Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Yfirlitssýningin Í undirdjúpum eigin vitundar verður opnuð í aðalsal Hafnarborgar í dag, laugardag, kl. 14. Þar verða sýnd verk lista- mannsins Gunnars Arnar Gunnarssonar (1946-2008), verk frá öllum ferli hans sem spannar tæplega fjörutíu ár. Gunnar Örn var virkur í sýningarhaldi hér á landi, auk þess sem verk hans voru meðal annars sýnd í Danmörku, Tókýó, Búdapest og í galleríi Achims Moeller í New York. Þá var hann fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 1988. Verk eftir listamanninn eru í eigu fjölmargra safna á Íslandi auk merkra safna á borð við Guggenheim í New York, samtíma- listasafnið Sezon í Tókýó og Moderna-safnið í Stokkhólmi. Aldís Arnardóttir, sýningarstjóri og for- stöðumaður Hafnarborgar, segir að hug- myndin að sýningunni hafi komið til vegna þess að bók um Gunnar er nýkomin út hjá Forlaginu, en hún skrifar um feril Gunnars Arnar fyrir útgáfuna. „Verk Gunnars Arnar hafa ekki verið sýnd hér á landi mjög lengi en hann lést árið 2008. Okkur fannst því tímabært að halda sýningu á verkum hans og varpa ljósi á feril listamanns- ins.“ Tilvist mannsins var aðalviðfangsefnið Á sýningunni verða verk frá ferli hans öllum og þrátt fyrir að list hans hafi tekið breyt- ingum í gegnum tíðina, segir Aldís að allt frá því að hann hélt sína fyrstu sýningu í Unuhúsi 1970, hafi ákveðið þema einkennt hans verk. „Tilvist mannsins, það að vera til í heim- inum, er viðfangsefni sem hann glímdi við alla tíð. Það er undirliggjandi þráður hjá honum og samnefnari í gegnum ferilinn. En hann gengur í gegnum ýmis tímabil og verkin eru ólík eftir því frá hvaða tíma þau eru.“ Aldís segir Gunnar hafa verið mjög afkasta- mikinn og eftir hann liggi verk af ýmsum toga, teikningar, einþrykk, málverk, skúlptúrar, vatnslitaverk og fleira. „Gunnar vakti strax athygli þegar hann byrjaði að sýna. Hann hafði bara farið á stutt teikninámskeið en að öðru leyti var hann sjálf- menntaður myndlistarmaður. Hann var ungur faðir og vann sem sjómaður en var alltaf að teikna. Það var ekki þannig að hann vildi ekki fara í nám heldur hafði hann ekki tök á því. Þá gekk fyrir að sjá fyrir fjölskyldunni.“ Gunnar hóf sinn feril sem myndlistarmaður á ákveðnum umbrotatímum, tímum 68- kynslóðarinnar. „Fólk var að velta fyrir sér afleiðingum stóriðju. Þetta voru viðsjárverðir tímar. Maðurinn er á vissan hátt ofurseldur tæknihyggjunni. Gunnar fékkst við þetta í byrjun og hann var alltaf að velta fyrir sér þessum tilvistarspurningum í hraða nútíma- samfélagsins en hann lýsti því að hraðinn í heiminum hefði haft áhrif á hann þarna í upp- hafi ferilsins,“ segir Aldís. „Svo fer hann að gera verk þar sem hann afbyggir kvenlíkamann og notar hann til form- rænna tilrauna. Hann er alltaf að túlka glímu mannsins við sjálfan sig. Fígúrurnar eru oft máðar, þannig að ekki er hægt að greina and- litin. Hann hlutar í sundur líkamann og teygir á líkamsforminu.“ Síðan fer hann að gera verk þar sem lita- fletirnir verða hreinni, fara meira út í abstrakt. „Hann er enn að fást við mannslíkamann en hann er farinn að nálgast viðfangsefnið á svo- lítið varfærnari hátt,“ segir sýningarstjórinn. „Þegar við komum nær 1980 þá verða aftur ákveðin umskipti í verkum hans. Hann var sjálfur að ganga í gegnum breytingar í sínu persónulega lífi og málaði ekki mikið á þessum tíma.“ Ormurinn og mannveran takast á Síðar verður hann fyrir miklum áhrifum af nýja málverkinu auk þess sem hann sá dóms- dagsmynd sem tilheyrir Flatatungufjölunum á Þjóðminjasafninu sem átti eftir að veita honum innblástur. „Þar kemur fram nýtt viðfangsefni í verkum hans, ormur og mannvera, sem tak- ast á á myndfletinum. Ormurinn verður að uppsprettu formrænna tilrauna sem sáust áður í mannslíkamanum, eins og ormurinn taki svolítið yfir á þessu tímabili.“ Gunnar varð síðan fyrir andlegri uppljómun og ákvað að flytja með fjölskyldu sína að Kambi í Rangárvallasýslu í ársbyrjun 1986. „Þá verður algjör uppstokkun. Hann sagðist hafa orðið að flytja út á land, til þess að vera í meiri tengslum við náttúruna. Þar var hann með vinnustofu og hafði meira rými til að gera skúlptúra og stærri verk,“ segir Aldís. Þar hafi hann meðal annars gert skúlptúra úr tré, grá- grýti og gifsi. Aldís segir að næsta umbylting í myndefni Gunnars hafi orðið um aldamótin 2000. „Þá fer hann að leita enn meira inn á við og gerir ein- faldari verk sem hann kenndi við sálina, svo- kölluð sálarverk.“ Á sýningunni í Hafnarborg má finna verk frá þessum ólíku tímabilum í lífi listamannsins. „Það er ekki alveg línulegt ferli í gegnum sýn- inguna heldur lenda stundum verk frá ólíkum tímum saman. Þótt verkin taki umbreytingum þá er sami þráðurinn greinilegur í gegnum fer- ilinn og tengir verkin saman.“ Aldís segir titil sýningarinnar, Í undir- djúpum eigin vitundar, koma frá listamann- inum sjálfum. Hann hafi eitt sinn sagt í viðtali: „Ég byrjaði sem sjómaður og er ennþá að fiska nema hvað nú legg ég netin í undirdjúp minnar eigin vitundar, ef ég má vera skáldlegur.“ Lagði net í eigin undirdjúp - Yfirlitssýning með verkum Gunnars Arnar Gunnarssonar opnuð í Hafnarborg í dag - Fjölbreytt verk frá ferli sem spannar um fjörutíu ár - Sýningarstjóri segir tímabært að varpa ljósi á feril hans Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Myndlist Aldís Arnardóttir sýningarstjóri segir að þótt verk Gunnars Arnar hafi tekið umbreytingum á ferli hans, þá sé að finna í þeim sameiginlegan þráð sem tengi þau saman. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Samhliða opnun yfirlitssýningarinnar með verk- um Gunnars Arnar Gunnarssonar verður önnur sýning opnuð í Sverrissal Hafnarborgar kl. 14 í dag. Það er einkasýning Sigurðar Ámundason- ar, What’s Up, Ave Maria? Þar sýnir Sigurður níu nýjar og nýlegar teikningar. Þær eru allar mjög stórar og hverfast á einn eða annan hátt um fyrirbærið vörumerki eða lógó. Þó ekki þekkt vörumerki heldur er hvert þeirra tilbún- ingur listamannsins. Teikningarnar eru tvenns konar. „Annars vegar eru þetta teikningar þar sem lógóið er fyrir framan einhvers konar umhverfi, til dæmis landslag eða þá borgarlandslag. Hins vegar er um að ræða teikningar sem eru í raun stór lógó sem ég er búinn að teikna á pappír með bleki, blýanti eða kúlupenna,“ segir Sigurður. Hann klippir þessi síðarnefndu lógó út og líkir aðferð- inni við dúkkulísugerð. Síðan lætur hann skera fyrir sig plexígler í sama formi og lógóið og sam- an mynda þau ákveðna einingu. Táknin eru tákn fyrir tákn Sigurður hefur valið stafi og tölur af handa- hófi, eitthvað sem táknar ekki neitt, og raðað þeim saman í lógó. Hann lýsir því meðal annars að austurevrópsk kvikmyndaplaggöt hafi veitt honum innblástur. Kýrillíska stafrófið sem þar sé oft notað hafi í för með sér ákveðið merkingarleysi fyrir þá sem ekki þekkja letrið. Hann notar þannig íslenska stafrófið, með ð og þ, og tökustafi til þess að búa til merkingar- lausar stafarunur. „Lógóin tákna ekkert ákveð- ið svo það er undir þér komið sem áhorfanda að túlka þau. Þetta eru tákn fyrir tákn en ekki tákn fyrir eitthvað ákveðið,“ segir listamaðurinn. „Teikningarnar eru ekki fljótunnar, það tekur mig margar vikur að vinna hvert einasta lógó. Þannig að ég tek þessa fagurfræði eða menn- ingu alvarlega. Ég meina þetta virkilega.“ Sig- urður segist blanda saman hefðbundnum sym- bólisma og formfræði við nútímaleg gildi vörumerkjanna sem við tökum varla eftir. Auk teikninganna sýnir Sigurður eitt mynd- bandsverk. „Það er lúppa af Universal Studios- lógóinu. Í hvert sinn sem myndbandið er spilað fylgir því nýtt undirspil, nýtt lag. Þannig að það er eins og það sé einhver stemning að byrja, Rolling Stones, Beethoven eða eitthvert popp- lag. En um leið og þú ert kominn inn í stemn- inguna þá hættir lógóið og næsta lag kemur.“ Titill sýningarinnar What’s Up, Ave Maria? vísar einmitt í tvö af þeim lögum sem spiluð eru. Annars vegar lagið „What’s Up“ með bandarísku stúlkna-rokksveitinni 4 Non Blondes og hins vegar Ave Maria eftir J.S. Bach. Sigurður bendir á að íslensk þýðing á titl- inum gæti verið eitthvað á þessa leið: „Guð minn góður, hvað er að gerast?“ „Ég lít ekki á lógóin sem vísun í neysluhyggj- una heldur hefur þetta meira að gera með áherslu samtímans á sjálfsmyndina, þessa öld sem við lifum á, og tákn fyrir upplýsingar líka. Allir hafa sitt þemalag og allir hafa sitt lógó. Þitt lógó breytist á hverjum degi.“ „Það er sársauki sem ég þekki“ „Listin mín fjallar miklu meira um ein- staklinginn, það persónulega, heldur en hópinn. Hvernig hvert vandamál hjá okkur er jafn stórt og heimsvandamálin. Ég er bara einhver hvítur karlmaður á Íslandi og get ekkert mikið talað um það sem ég hef lent í, einhverjar hörm- ungar, en ég þekki samt sársauka og þungar tilfinningar. Í staðinn fyrir að tala um stríð úti í heimi eða fordóma sem fólk lendir í, en ég þekki ekki sjálfur, þá tala ég frekar um minn sárs- auka,“ skýrir listamaðurinn. „Þannig að ég reyni að tala um sársaukann sem allir hafa, ekki einhvern ýktan sársauka heldur þennan almenna sársauka, því það er sársauki sem ég þekki. Og þeir sem eru að stýra í heiminum eru oft hvítir karlmenn eins og ég. Allir þessir vondu karlar eiga við einhver persónuleg vandamál að stríða sem eru mjög svipuð þeim sem ég á. Sem er náttúrulega fáránlegt. En það situr eitthvað í brjósti þeirra sem brýst svona út. Þetta er almennur sárs- auki, „universal“ sársauki en þetta „universal“ er samt líka svo persónulegt því hvert einasta lag lýsir eiginlega hverjum einasta ein- staklingi,“ segir Sigurður og vísar þar með í myndbandsverk sitt. Hann bætir við að hann velti mikið þessari tvíhyggju fyrir sér, hinu smáa og hinu stóra í heiminum. Spurður hvort hann þekki til verka Gunnars Arnar Gunnarssonar sem sýnd verða samtímis í Hafnarhúsi segir hann: „Foreldrar mínir áttu verk eftir Gunnar heima. Það var eitt af þessum verkum sem hann gerði eftir að hann frelsaðist. Ég er sérstaklega hrifinn af verkunum sem hann gerði á 9. áratugnum, þau eru alveg stór- kostleg. Það er alveg smá tenging á milli okkar, kannski ekki í þeim verkum sem ég er að sýna núna en í öðru sem ég hef verið að gera.“ Allir hafa sitt þemalag, sitt lógó - Sigurður Ámundason opnar einkasýninguna What’s Up, Ave Maria? í Sverrissal Hafnarborgar - Vinnur stórar teikningar út frá vangaveltum um vörumerki og sjálfsmyndina í samtímanum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Listamaðurinn Sigurður Ámundason við uppsetningu á sýningu sinni í Hafnarborg fyrr í vikunni. Þar sýnir hann níu teikningar og eitt myndbandsverk sem allt tengist vörumerkjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.