Morgunblaðið - 04.04.2022, Blaðsíða 27
stjórn Freys Alexanderssonar, er með
46 og Horsens 43 í þremur efstu sæt-
unum þegar níu umferðum er ólokið.
_ Aron Bjarnason skoraði fyrra mark
Sirius í 2:1 sigri á Sundsvall í fyrstu um-
ferð sænsku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu í gær. Aron lék fyrstu 75 mín-
úturnar með Sirius.
_ Willum Þór Willumsson lék allan
leikinn og lagði upp tvö marka BATE
Borisov þegar liðið vann Belshina, 3:0,
á útivelli í hvítrússnesku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu á laugardag. BATE hefur
unnið tvo fyrstu leiki sína.
_ ÍR-konur mæta Ármanni í úr-
slitaeinvígi um sæti í úrvalsdeild
kvenna í körfubolta eftir að hafa sigrað
KR í oddaleik,
84:65, í Seljaskóla
á laugardags-
kvöldið. Fyrsti
leikurinn fer fram
á heimavelli Ár-
manns í Kenn-
araháskólanum
annað kvöld. Gla-
diana Jimenez og
Aníka Linda
Hjálmarsdóttir skoruðu 20 stig hvor
fyrir ÍR en Chelsea Jennings skoraði 18
stig fyrir KR og tók 14 fráköst.
_ Þóra Kristín Jónsdóttir er komin
með Falcon í úrslitaeinvígið um danska
meistaratitilinn í körfubolta en hún átti
stórleik í sigri á Herlev á útivelli, 92:78,
á laugardag. Hún skoraði 26 stig og tók
4 fráköst á 32 mínútum. Ástrós Lena
Ægisdóttir tók eitt frákast og átti eina
stoðsendingu fyrir Falcon sem vann
einvígið 2:0 og mætir Sisu eða Amager
í úrslitunum.
_ Jón Daði Böðvarsson landsliðs-
maður í knattspyrnu tryggði Bolton stig
gegn Wigan í ensku C-deildinni á laug-
ardaginn með glæsilegu skallamarki,
1:1, á 83. mínútu. Jón Daði, sem kom
inn á sem varamaður á 55. mínútu,
skoraði þarna sitt 60. deildamark á ferl-
inum, í 355 leikjum.
_ Guðmundur Ágúst Kristjánsson
hafnaði í ellefta sæti á Limpopo-
golfmótinu sem lauk í Suður-Afríku í
gær og var hluti af Áskorendamótaröð
Evrópu. Hann lék fjórða og síðasta
hringinn á 71 höggi en hafði áður leikið
á 68, 69 og 70 höggum, og var samtals
á tíu höggum undir pari. Mateusz Gra-
decki frá Póllandi sigraði á 19 höggum
undir pari.
_ Óskar Ólafsson er kominn í undan-
úrslit Evrópubikars karla í handknatt-
leik með norska liðinu Drammen. Óskar
skoraði þrjú mörk í útisigri gegn Suhr
Aarau í Sviss í gær, 33:32, en Drammen
vann þar með 64:61 samanlagt.
_ Hörður frá Ísafirði er einu stigi frá
því að vinna sér úrvalsdeildarsæti í
handknattleik karla í fyrsta sinn eftir
sigur á Fjölni, 38:36, á Ísafirði í gær-
kvöld. Harðarmönnum nægir jafntefli
gegn Þór frá Akureyri í lokaumferðinni
á föstudagskvöldið kemur.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit kvenna, fyrsti leikur:
Dalhús: Fjölnir – Njarðvík .................. 18.15
Hlíðarendi: Valur – Haukar ................ 20.15
Umspil karla, undanúrslit, annar leikur:
Álftanes: Álftanes – Sindri .................. 19.15
Dalhús: Fjölnir – Höttur...................... 20.30
Í KVÖLD!
Spánn
Zaragoza – Joventut Badalona.......... 63:77
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 6 stig,
tók 7 fráköst og átti eina stoðsendingu á 21
mínútu fyrir Zaragoza.
Belgía/Holland
Landstede Hammers – Belfius Mons 95:96
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor-
aði 9 stig fyrir Landstede, tók 2 fráköst og
átti 2 stoðsendingar á 22 mínútum.
Hague Royals – Limburg ................... 69:93
- Snorri Vignisson skoraði 13 stig, tók eitt
frákast og átti eina stoðsendingu fyrir
Hague á 22 mínútum.
>73G,&:=/D
Olísdeild karla
Selfoss – ÍBV ........................................ 32:31
Fram – FH............................................ 24:24
Staðan:
Haukar 20 14 4 2 605:544 32
Valur 20 14 2 4 574:496 30
ÍBV 20 12 3 5 608:595 27
FH 20 12 3 5 561:515 27
Selfoss 20 11 2 7 556:535 24
Stjarnan 20 10 2 8 569:559 22
KA 20 9 2 9 550:567 20
Afturelding 20 6 7 7 554:557 19
Grótta 20 7 3 10 546:552 17
Fram 20 6 3 11 546:567 15
HK 20 1 2 17 521:589 4
Víkingur 20 1 1 18 459:573 3
Grill 66-deild karla
Haukar U – Þór .................................... 34:29
Valur U – Þór........................................ 36:29
Haukar U – Afturelding U .................. 24:21
Hörður – Fjölnir................................... 38:36
Selfoss U – Vængir Júpíters ............... 33:25
Staða efstu liða:
Hörður 19 16 0 3 662:536 32
ÍR 19 15 1 3 660:547 31
Fjölnir 19 14 0 5 597:537 28
Þór 19 13 1 5 581:527 27
Haukar U 19 12 0 7 550:508 24
Olísdeild kvenna
ÍBV – Stjarnan ..................................... 29:24
Afturelding – Fram.............................. 20:38
KA/Þór – HK ........................................ 26:23
Valur – Haukar..................................... 27:25
Staðan:
Fram 19 14 1 4 535:453 29
Valur 19 14 0 5 517:432 28
KA/Þór 19 13 1 5 533:488 27
ÍBV 18 10 0 8 485:465 20
Haukar 19 9 1 9 527:504 19
Stjarnan 19 8 0 11 491:502 16
HK 19 5 1 13 436:499 11
Afturelding 18 0 0 18 407:588 0
Grill 66-deild kvenna
Grótta – Stjarnan U ............................. 31:30
ÍBV U – Fjölnir/Fylkir ........................ 30:19
Selfoss – Fram U.................................. 31:22
HK U – Valur U.................................... 30:26
Staða efstu liða:
Selfoss 18 15 2 1 541:437 32
ÍR 18 14 1 3 491:402 29
FH 19 13 3 3 508:424 29
Grótta 19 10 2 7 488:452 22
HK U 19 10 1 8 514:495 21
Þýskaland
RN Löwen – Flensburg....................... 29:29
- Ýmir Örn Gíslason skoraði 3 mörk fyrir
Löwen en Teitur Örn Einarsson lék ekki
með Flensburg.
Göppingen – Balingen ........................ 27:28
- Janus Daði Smárason lék ekki með
Göppingen en Daníel Þór Ingason skoraði
eitt mark fyrir Balingen.
Lemgo – Minden .................................. 20:32
- Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk fyrir
Lemgo.
N-Lübbecke – Melsungen................... 23:31
- Elvar Örn Jónsson skoraði 2 mörk fyrir
Melsungen og Alexander Petersson eitt.
Blomberg-Lippe – Zwickau ............... 28:25
- Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 4
mörk fyrir Sachsen Zwickau.
Danmörk
GOG – Nordsjælland ........................... 33:27
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 8 skot í
marki GOG sem er deildarmeistari.
Aalborg – Ribe-Esbjerg...................... 33:29
- Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir
Aalborg sem endar í öðru sæti.
Frakkland
París SG – Aix...................................... 37:32
- Kristján Örn Kristjánsson skoraði 2
mörk fyrir Aix sem er í þriðja sæti.
St.Raphaël – Nancy............................. 35:27
- Elvar Ásgeirsson skoraði 5 mörk fyrir
Nancy sem er neðst í deildinni.
%$.62)0-#
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
KA Jóna Margrét Arnarsdóttir, átján ára fyrirliði KA, býr sig undir að lyfta
bikarnum eftir sigur Akureyrarliðsins á Aftureldingu í Digranesi í gær.
BLAK
Víðir Sigurðsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gunnar Egill Daníelsson
Blakbikararnir tveir verða geymdir í
Hveragerði og á Akureyri næsta ár-
ið eftir að Hamar varð bikarmeistari
karla í gær og KA bikarmeistari
kvenna en úrslitaleikirnir fóru þá
fram í Digranesi í Kópavogi, rétt
eins og undanúrslitaleikirnir næstu
tvo daga á undan.
Hið nýja blakstórveldi Hamars
sem hefur verið nánast ósigrandi frá
stofnun liðsins fyrir tveimur árum er
bikarmeistari annað árið í röð. Ham-
arsmenn lögðu KA að velli, 3:0, í úr-
slitaleiknum en Akureyrarfélagið
hafði orðið bikarmeistari í sex af síð-
ustu níu skiptum áður en röðin kom
að Hvergerðingum.
KA vann hins vegar sigur á Aftur-
eldingu í æsispennandi tveggja tíma
úrslitaleik í kvennaflokki eftir odda-
hrinu, 3:2, þar sem Mosfellingar
voru með undirtökin að þremur
hrinum loknum. KA-konur eru þar
með bikarmeistarar í annað sinn á
þremur árum en þær unnu þennan
titil í fyrsta skipti árið 2019.
KA er í efsta sæti í úrvalsdeild
kvenna og getur með sigri um næstu
helgi tryggt sér deildarmeistaratit-
ilinn. Að deildakeppni lokinni tekur
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Hamar Ragnar Ingi Axelsson með bikarinn ásamt bræðrunum Hafsteini og
Kristjáni Valdimarssonum eftir sigurinn á KA í Digranesi í gær.
við úrslitakeppni um Íslandsmeist-
aratitilinn.
Planið var að vinna allt
„Ég sagði þegar ég kom hingað í
september að það væri planið mitt
að vinna allt. Þá vissi ég ekki að það
væru þrír titlar í boði, líka deild-
armeistaratitill. Ég hef trú á því að
við getum unnið þrennuna,“ sagði
Króatinn Tea Andric við Morg-
unblaðið en hún átti stórleik með KA
gegn Aftureldingu og skoraði 28
stig.
Radoslaw Rybak, spilandi þjálfari
Hamars, er orðinn 49 ára gamall en
hann lék á sínum tíma með pólska
landsliðinu sem hafnaði í fimmta
sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu ár-
ið 2004.
Mitt síðasta tímabil
„Ég væri helst til í nýja kennitölu
sem segir að ég sé yngri en það er
víst ekki hægt. Það er virkilega gott
að spila með þessum strákum sem
gætu verið synir mínir. Þetta er því
miður mitt síðasta tímabil. Ég verð
að hætta einhvern tímann. Ég reyni
hvað ég get út þessa leiktíð en svo
hætti ég,“ sagði Rybak við Morg-
unblaðið en hann getur bætt við
tveimur titlum í viðbót áður en tíma-
bilið er úti.
_ Nánar er fjallað um úrslitaleik-
ina á mbl.is/sport.
Hveragerði og Akureyri
- Hamar bikarmeistari karla í annað sinn og KA bikarmeistari kvenna í annað sinn
Valskonur hafa örlögin í eigin hönd-
um eftir sigur á Haukum, 27:25, í úr-
valsdeild kvenna í handbolta í gær.
Þær eru stigi á eftir Fram en stigi á
undan KA/Þór, og mæta báðum
keppinautunum í tveimur síðustu
umferðunum. Tvö efstu liðin fara
beint í undanúrslit þannig að slag-
urinn um deildarmeistaratitilinn og
um að sleppa við fyrstu umferðina er
afar tvísýnn.
Eitt þessara liða fer þangað ásamt
ÍBV, Haukum og Stjörnunni.
Thea Imani Sturludóttir skoraði
sjö mörk fyrir Val og þær Sara Od-
den og Elín Klara Þorkelsdóttir sjö
mörk hvor fyrir Hauka.
_ Steinunn Björnsdóttir sneri aft-
ur í lið Fram eftir langa fjarveru
vegna krossbandsslits og skoraði 6
mörk í stórsigri á botnliði Aftureld-
ingar að Varmá, 38:20. Þórey Rósa
Stefánsdóttir skoraði einnig 6 mörk
fyrir Fram en Katrín Helga Davíðs-
dóttir skoraði 7 mörk fyrir Aftureld-
ingu.
_ Hrafnhildur Hanna Þrast-
ardóttir og Elísa Elíasdóttir skoruðu
7 mörk hvor fyrir ÍBV í sigri á
Stjörnunni í Eyjum, 29:24. Elísabet
Gunnarsdóttir og Eva Björk Davíðs-
dóttir skoruðu 6 mörk hvor fyrir
Stjörnuna.
_ Martha Hermannsdóttir og
Rakel Sara Elvarsdóttir skoruðu 7
mörk hvor fyrir KA/Þór í sigri á HK,
26:23, en Elna Ólöf Guðjónsdóttir
skoraði 6 mörk fyrir HK.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Sjö Elísa Elíasdóttir skorar eitt af sjö mörkum sínum fyrir ÍBV í sigrinum
gegn Stjörnunni á laugardaginn. ÍBV stendur vel að vígi í fjórða sætinu.
Valur með örlögin
í eigin höndum