Feykir - 03.11.2021, Síða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: :Skot.
Sudoku
Krossgáta
FEYKIFÍN AFÞREYING
Feykir spyr...
Jæja, á að fara
að henda upp
jólaseríunum?
Spurt á Facebook
UMSJÓN: klara@nyprent.is
„Fyrsta sunnudag í aðventu.“
Sigurlaug Ebba
Kristjánsdóttir
Tilvitnun vikunnar
Það er betra að vera algjörlega fáránlegur
en ótrúlega leiðinlegur. – Marilyn Monroe
„Fyrsta sunnudag í aðventu.“
Þorbjörn Have Jónsson
„Ég læt nú bara systur mína um
það, ég verð í Danmörku hjà
henni yfir hátíðirnar.“
Sindri Freyr Sigurgíslason
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Morðvopn Abrahams Lincoln.
F
„Já, ég fer örugglega
að freistast til að setja upp
eitt og eitt ljós.“
Kristín María Gísladóttir
Graskers- og spínat-
lasagna og möffins
Matgæðingur vikunnar er Rannveig Einarsdóttir, dóttir Einars og
Soffíu á Króknum, en hún býr í Reykjavík ásamt Völu, kærustunni
sinni, en það vill svo skemmtilega til að þær eru að flytja í fjörðinn
fagra, Skagafjörð, lok árs.
„Við borðum báðar plöntumiðað fæði og draumurinn er að
rækta okkar eigið grænmeti og ávexti og verða eins sjálfbærar og
við getum,“ segir Rannveig.
Hérna koma tvær af þeirra uppáhalds uppskriftum. Gott er að
gera góðan skammt af lasagna og eiga í frysti.
AÐALRÉTTUR
Graskers- og
spínatlasagna
Uppskrift fyrir 4-6
1 Butternut squash grasker,
meðalstærð
9-12 lasagnaplötur
1 poki spínat, ferskt eða frosið
1 laukur
2-3 hvítlauksrif
1 dós kókosmjólk - helst feita
2-3 msk. soya
1-2 msk. hvítvínsedik
ólífuolía
salt og pipar
1-2 tsk. cayenne pipar
1 tsk. múskat
1-2 msk. karrí
150 g rifinn ostur
Aðferð: Skerið graskerið í litla
bita, setjið í eldfast mót, kryddið
með ykkar uppáhalds karríkryddi
ásamt salti og pipar og vel af
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Rannveig Einarsdóttir | Króksari
EFTIRRÉTTUR
Súkkulaði- og
bláberjamöffins
5 dl hveiti
1 msk. kanill
1 msk. lyftiduft
100 g smjörlíki
4 dl haframjólk
200 g suðusúkkulaði
1 bolli bláber
Aðferð: Ofninn hitaður að 200°C.
Þurrefnum blandað saman í skál.
Bræðið smjörið og hellið saman
við mjólkina. Öllu blandað saman
og hrært vel. Súkkulaðinu og
bláberjunum hrært saman við í
lokin.
Deilið deiginu í möffinsform
(verða sirka 15 möffins) og bakið
í u.þ.b. 15-20 mínútur.
EFTIRRÉTTUR
Mjólkurhristingur
150 – 200 g jurtaís vanillu eða
hindberja
nokkrir ísmolar
2 msk. frosin hindber
2-3 msk. hlynsíróp
50 - 70 ml haframjólk
Aðferð: Allt sett í blandara, hægt
að bæta í haframjólk ef hann er of
þykkur. Framreitt í fallegu glasi
með röri.
Verði ykkur að góðu!
Rannveig skorar á góða vinkonu
sína hana Önnu Berglindi Sig-
urðardóttur að taka við næsta
matgæðingaþætti.
ólífuolíu. Bakið í 25-30 mínútur
við 190°C. Leggið lasagna
plöturnar í bleyti (vatn) í 20-30
mínútur. Steikið lauk upp úr
ólífuolíu. Þegar hann er búinn að
mýkjast bætið þá við spínati og
pressið hvítlauksrifin út á pönn-
una. Hellið því næst hálfri dós af
kókosmjólk út í og bætið við
cayennepipar, hvítvínsediki, soya,
salti og pipar. Hrærið öllu vel
saman á vægum hita. Stappið
bakaða graskerinu saman við
restina af kókosmjólkinni,
smakkið til og kryddið meira að
vild. Finnið til eldfast mót, ég
nota 28×28cm. Smyrjið ólífuolíu í
botninn og setjið til skiptis
lasagnaplötur, grasker og spínat
blönduna.
Þið ættuð að ná þremur lögum
ef þið notið álíka stórt mót og ég.
Stráið rifnum osti yfir og bakið í
20 mínútur við 190°C. Gott að
bera fram með hvítlauksbrauði
eða fersku salati.
Rannveig og Vala. MYND AÐSEND
42/2021 11
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
Heilsukvíði felur í sér miklar áhyggjur af eigin heilsufari og ótta við að
vera með alvarlegan sjúkdóm sem ekki hefur tekist að greina, segir á
minlidan.is. Fólk eyðir miklum tíma í að hafa áhyggjur af því hvort það
sé veikt eða að veikjast og oft er skýringa leitað á Netinu. Ótrúlegt, en
kannski satt, þá eru þrjú helstu heilsutengdu leitarorðin þunglyndi,
ofnæmi, og krabbamein.
Vísnagátur Sveins Víkings
Lífi sjaldan gefur grið.
Góður felustaður.
Snerting armleggs hröð við hlið.
Hættir ungum þessu við.