Morgunblaðið - 04.04.2022, Síða 32
FERMINGAR
TILBOÐ
GÓÐUR
STUÐNINGUR
VIÐMJÓBAK
ÝMIR
HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT
POKAGORMAKERFI
Styður mun betur við líkamann en venjuleg
%ECG4!'C=, 8E!4%ECG4CF#C 'C@ G'QG#B0
L3!!@G ?*C '&A#C L?* $?4C L'#C 'C@ BA4QB'AA#C
* (MF@FF#,9"N!#C ?#Q 4>R4B?-Q#2 BA*=C ?#Q
G"P)4!BB?-Q#2G#RR#BA*=C * G#Q"@FF#,
330 gormar per fm2, 7?*$'CA BA.R,
VERÐ ÁÐURSTÆRÐ VERÐ NÚ
120×200
140×200
150×200
99.900 kr.
114.900 kr.
129.900 kr.
89.900 kr.
104.900 kr.
119.900 kr.
1RR ?'CQ G'Q 86 )EAF# E% &PA@G,
J7:, I'#C# BA-Q#C * )EQ#,
V
e
rð
b
ir
t
m
e
ð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
in
n
sl
á
tt
a
rv
il
lu
r
o
g
/e
ð
a
b
re
yt
in
g
a
r.
FRIGG, ÓÐINN OG IÐUNN:
1RR ?'CQ 'C@ G'Q 86 )EAF# E% &PA@G, J7:, I'#C# BA-Q#C * )EQ#,
STÆRÐ VERÐ ÁÐUR VERÐ NÚ
120×200
140×200
150×200
139.900 kr.
159.900 kr.
179.900 kr.
119.900 kr.
139.900 kr.
159.900 kr.
IÐUNN
GÓÐ SJÖ SVÆÐASKIPT
HEILSUDÝNA SEM STYÐUR RÉTT
VIÐ LÍKAMANN
HEER '&F4)R4F(4F 4QR4%4BA R*!4G4F@GE%
%'&@C )'AC# OF(@F,;PQLCMBA#"O&F@FE% C+AA@C
BA@QF#F%@C AC3%%#C )'AC4 )RPQI-Q# E%)'AC# R*Q4F2
LN &-CQ(MDC# E%)'AC# B?'&F,
FRIGG
HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT
HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI
9'QK B?-Q4B!#DA@ DE!4%ECG4!'C=,;PQ@C
G"P)4!BBA@QF#F%@C, 9M!C4 E% )'AC4 4>R4B?-Q#,
/CMBA#"O&F@F4C'&F# * )PRBAC@F, 54F(4Q4C
!4FABA3C!#F%4C, <@RR!EG#F FMA#F% . B?'&FI'A#,
ÓÐINN
HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT
HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI
9'QK B?-Q4B!#DA@ DE!4%ECG4!'C=,;PQ@C
G"P)4!BBA@QF#F%@C,9M!C4 E%)'AC4 4>R4B?-Q#,
/CMBA#"O&F@F4C'&F# * )PRBAC@F,54F(4Q4C
!4FABA3C!#F%4C,<@RR!EG#FFMA#F% . B?'&FI'A#,
– MILLISTÍF
– STÍF
25%
AFSLÁTTUR
AF FYLGIHLUTUM
VIÐ DÝNUKAUP
VERÐ SEM
KOMA Á
ÓVART
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Sönghópurinn Voces Thules fagnar 30 ára afmæli með
tónleikum í Salnum í Kópavogi annað kvöld, þriðjudag,
kl. 19.30. Á tónleikunum flytja félagarnir gamlar og
góðar perlur úr eigin ranni en frumflytja jafnframt tvö
verk sem samin eru sérstaklega fyrir Voces Thules, eft-
ir Arngerði Maríu Árnadóttur og Svein Lúðvík Björns-
son. Voces Thules skipa þeir Einar Jóhannesson, Eirík-
ur Hreinn Helgason, Eggert Pálsson, Eyjólfur
Eyjólfsson, Pétur Húni Björnsson og Sigurður Hall-
dórsson. Þá koma nokkrir gestir fram með þeim.
Þrjátíu ára afmælisfögnuður Voces
Thules verður í Salnum annað kvöld
MÁNUDAGUR 4. APRÍL 94. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður í körfuknattleik,
er kominn í eina af sterkustu deildum Evrópu en hann
gekk í gær til liðs við Tortona sem er í sjötta sæti
ítölsku A-deildarinnar og samdi við félagið til fimmtán
mánaða. Hann yfirgaf Antwerp Giants í Belgíu eftir að
hafa spilað með liðinu á laugardagskvöldið og er tilbú-
inn til að leika með Tortona á lokaspretti keppn-
istímabilsins á Ítalíu. »26
Elvar Már er kominn á stóra sviðið
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Júlíana var á undan sinni samtíð.
Hún skóp merka sögu og er nú á 21.
öld sterk fyrirmynd ungskálda og
annarra sem reyna sig við orðsins
list. Júlíana má ekki gleymast,“ seg-
ir Gréta Sig. Bjargardóttir í Stykk-
ishólmi. Um þarliðna helgi var hald-
in þar vestra í 9. sinn Júlíana – hátíð
sögu og bóka eins og viðburðurinn
er nefndur. Að honum stóðu Ásdís
Árnadóttir, Nanna Guðmundsdóttir,
Sunna Guðný Högnadóttir og Gréta
sem átti hugmyndina.
Börn til skapandi skrifa
Margvíslegir listviðburðir settu
svip sinn á mannlífið í Stykkshólmi
meðan á hátíðinni stóð. Tónlist-
armenn komu fram, lesið var úr bók-
um og börnin í grunnskóla bæjarins
voru virkjuð til skapandi skrifa. „Ég
er afar ánægð með samstarfið við
skólann, sem er hluti af þeim draumi
mínum að koma Stykkishólmi á
kortið sem bókmenntabæ, sem ég
tel að orðin sé raunin,“ segir Gréta.
Á Júlíönu sagði Ragnhildur Sig-
urðardóttir á Álftavatni í Staðarveit
frá Guðríði Þorbjarnardóttur: hinni
víðförlu landafundakonu sem var
uppi í kringum árið 1000. Guðríður,
sem var frá Laugarbekku undir
Snæfellsjökli, er sögð í fornum bók-
um hafa siglt átta sinnum yfir úthöf
og gengið þvert um Evrópu – og
meðal annars farið til Rómar. Að því
leyti m.a. var Guðríður fyrirmynd
rétt eins og Júlíana.
Fyrsta bók eftir konu á Íslandi
Júlíana Jónsdóttir var fædd 1838
og alin upp í Borgarfirði hjá afa sín-
um og stjúpömmu. Í æsku kynntist
hún kveðskap og bókmenntum og
komst Júlíana á bragðið, ef svo má
segja. Fulltíða bjó hún í Stykk-
ishólmi í um 10 ár og vakti þar og þá
athygli fyrir kveðskap sinn. Árið
1876 sendi hún frá sér ljóðabókina
Stúlka, fyrstu bókina eftir konu sem
gefin var út á Íslandi. Ekki löngu
síðar hélt Júlíana á braut og settist
að í Vesturheimi. Í Winnipeg kom út
önnur ljóðabók hennar, Hagalagðar,
það er árið 1916, réttum 40 árum eft-
ir útgáfu hinnar fyrri. – Júlíana lést
vestra árið 1917, þá 79 ára að aldri.
Af öðrum atburðum í tengslum við
Júlíönu má nefna frásögn Berg-
sveins Birgissonar um bók hans,
Leitin að svarta víkingnum; Einar
Kárason fjallaði úm Sturlunga og
fleira fólk og svo mætti lengi áfram
telja. Einnig var sýndur einþáttung-
urinn Víg Kjartans Ólafssonar, sem
einnig er eftir Júlíönu og er fyrsta
leikritið skrifað af konu á Íslandi. –
Þá var jafnhliða hátíðinni efnt til
smásagnasamkeppni sem vakti at-
hygli. Fyrstu verðlaun þar fékk
Unnur Guttormsdóttir fyrir söguna
Friðardúfan.
Uppgötvanir og ævintýri
„Bókmenntir hafa alltaf staðið
nærri hjarta mínu. Til þeirra hef ég
sótt bæði uppgötvanir og ævintýri.
Mér finnst því einkar gaman að geta
hér í Stykkishólmi efnt til hátíðar
bókmennta en hugmyndin kom nán-
ast fullmótuð eftir að ég hafði fyrst
heyrt um þessa mögnuðu konu. Júl-
íönuhátíð er því komin til að vera og
eins að nú stendur rithöfundum til
boða að koma hingað í Hólminn til
endurgjaldslausrar dvalar og vinna
að verkum sínum. Slíkt hafa nokkrir
nýtt sér á síðustu árum og verða
vonandi fleiri á næstu árum,“ segir
Gréta að síðustu.
Júlíana sterk fyrirmynd
- Stykkishólmur bókmenntabær - Hátíð sem vakti athygli
- Skáldskapur og skapandi skrif - Skáldin komi í bæinn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Menning Gréta Sig. Bjargardóttir við Egilsenhús í Stykkishólmi þar sem hún starfrækir hótel með fjölskyldu sinni.