Morgunblaðið - 04.04.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Boccia með Guðmundi kl. 10. Spænskukennsla kl. 11.
Handavinna kl. 12.30-16. Félagsvist kl. 12:45. Glervinnustofa kl. 13 -
16. Hjólað á æfingahjóli fyrir framan skjá um borg og bý kl. 14.
Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-
15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600.
Bústaðakirkja Aðalafundur kvenfélags Bústaðasóknar er í kvöld kl
19:30 í safnaðarsal kirkjunnar.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7:00-8:00. Kaffisopi og
spjall kl. 8:30-11:00. Postulínsmálun kl. 9:00-12:00. Morgunleikfimi
með Halldóru á RUV kl. 9:45-10:00. Ganga kl. 10:00. Hádegismatur kl.
11:30-12:30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13:00-13:10.Tálgun með Valdóri
kl. 13:00-15:30. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30.
Garðabær Kl. 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi Kl. 10.00 Gönguhópar frá
Jónsh. og Smiðju Kl. 11.00 Stóla-jóga í Kirkjuhvoli Kl. 12.30-15.40
Bridds í Jónshúsi Kl. 12.40 Bónusrúta frá Jónshúsi Kl.
15.00/15.40/16.20 Vatnsleikfimi í Sjál. Kl. 16.30 Zumba Gold í Kirkju-
hvoli Glernámskeið fellur niður 14.og 21.mars.
Gjábakki kl. 8.30 til 16.00 = Opin handavinnustofa, kl. 9.00 til 10.30 =
Boccía-æfing, kl. 9.00 til 11.30 = Postulínsmálun, kl. 10.50 til 12.15 =
Jóga, kl. 13 til 16 = Opið verkstæði, kl. 13.15 til 15.00 = Canasta, kl.
16.30 til 18.30 = Söngvinir með kóræfingu.
Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 15.mars er opið hús fyrir eldri bor-
gara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13:00-15:00. Margt er sér til
gamans gert s.s. spilað, spjallað og sungið. Að opna húsinu loknu er
boðið upp á kaffi og meðlæti. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir.
Kyrrðarstund er kl. 12:00. Að henni lokinni er boðið upp á léttan
háegisverð gegn vægu gjaldi. Verið öll hjartanlega velkomin!
Gullsmári 13 Opin handavinnustofa kl.09:00-16:00.
Qigong heilsueflandi æfingar kl.09:00. Bridge kl.13:00. Jóga kl.17:00.
Félagsvist kl.20:00.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli
9:00-11:00. Samsöngur kl 13:30 Allir velkomnir, sönghefti á staðnum,
veitingar seldar eftir á.
Hraunsel Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9:00. Stóla yoga kl.
10. Félagsvist kl. 13:00. Gaflarakórinn: Kl. 11:00.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Minning-
ahópur kl. 10:30. Jóga með Ragnheið Ýr kl. 12:20. Zumba með Carynu
kl. 13:10.Tálgun – opinn hópur kl. 13:00-16:00. Bridge kl.13:00.
Sýnikennsla í umhverfisvænum pakkaskreytingum og kortagerð kl.
13:30. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum
áður.
Korpúlfar Borgum Hugleiðsla og létt jóga kl. 8:30. Gönguhópar frá
Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll kl.10:00. Dansleikfimi
með Auði Hörpu kl. 11:00. Félagsvist kl. 12:30. Prjónað til góðs og
frjáls skartgripagerð kl. 13:00.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl.
13:00. Línudans kl. 15:00. Kóræfing kl. 16:00. Hádegisverður kl. 11:30
til 12:30 og kaffiveitingar kl. 14:30 til 15:30.
Seltjarnarnes KKaffikrókur alla morgna kl. 9-11.30. Leir Skólabraut
kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Jóga/leikfimi í salnum á Skólabr. kl. 11.
Handavinna samvera og kaffi á Skólabraut kl. 13. Gler á neðri hæð
félagsheimilisins kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Munið skráninguna á
gaman saman nk. miðvikudag. Skráningarblöð á Skólabraut og
Eiðsismýri. Einnig skráning í síma 8939800. Veitingar, glens og
gaman.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Sólarfilmur
Hurðaspjöld
Húsviðhald
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Sími 555 1947
Gsm 894 0217
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝
Sigurður Jósef
Björnsson
fæddist 19. nóv-
ember 1951 á Sauð-
árkróki. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu, Barða-
stöðum 21, 21.
mars 2022.
Foreldrar hans
voru séra Björn
Björnsson prófast-
ur á Hólum í
Hjaltadal, f. 7. maí 1912, d. 9.
október 1981, og Emma Hansen
kennari og bókavörður, f. 15.
febrúar 1918, d. 2. júlí 2010.
Systkini Sigurðar eru Björn
Friðrik, f. 1941, Ragnar, f. 1945,
og Gunnhildur Kristín, f. 1961.
Thu Thi Nguyen, f. 1966. Þau
skildu.
Sigurður Jósef var
gagnfræðingur frá Reykjaskóla
í Hrútafirði og lauk sveinsprófi
í vélvirkjun frá Iðnskóla Sauð-
árkróks og Bifreiða- og véla-
verkstæði KS í nóvember 1976.
Hann vann við ýmiss konar
vélavinnu hjá Ræktunarsam-
bandi Skagfirðinga í þrjú sumur
1971-1973, á vélaverkstæði KS
1973-1977 og var verkstjóri við
malarvinnslu hjá Grettistaki hf.
1977-1980. Hann starfaði lengst
af við blikk- og járnsmíði, hjá
Blikki og stáli 1980-1993 og
Stjörnublikki 1993-2010.
Sigurður Jósef hafði mikinn
áhuga á bílum og bíla-
viðgerðum. Hann var góður
járnsmiður svo sem margir
gripir sem hann smíðaði bera
vitni um.
Útför Sigurðar Jósefs fer
fram frá Fossvogskirkju í dag,
4. apríl 2022, klukkan 13.
Sigurður Jósef
giftist 1973 Helgu
Jóhönnu Haralds-
dóttur, f. 1951. Þau
skildu. Sonur
þeirra er Ari Björn
Sigurðsson tölv-
unarfræðingur, f.
1973. Börn hans og
Esterar Ingv-
arsdóttur, f. 1978,
eru Ynja Mist, f.
1996, Óðinn, f.
2000, og Urður, f. 2005. Unn-
usta Ara er Rebekka Stef-
ánsdóttir skurðhjúkrunarfræð-
ingur, f. 1979. Synir hennar eru
Óskar Smári Viðarsson, f. 2005,
og Stefán Viðarsson, f. 2009.
Seinni kona Sigurðar var Thuy
Þegar eitthvað bilaði, hvort
sem það var bíll, krani eða hvað
sem var, þá var kallað í Bróa.
Hann gat lagað allt og var úr-
ræðagóður. Hann undi sér best
á verkstæðinu innan um bílana
sína, logsuðutækin og öll þessi
verkfæri sem ég kunni engin
skil á. Hann hafði smekk fyrir
amerískum drekum, grófum
jeppum og pallbílum. Hann átti
um tíma fjórhjól sem hann fór á
um fjöll og firnindi og einnig
hlut í bát. Honum sigldi hann út
á bugtina til að veiða fisk og
varð eitt sinn vélarvana á
miðjum Faxaflóa. Mig minnir að
talstöðin hafi ekki verið alveg í
lagi, en einhver kom til bjargar
svo þetta reddaðist. Hlutirnir
voru stundum ekkert alveg í
topplagi og líka erfitt að hlíta
öryggisreglum alveg fram í
fingurgóma.
Sigurður Jósef var alinn upp
á Hólum í Hjaltadal. Staðurinn
átti alltaf sess í huga hans.
Hann var líflegur krakki og
atorkumikill. Þegar faðir hans
var upptekinn við messusöng og
móðirin í kirkjukórnum, var
engin ástæða til að sitja kyrr á
bekknum. Miklu fremur að
ganga um kirkjuna, jafnvel
bregða sér upp í predikunar-
stólinn þegar enginn sá til og
svo kannski hífa sig upp og líta
yfir söfnuðinn úr stólnum. Slík
uppátæki voru ekki öllum að
skapi. Þegar séra Friðrik Frið-
riksson kom eitt sinn í Hóla og
var við messu, hélt Sigurður
uppteknum hætti og ráfaði um
kirkjuna meðan á messunni
stóð. Móðir okkar var miður sín
og afsakaði hegðun hans strax á
eftir. Séra Friðrik svaraði að
hann hefði haft gaman af að
fylgjast með stráknum og þetta
væri bara til marks um það að
hann ætti heima í kirkjunni.
Sigurður lét ekki alltaf vel að
stjórn, hann fór sínar eigin leið-
ir.
Brói var næstur mér í
systkinaröðinni og sá eini minna
bræðra sem enn var í foreldra-
húsum þegar ég man eftir.
Hann var stríðinn og þar lá litla
systir vel við höggi. Allt var það
þó í góðu gamni gert, hvort sem
hann fór með vísuna um Gunnu
tunnu grautarvömb yfir graut-
ardisknum, elti mig með lifandi
mús eða jafnvel bara hávað-
sömu Hoover-ryksugunni þegar
ég var enn yngri. Í honum átti
ég þó alltaf hauk í horni þegar á
þurfti að halda. Hjá honum fékk
ég að keyra bíl í fyrsta sinn, þá
aðeins um fermingu og lét hann
mig byrja á því að bakka út úr
stæði. Ætíð var gott að leita til
hans með allt sem viðkom fram-
kvæmdum og oft hægt að fá
hann til að smíða eitthvað sem
mann langaði í eins og til dæmis
nýja kertastjaka.
Sigurður Jósef var drengur
góður og hafði notalega nær-
veru. Hann þurfti þó ekki alltaf
félagsskap því hann undi sér vel
einn.
Móðir okkar, Emma Hansen,
orti erfiljóð til frænda og eins
besta vinar Bróa, Friðriks á
Svaðastöðum, sem dó langt fyrir
aldur fram. Mér finnst þessi er-
indi úr ljóðinu eiga einnig vel við
núna þegar ég kveð kæran bróð-
ur, Sigurð Jósef.
Horfinn er ævierill
örlaganóttin gengin.
Hjartað sem brast í brjósti
bróðurins skildi enginn.
Oft mun að efsta hjalla
erfiði göngumóðum.
Gefi þér Guð á hæðum
gæfu á nýjum slóðum.
Minning um æskuárin
yljar í huga mínum.
Eilífð sem enginn skilur
orðin að vegi þínum.
Gunnhildur Kristín
Björnsdóttir.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Minningarnar eru margar allt
frá því að kær bróðir minn Sig-
urður Jósef kom í heiminn og
þar til hann lést. Fyrstu ár ævi
hans gætti ég hans oft og hafði
gaman af. Hann var líflegur og
kátur strákur, stríðinn og
hugmyndaríkur og það fór vel á
með okkur. Með aldrinum
hætti hann að líta upp til stóra
bróður og vildi auðvitað fara
sínar eigin leiðir, vorum við þá
ekki alltaf sammála. Hann var
duglegur og hafði alltaf eitt-
hvað fyrir stafni. Hann hafði
áhuga á mörgu, sérstaklega
öllu sem viðkom vélum og bíl-
um sem varð til þess að hann
lauk námi í vélvirkjun. Gamlir
bílar sem þurfti að gera upp
voru hans áhugamál og hjálpaði
hann mér oft við að halda mín-
um bílum í lagi. Naut öll fjöl-
skyldan góðs af færni hans og
útsjónarsemi varðandi viðgerð-
ir og ráðleggingar við bílakaup.
Hann var mjög góður hand-
verksmaður, allt lék í höndum
hans, ekki síst járnsmíði og á
fjölskyldan fallega og góða
gripi sem vitna um það. Meðan
Sigurður bjó fyrir norðan var
mikill samgangur milli heimila
okkar en heldur dró úr honum
þegar hann var farinn að vinna
í Reykjavík og víðar. En við
héldum alltaf góðu sambandi
og fylgdumst með lífi hvor ann-
ars þar til yfir lauk. Hann var
eftirsóttur starfsmaður og vann
mikið. Fyrir norðan vann hann
á jarðýtum, gröfum og á Bif-
reiða- og vélaverkstæði KS.
Eftir að hann flutti suður vann
hann aðallega við blikk- og
járnsmíði allt til ársins 2010.
Þá fór heilsu hans að hraka og
átti hann oft erfiða tíma. Ragn-
ar bróðir okkar veitti honum
alltaf þann stuðning sem hann
þurfti vegna veikinda og ber að
þakka það.
Blessuð sé minning Sigurðar
Jósefs bróður míns og innilegar
samúðarkveðjur til Ara Björns
sonar hans og fjölskyldu.
Klukkur tímans tifa
telja ævistundir
ætíð lengi lifa
ljúfir vinafundir.
Drottinn veg þér vísi
vel þig ætíð geymi
ljósið bjart þér lýsi
leið í nýjum heimi.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Björn Friðrik Björnsson.
Augun voru glettin og þegar
stríðnisglampa brá fyrir og
prakkarasvipur færðist yfir
andlitið var eitthvað í uppsigl-
ingu. Litla systir hafði stundum
fengið að finna fyrir stríðninni
en hann passaði sig að láta
hana aldrei ganga of langt,
verða aldrei kvikindislega. Til
þess var leikurinn ekki gerður.
Svo brosti hann og hló og það
var eiginlega ekki annað hægt
en hlæja með honum.
Sigurður Jósef var nefnilega
ljúflingur sem engum vildi illt.
Hann var góð sál og hjálpsam-
ur og hafði einlægan áhuga á
sínu nánasta fólki, þótt hann
ætti stundum erfitt með að
sýna það. Ekki síst var gott að
leita til hans þegar fram-
kvæmdir stóðu fyrir dyrum því
Brói var útsjónarsamur og
hafði gott verksvit.
Hann ólst upp á Hólum í
Hjaltadal, innan um alls kyns
tæki og tól, og hafði frá barn-
æsku óstjórnlegan áhuga á öll-
um vélum. Það var því ósköp
eðlilegt að Brói lærði vélvirkj-
un, þótt svo að blikksmíði yrði
hans aðalstarf. Bílar voru hans
líf og yndi, flottir kaggar eða
jeppar, og þegar færi gafst eft-
ir langan vinnudag gat hann
dundað sér við að gera upp
gamla bíla eða laga bíla fyrir
aðra. Þekking hans á bílum
kom sér ekki síst vel þegar
kaupa átti notaða bifreið, þá
gat hann gefið góð ráð um
hvaða bílategundir kæmu helst
til greina – og hverjar ætti að
varast.
Brói var flinkur í höndunum
og völundur á blikk og stál.
Hann var duglegur til vinnu og
ósérhlífinn og eftirsóttur
starfsmaður. Hann gerði einnig
marga góða gripi úr smíðajárni
og hefði án efa getað náð langt
í hönnun og smíði listagripa, ef
hann hefði leyft sér að eyða
meiri tíma í þá iðju. Hæfileik-
arnir voru svo sannarlega til
staðar.
Sveinn Agnarsson.
Sigurður Jósef
Björnsson
Einn af öðrum
hverfa þeir nú á
braut gömlu Búð-
dælingarnir, fólkið
sem byggði upp
litla þorpið við Hvammsfjörðinn.
Þorpið sem Þorsteinn Eggerts-
son gerði ódauðlegt með text-
anum um lukkunnar pamfílinn
sem tárvotur kom heim þar sem
meyjarnar biðu hans í röðum.
Ása flutti ásamt eiginmanni
sínum Einari til Búðardals árið
1961 og þar lifðu þau og störf-
uðu allt til ársins 2003. Hjón
sem alla jafnan voru kennd
hvort við annað, Einar hennar
Ásu og Ása hans Einars. Saman
stofnuðu þau verslun Einars
Stefánssonar, verslun sem í dag-
legu tali var alla jafnan kölluð
Ásubúð. Þar störfuðu þau alla
Ása Stefánsdóttir
✝
Ása Stef-
ánsdóttir fædd-
ist 14. nóvember
1935. Hún andaðist
24. mars 2022.
Útför fór fram 2.
apríl 2022.
tíð saman, Einar sá
um verkstæðið og
sinnti rafvirkjun
vítt og breitt um
Dalasýslu og ná-
grenni og Ása sá
um allan daglegan
rekstur verslunar-
innar.
Ég varð þeirrar
gæfu aðnjótandi að
ráðast til starfa hjá
Ásu og Einari og
vann ég hjá þeim hjónum þrjú
sumur auk þess að vinna þar í
nokkrum jólavertíðum. Í Ásubúð
var hægt að kaupa allt milli him-
ins og jarðar, þar fengust leik-
föng, garn, kristalsglös, ljós, raf-
tæki, málning,
happadrættismiðar, skartgripir,
úr, klukkur, styttur og alls kon-
ar gjafavara. Ása var alltaf
„elegant“ í fasi, hafði gott auga
fyrir innkaupum og var mikill
verslunarmanneskja. Hún var
ákveðin á því hvernig hún vildi
að hlutir væru gerðir og lagði
mikið upp úr því að það ætti að
þjónusta viðskiptavinina vel,
veita góða ráðgjöf, pakka gjöfum
fallega inn og aðstoða á annan
máta eftir þörfum. Að vinna í
Ásubúð fyrir jólin var einstak-
lega skemmtilegt, þá var mikið
að gera og margir þurftu aðstoð
við að finna smáar og stórar
gjafir sem síðan var pakkað inn
eftir kúnstarinnar reglum. Þá
var Ása svo sannarlega í essinu
sínu og afgreiddi af röggsemd
allt það sem sveitungana van-
hagaði um. Síðasta sumarið sem
ég vann í Ásubúð treystu þau
hjón mér fyrir daglegum rekstri
verslunarinnar um nokkurra
vikna skeið á meðan þau fóru í
frí á griðastað sínum austan-
lands. Undirbjó Ása þetta vel
þannig að allt gengi nokkuð
snurðulaust fyrir sig meðan þau
væru fjarverandi og ég gerði
mitt besta til þess að standa
undir þeirri ábyrgð sem þau fólu
mér þetta sumar.
Hjá Ásu og Einari var gott að
vinna og ég minnist þeirra hjóna
og þeirra gilda sem ég lærði
undir stjórn Ásu af hlýju og
þakklæti. Blessuð sé minning
hennar. Aðstandendum votta ég
mína innilegustu samúð.
Sigríður Hjördís
Jörundsdóttir.