Morgunblaðið - 04.04.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022
COSTA DEL SOL
FLUG, GISTING Í 10 NÆTUR OG ÍSLENSK FARARSTJÓRN
ÚRVAL ÚTSÝN 585 4000 WWW.UU.IS INFO@UU.IS
20. - 30. APRÍL
SENATOR BANUS SPA 5*
TVÍBÝLI DELUX
VERÐ FRÁ98.900 KR
Á MANN FULLORÐNA
30. APRÍL - 10. MAÍ
HOTEL PALMASOL 4*
TVÍBÝLI MEÐ
VERÐ FRÁ95.900 KR
Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN
INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR
Í BEIN
U
FLUGI
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Elín Pálmadóttir blaða-
maður er látin, 95 ára
að aldri. Hún var fædd í
Reykjavík 31. janúar
1927, dóttir Pálma
Hannesar Jónssonar
skrifstofustjóra Kveld-
úlfs (1902-1992) og
Tómasínu Kristínar
Árnadóttur húsfreyju
(1899-1953). Hún átti
fjögur systkini, Pétur,
Sólveigu, Árna Jón og
Helgu.
Elín lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
árið 1947 og lagði síðan stund á nám
í ensku og frönsku við Háskóla Ís-
lands og síðar erlendis. Þá gekk hún
til liðs við utanríkisþjónustuna og
starfaði m.a. við hinar nýstofnuðu
Sameinuðu þjóðir og í sendiráðinu í
París. Þar tók Elín miklu ástfóstri
við Frakkland og franska menningu,
sem hún bjó að æ síðan.
Elín hóf störf sem blaðamaður hjá
Vikunni 1952, en 1958 réðst hún til
Morgunblaðsins þar sem hún vann
þar til hún lét af störf-
um fyrir aldurs sakir
1997. Hún settist þó
ekki í helgan stein,
heldur hélt áfram góðu
sambandi við blaðið,
skrifaði greinar og við-
töl í það, og sinnti
bókaskrifum. Hún var
handhafi blaðamanna-
skírteinis nr. 1 þegar
hún lést.
Elín var bæði kven-
réttindakona og borg-
araleg í sinni og tók
dyggan þátt í flokks-
starfi Sjálfstæðis-
flokksins; sat m.a. í stjórn Hvatar,
Varðar og Landssambands sjálf-
stæðiskvenna. Hún sat í borgar-
stjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn
1970-1978, varaþingmaður 1978-84,
stofnaði og var fyrsti formaður Um-
hverfismálaráðs Reykjavíkur. Hún
lét sér mjög annt um náttúru lands-
ins, skrifaði mikið um umhverfismál
og kynnti náttúruvísindarannsóknir
á síðum blaðsins, en utan blaðsins
var hún meðal frumkvöðla að stofn-
un Bláfjallafólkvangs og Reykjanes-
fólkvangs. Hún var heiðruð fyrir þau
störf 2004 af öllum helstu náttúru-
verndarsamtökum landsins.
Hún hlaut heiðursviðkenningu
Blaðamannafélagsins 1992, riddara-
kross fálkaorðunnar 1995 og var
sæmd æðstu heiðursorðu Frakk-
lands, Légion d’honneur, árið 2015.
Eftir hana liggja ýmsar merkar
bækur, svo sem um vinkonu hennar,
Gerði Helgadóttur myndhöggvara,
Fransí biskví um franska Íslands-
sjómenn, sem var tilnefnd til bók-
menntaverðlaunanna 1990 og kom
einnig út á frönsku, og endurminn-
ingarnar Eins og ég man það.
Elín var forvitin og athugul að eðl-
isfari, átti auðvelt með að tala við
fólk og bjó yfir ríkri frásagnargáfu,
sem nýttist henni vel í starfi, bæði
sem blaðamaður, afkastamikill rit-
höfundur og stjórnmálamaður. Hún
var vinamörg og vinsæl, frumkvöðull
í íslenskri blaðamennsku.
Morgunblaðið og samstarfsmenn
hennar þakka áratugalöng störf og
samfylgd og votta ættingjum hennar
fyllstu samúð.
Andlát
Elín Pálmadóttir blaðamaður
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
„Þetta er náttúrulega svakalegt
ástand,“ segir Markús Már Efraím,
sem haldið hefur utan um hóp til að
mæta þörfum úkraínsks flóttafólks
sem fengið hefur
inni í byggingu
Hótels Sögu.
„Þetta eru
orðnir 92 flótta-
menn sem eru
þarna á hótelinu
núna. Sumir
þeirra skilst mér
að séu ekki einu
sinni með rúm,“
segir hann.
Gengið hafi vel
að fá fólk til þess að hjálpa. „Sam-
takamátturinn er ótrúlegur. Við höf-
um svolítið reynt að stýra þessu. Ef
allir í Vesturbænum væru farnir að
tæma bílskúrinn og koma með dót
væri þetta algjör ringulreið.“
Hann segir eina í hópnum hafa bú-
ið til sameiginlegt skjal á netinu þar
sem þau sem dvelja á Hótel Sögu
geta sett inn það sem þau þurfi.
„Til dæmis ef einhvern vantar
stígvél á tólf ára strák í sérstakri
stærð, þá getur einhver séð það,
hakað við og komið með.
Hún Liv Anna Gunnel sem stökk
inn í þetta líka er búin að standa
vaktina þarna í anddyrinu á Hótel
Sögu eins og verkstjóri, til að halda
utan um þetta.“
Stöðugur straumur sé af fólki sem
komi til þess að hjálpa. „Það er svo
margt sem vantar. Fólk er ekki með
klósettpappír eða neitt.“
Þess vegna sé hjálpin mikilvæg.
„Margar hendur vinna létt verk. Það
eru sumir að koma með lyf og alls
konar hluti sem fólk vantar. Það má
ekki gleyma því að þetta fólk er að
koma beint úr stríðsástandi, það er
ekki með hluti eins og hlífðarfatnað
með sér.“
Bæði er fólk að koma með nauð-
synjar og annað, til að mynda leik-
föng fyrir börnin. „Þau hafa verið
þarna bara að hlaupa um gangana að
leika sér.“
Spurður hvort honum þyki stjórn-
völd vera sofandi á verðinum, þar
sem flóttafólkið sé á þeirra vegum,
segist Markús skilja álagið en að
margt megi þó gera betur:
„Þetta er auðvitað rosalegur fjöldi
að koma hingað en manni finnst það
auðvitað bagalegt að það geti gerst á
Íslandi að flóttamanneskja sé sett í
herbergi þar sem er ekki einu sinni
rúm,“ segir Markús og tekur fram
að hann sé ekki að dæma stjórnvöld.
Honum finnst líklegt að álagið sé
mikið og þá reyni á fólkið í kring.
„Auðvitað á þetta ekki að vera
hlutverk fólks úti í bæ en þegar
svona gerist þá er það bara fallegt
og gott að fólk skuli vera tilbúið að
stökkva til og hjálpa.“
Ásbrú hentaði sumum illa
Markús nefnir að ein helsta
ástæðan fyrir því að fólkið var flutt á
Hótel Sögu svo skyndilega hafi verið
sú að staðurinn á Ásbrú, þar sem
þeim var upprunalega komið fyrir,
hafi minnt börnin of mikið á stríðs-
ástandið heima fyrir.
„Það hentaði alls ekki að hafa
börn sem kannski eru með áfalla-
streituröskun, nýkomin úr stríði, í
húsi við alþjóðaflugvöll, með drun-
urnar yfir sér allan daginn.“ Gylfi
Þór Þorsteinsson, aðgerðastjóri
vegna komu flóttafólks frá Úkraínu,
hafði sömu sögu að segja. „Börnin
urðu hrædd þegar þau heyrðu í flug-
vélum.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hjálp Fólk kemur með nauðsynjar og annað, til að mynda leikföng fyrir
börnin. „Þau hafa verið þarna bara að hlaupa um gangana að leika sér.“
Sum þeirra
ekki með rúm
- Flóttafólki komið fyrir á Hótel Sögu
Markús Már
Efraím
Mikil óvissa ríkir nú hjá verktökum
vegna yfirvofandi lokunar á Bolaöldu í
hlíðum Vífilfells. „Við lesum bara viðtal
við Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölf-
uss, í lok mars um að það eigi að loka
Bolaöldu fyrir móttöku jarðvegsúr-
gangs 1. apríl,“ segir Stefán Gestsson,
framkvæmdastjóri hjá Vörubílastöð-
inni Þrótti.
„Við erum með töluvert af vörubíl-
um á okkar vegum sem eru að keyra
þangað daglega og okkur brá mjög. Í
dag kostar ekkert að sturta úrgangi af
vinnusvæðum þarna upp frá. Núna
heyrir maður út undan sér að það eigi
að fara að innheimta gjald sem gjör-
breytir stöðunni hjá okkur. Ef það ger-
ist er grundvöllur tilboða okkar í verk
hruninn og þetta mun hafa keðjuverk-
andi áhrif út í samfélagið með hækk-
andi byggingarvísitölu og aukinni
verðbólgu.“
Erfitt að reka fyrirtæki í óvissu
Stefán fékk fá svör frá borgaryfir-
völdum fyrr en aðfaranótt 1. apríl, þeg-
ar honum var sagt að hætt hefði verið
við að loka þann dag og að hægt yrði að
fara með úrgang af byggingarsvæðum
næstu tvo mánuði í Bolaöldu. „Hvað þá
tekur við er alveg óljóst,“ segir Stefán.
Skrýtið sé að ekkert samband sé haft
við hagsmunaaðila í málinu.
„Það er mjög erfitt að reka fyrir-
tæki í svona óvissu. Við erum að gera
tilboð í verk og þurfum nú að endur-
skoða öll tilboð með tilliti til hærri
kostnaðar. Við erum með um 70 bíl-
stjóra á okkar vegum og erum stór
hagsmunaaðili að þessu máli. Svona
breytingar þurfa meiri fyrirvara en
bara nokkra daga.“
Vísar málinu til föðurhúsanna
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss,
segir engan samning á borðinu um
notkun Bolaöldu fyrir urðun frá höf-
uðborgarsvæðinu.
„Það hefur verið samkomulag und-
anfarið um að Sorpa sæi um rekstur-
inn á Bolaöldu, en mér finnst ekkert
eðlilegt að við séum með þetta á okkar
landi þar sem við höfum ekki tekið á
móti einni steinvölu úr Ölfusi í Bola-
öldu og höfum engar tekjur af þessari
starfsemi.“
Hann segist hafa skilning á óvissu-
þættinum sem skapist hjá verktökum
vegna málsins, en vísar því til borg-
arinnar og sveitarfélaganna sem hafa
verið að nýta sér svæðið gjaldtöku-
laust. „Þessi mál verður að leysa þar
sem þau eiga heima.“ doraosk@mbl.is
Víðtækar afleiðingar af lokuninni
- Bolaöldu lokað fyrir móttöku jarðvegs - Vörubílstjórum brugðið og benda á sáralítinn fyrirvara
Elliði
Vignisson
Stefán
Gestsson