vélbúnaði. Geta til að skipuleggja og vinna verkefni. Sjálfstæði í starfi, samskiptahæfileikar. Menntun á sviði vélvirkjunar, vélstjórnar er kostur. Góð tölvukunnátta. Upplýsingar gefur Yngvi Yngvason í síma 899-7170 og Óskar Garðarsson í síma 892-1586. Vinsamlegast sendið umsókn á oskar@dogun.is Dögun sérhæfir sig í vinnslu á rækju og starfrækir mjög fullkomna rækjuvinnslu á Sauðárkróki. Félagið hefur nýlega lokið við miklar endurbætur á framleiðslubúnaði með frekari tæknivæðingu og aukinni sjálfvirkni. Félagið er leiðandi á sínu sviði. Dögun hefur starfað samfleytt í 35 ár á traustum grunni. Yfir 90% af sölu félagsins fer á erlenda markaði. en ekki getað haldið opnunarhátíð fyrr en nú. „Það má því kannski segja að við höfum legið hér í leyni frá því að við fluttum inn. En eftir að samkomu- takmörkunum vegna Covid 19 var aflétt hefur verið mikið um heimsóknir til okkar og við höfum tekið á móti hópum af ýmsum stærðum á skemmri og lengri fundi. Það má segja að húsið iði nú af lífi,“ segir Aðalsteinn. /PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.