Morgunblaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 8. M A Í 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 124. tölublað . 110. árgangur . Laugavegi 174, 105 Rvk. www.volkswagen.is/taigo Tímalausi töffarinn Taigo Rúmgóður smábíll með frábæra aksturshæfni bæði til innanbæjaraksturs og á þjóðvegum landsins. Verð 4.890.000 kr. MARGRÉT OG INGUNN Í LISTASAFNINU LÍÐUR EINS OG HEIMA BEST Í MAÍMÁNUÐI 40TVÆR OPNANIR 45 Grunur er um að ISA-veiran sem getur valdið blóðþorra í laxi kunni að vera komin upp í kvíabóli í Berufirði. Grunurinn vaknaði við skoðun á einu sýni af mörgum og er verið að senda það til raðgrein- ingar erlendis. Dýralæknir fisk- sjúkdóma hjá MAST segir ekki hægt að fullyrða neitt um málið fyrr en niðurstöður raðgreiningar berast. Veiran hefur greinst í öllum kvíabólum Ice Fish Farm í Reyð- arfirði í vetur, Gripalda, Sigmund- arhúsum og síðast við Vattarnes. Slátrun var flýtt úr öllum kvíum, í öryggisskyni, og nú er unnið að slátrun við Vattarnes. Gísli Jónsson, dýralæknir fisk- sjúkdóma hjá MAST, segir að grunur um ISA-veiruna hafi vakn- að við reglubundna sýnatöku á kvíabólinu Hamraborg í Berufirði og sé bundinn við þetta eina sýni. Reiknar hann með að niðurstöður úr raðgreiningu berist fyrrihluta næstu viku. Í gær var unnið að því að taka fleiri sýni úr öllum kvíum á Hamraborg. Í tilkynningu Ice Fish Farm kemur fram að áætlað er að um 890 þúsund laxar séu á þessu kvía- bóli, að meðaltali 2.137 kg að þyngd. Tekið er fram að erfitt sé að meta afleiðingar hugsanlegs sjúkdóms en dregið geti úr fram- leiðslu í kjölfarið. Grunur um veiru víðar - Veiran getur valdið blóðþorra í laxi í sjókví í Berufirði MGrunur um veirusýkingu … »6 Veðurblíðan í gær hefur varla farið fram hjá neinum íbúa höf- uðborgarsvæðisins, enda náði hitinn allt að 13,6 gráðum í Reykjavík þegar best lét. Fjölmenni var á Austurvelli og gátu menn glaðst yfir góða veðrinu í góðra vina hópi. Það er um að gera að njóta sólarstundanna, en ský mun draga fyrir sólu um helgina, reynist veðurspáin rétt. Morgunblaðið/Eggert Veðurblíðunni fagnað á Austurvelli í góðra vina hópi Fulltrúar gagnavera hafa sýnt lóð- um á Hólmsheiðinni áhuga, sem vegna nálægðar við spennistöðina á Geithálsi skapar mikið orkuöryggi. Fyrirhugað er að vegagerð hefj- ist á Hólmsheiði á næsta ári en mörg önnur fyrirtæki hafa jafn- framt sýnt því áhuga að hefja starfsemi á svæðinu, fyrrnefnd gagnaver, framleiðslufyrirtæki, fyrirtæki sem þjónusta byggingar- aðila, fyrirtæki í ferðaþjónustu sem sjá tækifæri í nálægð við Suður- land og þannig má áfram telja. Fyrsti áfanginn í uppbyggingu svæðisins verður 50 hektarar og gætu byggst upp um 200 þúsund fermetrar af atvinnuhúsnæði. Athafnasvæðið mun sjást frá Suðurlandsvegi þegar ekið er úr austurátt. Framboð atvinnulóða er tak- markað í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og því þörf á að þróa fleiri svæði fyrir fyrirtæki innan landsvæðis Reykjavíkur. »22 Mörg fyrirtæki horfa til Hólmsheiðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.