Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Vísbendingar eru um að jarðhitakerfið á Hjalt-
eyri sé orðið fulllestað, en það mun að sögn
Helga Jóhannessonar, forstjóra Norðurorku,
koma betur í ljós í sumar hvernig kerfið bregst
við minnkandi dælingu.
Í febrúar sl. kom fram
aukið klórmagn í mæl-
ingum á jarðhitavatninu.
Það bendir til aukins snefil-
efnamagns úr sjó sem að
líkindum kemur gegnum
tengingar við Strýturnar á
botni Eyjafjarðar úti fyrir
Arnarnesi.
„Ef þetta er raunin, að
jarðhitakerfið við Hjalteyri
sé fullnýtt, þ.e. gefi ekki
frekari aukningu, blasir við að virkja þarf önnur
jarðhitakerfi og þau eru lengra í burtu,“ segir
Helgi.
Norðurorka á jarðhitaréttindi við Ytri-Vík og
Syðri-Haga í Dalvíkurbyggð og hafa þau verið
til rannsóknar undanfarin ár en kostnaðarsamt
er að sækja heitt vatn um langan veg.
Jarðhitakerfið á Hjalteyri hefur verið í notk-
un í um 20 ár og staðið undir allri aukningu hita-
veitunnar frá þeim tíma.
„Við getum þakkað fyrir að Hjalteyrarkerfið
sé svo gjöfult sem raun ber vitni, ekki síst þegar
horft er til þess að heitavatnsnotkun á Akureyri
og tengdum veitum hefur tvöfaldast á þessum
tveimur áratugum.“
Umgöngumst auðlindina af virðingu
Helgi segir Norðurorku alla tíð hafa lagt
áherslu á að ganga ekki of nærri náttúrauðlind-
um og haft sjálfbærni að leiðarljósi. Hlutverk
félagsins sé að sjá notendum fyrir heitu vatni og
þeim lífsgæðum sem hitaveitu fylgja. Tvöföldun
á notkun á heitu vatni á 20 árum er langt um-
fram fólksfjölgun yfir sama tímabil. „Það má
velta ýmsu upp varðandi notkun á heitu vatni og
hvort við gætum umgengist þessa auðlind okkar
af meiri virðingu og haft í huga að sóa henni
ekki,“ segir Helgi og nefnir m.a. að á næstu ár-
um verði byggðar upp verðskrár sem taki á só-
un og umframnotkun.
„Því miður höfum við búið til þá menningu á
Íslandi að jarðhitaauðlindin sé ótakmörkuð og
því er umgengnin um hana í takt við það. Þessu
þurfum við að breyta, þetta er takmörkuð auð-
lind sem ber að fara vel með. Það er heldur ekki
raunhæft til lengdar að varmaorka kosti ein-
ungis um 20% af rafmagnsorku, slíkt leiðir af
sér sóun og óþarfa notkun,“ segir Helgi.
Aðveitulögnin nýtist
Nú verði aukið fé og kraftur settur í rann-
sóknir og leit að nýjum jarðhitaauðlindum. Í
framhaldi þarf síðan að byggja upp ný vinnslu-
svæði með tilheyrandi kostnaði. Þessu fylgi
óhjákvæmilega að verð á heitu vatni hækkar.
Helgi segir stöðuna ekki á þann veg að heitt
vatn á Hjalteyrarsvæðinu sé að verða búið, en
nú þurfi að finna jafnvægi í sjáfbærri nýtingu á
jarðhitakerfinu og bregðast þannig við vísbend-
ingum og framhaldið sé að huga að nýjum
vatnsöflunarsvæðum. Enn er eftir að leggja
einn áfanga í svonefndri Hjalteyrarlögn sem er
eitt af stóru verkefnum Norðurorku undanfarin
ár. Jafnframt verður beðið með að byggja nýja
dælustöð á Hjalteyri. Kostnaður við heildar-
verkefnið kringum Hjalteyri var áætlaður um
2,5 milljarðar króna en Helgi segir að nýja að-
veitulögnin muni alltaf nýtast, ekki síst þegar
vatn er sótt úr norðri.
Jarðhitakerfi við Hjalteyri fullnýtt
- Heitavatnsnotkun á Akureyri hefur tvöfaldast á 20 árum, langt umfram fólksfjölgun - Virkja
þarf önnur jarðhitakerfi sem eru fjær Akureyri - Verðskrár sem taki á sóun og umframnotkun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hjalteyri Vísbendingar eru um að jarðhitakerfið á Hjalteyri við Eyjafjörð sé orðið fullnýtt og Norðurorka þurfi að virkja ný jarðhitakerfi.
Helgi
Jóhannesson
Edinborg er ein fegursta borg Skotlands og vagga skoskrar menningar. Það
er mikil upplifun að heimsækja borgina og skoða sig um í „Old Town“ sem og
nýrri borgarhlutanum. Gist er á hinu glæsilega Inter Continental Hotel við
George Street, sem margir hafa kallað „Champs-Élýsée“ Edinborgar þar sem
kaffihús, veitingastaðir og glæsilegar verslanir skarta sínu fegursta. Farið verður
í skoðunarferðir um borgina og utan hennar og heimsóknir í Edinborgar-
og Stirling kastala ásamt siglingu á Loch Katrine og heimsókn til
Whisky-framleiðanda auk kvöldskemmtunar „Spirit of Scotland Show“.
Innifalið í verði: Flug með Icelandair til Glasgow báðar leiðir, skattar og bókunargjald. 4ra nátta gisting á
Inter Continental ásamt morgunverði og kvöldverði. Allur akstur ásamt skoðunarferðum og aðgangi að
þeim stöðum sem heimsóttir verða. Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson.
• Aukagjald fyrir einbýli er kr. 85.000
Edinborg – fegursta borg Skotlands
Sérferð fyrir eldri borgara 18.-22. september
Verð 239.500 á mann m.v. gistingu í tvíbýli*
Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu
eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301,
einnig með tölvupósti í gegnum netfangið
hotel@hotelbokanir.is og á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is