Feykir


Feykir - 03.11.2021, Page 2

Feykir - 03.11.2021, Page 2
Nú stendur yfir tuttugasti og sjötti aðildarríkjafundur Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP26) í Glasgow. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í gær með erindi á leiðtogaráðstefnu en með henni eru tæplega 60 þátttakendur frá Íslandi, m.a. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála- og nýsköpunarráðherra, sem tekur þátt í hliðarviðburðum tengdum orku- málum og Guðmundur Ingi Guð- brandsson, umhverfis- og auðlinda- ráðherra, sem einnig mun taka þátt í hliðarviðburðum og tvíhliðafundum, m.a. um vernd og endurheimt vot- lendis, um súrnun sjávar og um alþjóðlegan samning sem unnið er að um loftslagsmál, viðskipti og sjálfbærni, eins og hægt er að fræðast um á vef stjórnarráðsins. Þar kemur fram að alls séu 26 í formlegri sendinefnd Íslands en auk fulltrúa frá ráðuneytum eru í henni fulltrúar Umhverfis- stofnunar, Veðurstofunnar, Landgræðslunnar, Loftslagsráðs og Orkustofnunar. Þá styrkir umhverfis- og auðlindaráðuneytið fulltrúa ungmenna til þátttöku á fundinum, en þetta er í fyrsta sinn sem fulltrúi ungmenna er í hinni opinberu sendinefnd. Fyrir utan fulltrúa frá stjórnvöldum sækja fulltrúar frá félagasam- tökum og fyrirtækjum viðburði sem tengjast loftslagsþinginu beint eða óbeint. Yfir 40 þúsund manns taka þátt í COP26 og tengdum viðburðum með staðfundunum og í gegnum fjarfundarbúnað. Bent hefur verið á að það sé eins gott að slík ráðstefna skili tilætluðum árangri þar sem yfir 400 einkaþotur hafi verið notaðar til að flytja þá allra tímanaumustu á staðinn og hefur breska blaðið Sunday Mail reiknaði út að þær muni ropa út í andrúmsloftið 13.000 tonnum af koltvísýringi, sem sé umfram- losun 1600 meðal Skota í heilt ár. Þá er ótalin sú mengun sem varð til í flugi hinna sem ferðuðust í áætlunarvélum. En allir meina vel og vilja gera sitt til að jörðin lifi hamfara- hlýnun af sem margir vilja meina að vofi yfir börnunum okkar. Aðrir hafa bent á að þótt hlýni eitthvað á jörðinni þurfi það ekki að þýða neinar hamfarir aðeins breytingar. Skilaboð Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í ræðu sinni á loftslagsráðstefnunni í Glasgow voru þó skýr skv. því sem segir á stjornarradid.is, þar sem markmiðin frá París duga ekki til að hemja hlýnun jarðar. Gera þurfi betur og því hefur Ísland hækkað markmið sitt um samdrátt úr 40% í 55% fyrir árið 2030. Jafnframt kemur fram á heimasíðu stjórnarráðsins að þrettán íslenskir lífeyrissjóðir ætli að fjárfesta fyrir um 580 milljarða króna í verkefnum sem tengjast hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030. Vel gert hjá þeim og vonandi fylgja Rússar og Kínverjar í kjölfarið en heimsathygli vekur að Vladimír Pútín og Xi Yin ping láta sig vanta á ráðstefnuna. Þá væri nú gott að brasilíska sendinefndin myndi lofa minni eyðingu regnskóga en fréttir herma að alls hafi rúmir 11 þúsund ferkílómetrar verið ruddir frá ágúst 2019 og fram í júlí árið eftir sem er meira en tíundi hluti alls Íslands eða rúmlega allur Vestfjarðarkjálkinn. Það er pínu! Góðar stundir. Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Gætt´að hvað þú gerir maður! Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum AFLATÖLUR | Dagana 24. – 30. október á Norðurlandi vestra Páll Jónsson GK 7 með tæp 118 tonn SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Viktor Sig HU 66 Handfæri 767 Alls á Skagaströnd 339.776 SAUÐÁRKRÓKUR Drangey SK 2 Botnvarpa 188.031 Hafborg SK 54 Þorskfisknet 604 Kaldi SK 121 Þorskfisknet 344 Lilja SH 16 Lína 5.116 Málmey SK 1 Botnvarpa 162.995 Már SK 90 Handfæri 1.104 Onni HU 36 Dragnót 4.616 Alls á Sauðárkróki 362.810 HVAMMSTANGI Harpa HU 4 Dragnót 3.410 Ragnar Alfreðs GK 183 Lína 3.052 Alls á Hvammstanga 6.462 SKAGASTRÖND Dúddi Gísla GK 48 Lína 2.372 Fjölnir GK 157 Lína 94.584 Guðrún Petrína GK 107 Landbeitt lína 5.385 Hrund HU 15 Handfæri 2.030 Kristinn HU 812 Landbeitt lína 9.487 Páll Jónsson GK 7 Lína 117.787 Sighvatur GK 57 Lína 107.364 Á Króknum var landað átta sinnum í síðustu viku en einungis einn bátur landaði tvisvar, Onni HU 36. Aflahæsti báturinn var Drangey SK 2 með rúm 188 tonn og var uppistaða aflans þorskur. Á vef fisk.is segir að þeir hafi verið tæpa sex daga á veiðum og voru þeir fyrir vestan, á Halanum, Kögurgrunni, Þverálshorni og end- uðu þeir á Skagahrauni. Heildarafli á Króknum var 362.810 kg. Á Skagaströnd voru átta bátar sem lönduðu einu sinni hver og var það línu- báturinn Páll Jónsson GK 7 sem var aflahæstur með tæp 118 tonn. Uppistaða aflans var bæði þorskur og ýsa. Enginn bátur landaði á Hofsósi en tveir bátar lönduðu á Hvammstanga alls 3.410 kg. Heildarafli á Norðurlandi vestra í síðustu viku var 709.048 kg. /SG Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 615 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 755 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Fjölgun í öllum landshlutum Norðvestlendingar 7426 talsins Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. nóvember sl. en hlutfallslega var fjölgunin mest á Suðurlandi eða um 3,2% og á Suðurnesjum um 2,5%. Samkvæmt samtekt Hagstofunnar hefur íbú- um Helgafellssveitar fjölgað hlutfallslega mest þegar horft er til alls landsins þá síðastliðna níu mánuði eða um 21,5% en íbúum þar fjölgaði um 14 íbúa. Næst kemur Hörgársveit með 8,6% fjölg- un en íbúum í sveitarfélaginu fjölgaði um 56. Á Norðurlandi vestra fjölgaði um 0,2% eða um 14 og teljast íbúar nú vera 7426. Trónir Húna- vatnshreppur hæst hvað hlutfall varðar, 3,8% eða um sama fjölda, 14 manns. Mesta fækkunin varð hins vegar á Blönduósi, 27 manns eða um 2,8%. Í Svf. Skagafirði bættust 19 á íbúaskrána hvar 4109 búa, ellefu í Húnaþingi vestra og teljast þeir nú vera 1230 og á Skagaströnd fjölgaði um tvo svo þar eiga lögheimili 477 manns. Fækkun varð hins vegar í Akrahreppi um fjóra einstaklinga og telj- ast þeir 206 og á íbúaskrá Skagabyggðar fækkaði um einn þar sem 91 er skráður. /PF Húnavatnshreppur Stefnumörkun ferðaþjónustu Stefnumörkun ferðaþjónustu í Húnavatnshreppi hefur verið lögð fram hjá sveitarstjórn en þar er kveðið á um hvaða verkefni sveitarfélagið muni leggja áherslu á næstu tvö ár og verður send sem forgangslisti í áfangastaðaáætlun fyrir árið 2021. Á heimasíðu hreppsins kemur fram að fleiri áningarstaðir þarfnist greiningar og síðan fjár- magns og yrðu þeir teknir fyrir í framhaldinu. „Í þessari stefnumörkun er lögð áhersla á hvernig sé best að standa að markaðssetningu á viðkomandi verkefnum. Ekki er farið í nákvæma lýsingu á hvað skuli gera í hverju verkefni fyrir sig. Flest af þessum verkefnum hafa verið á teikni- borðinu hjá sveitarfélaginu um ákveðinn tíma,“ segir í frétt Húnavatnshrepps. Þau verkefni sem lögð verður áhersla á í sveitarfélaginu næstu tvö ár eru Þrístapar sem lykilverkefni í lokafasa en Gullsteinn, Foss í Vatnsdal / Mígandi, Ólafslundur, Vatnsdæla saga og Þrándarhlíðarfjall sem topp fimm verkefni í Áfangastaðaáætlun Húnavatnshrepps. Þá eru Þingeyrar og Göngu- og hjólaleið Þingeyrar til Blönduóss / Þingeyrar til Hvítserks skilgreind sem önnur mikilvægt verkefni. /PF Frá Húnavöku sumarið 2021. MYND: ÓAB 2 42/2021

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.