Morgunblaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ “Top Gun: Maverick is outstanding.” “Breathtaking” “It’s the BEST MOVIE OF THE YEAR!” “Might be the best movie in 10 years.” “Top Gun: Maverick is fantastic.” “Best Action Sequel Of All Time” “What going to the movies is all about” “You must see this one in the theater.” “a must see!” U S A TO D AY 72% Empire Rolling StoneLA Times STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI BENEDICT CUMBERBATCH ELIZABETH OLSEN chiwetel ejiofor BENEDICT WONG xochitl gomez MICHAEL STÜHLBARG RACHEL MCadams 96% Empire The Playlist BBC The sun Total FilmRogerEbert.com TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Gleðin fyllti troðfullan og sveitt- an Húrra um síðustu helgi þegar keppt var til úrslita í Wacken-hljómsveitakeppninni. Sjö sveitir léku þá til úrslita á meðan sig- urvegarinn árið 2019, Morpholith, sá um að hita upp salinn. Hin ógurlega Misþyrming sleit þá kvöldi. Já, þetta er búin að vera löng og ströng bið en kófið sá til þess að þrjú ár eru síðan téð keppni fór síðast fram. Þorsteinn Kolbeinsson hefur frá upphafi, eða síðan 2009, haft veg og vanda af skipulagningu keppn- innar hér á landi. Þorsteinn hefur borið gæfu til að sjá stóru myndina og hefur iðulega snúið keppninni upp í fjölæran viðburð sem styrkir við ís- lensku öfgarokkssenuna. Með öðrum orðum, keppnin sem slík er ekki aðal- atriðið þannig lagað. T.a.m. hefur Þorsteinn verið duglegur að fá er- lenda blaðamenn, gagnrýnendur og fólk með stöðu í hinum alþjóðlega þungarokksbransa til að koma til landsins og taka þátt í keppinni sem dómarar. Meðfram þessu kynnir Þorsteinn viðkomandi fólk fyrir sveitunum, hefur ofan af fyrir þeim með útsýnisferðum og slíku og sáir þannig fræjum beggja vegna borðs. Samningar, tónleikaferðalög og almenn athygli hefur sprottið upp úr þessu havaríi, senunni hér til mikilla hagsbóta. Viðburðir eins og Wacken- keppnin gefa fólki líka tækifæri til að skoða hvernig senan lítur út í dag, taka „smakk“ ef svo mætti segja. Og Málmsendiherrar Íslands Ljósmynd/Hrafnkell Tumi og Hilmir Árnason. sveitirnar á laugardaginn sýndu vel fjölskrúðugheitin sem hér þrífast. Dauðarokkshundarnir dásamlegu í Devine Defilement kepptu t.d. ásamt riffasúpumeisturunum í Merkúr og síðmálmskjarnasveitinni Krownest. Svartþungarokkið fékk þá líka að fljúga (Forsmán), einslags melódískt nýdauðarokk með dassi af málm- kjarna (Holdris) og svo melódískt, framsækið „atmósferískt“ svart- þungarokk (Vögel). Engar tvær sveitir því eins og dásamlegt að Frón búi yfir svona litríkri sköpun í öfga- rokkinu. Það var hins vegar Múr sem bar sigur úr býtum. Bíðið við, ætla að drekka aðeins af skilgreiningabik- arnum. Hér fór epískt og atmósfer- ískt öfgarokk með vísunum í Opeth og Sólstafi t.a.m. Ég setti mig í sam- band við Kára Haraldsson, leiðtoga Múrs, en hann leikur þar á hljóm- borðsgítar og syngur. Hann var að vonum kátur, búinn að vinna Wack- en-keppnina en auk þess útskrifaðist hann úr MÍT fyrr í mánuðinum. Kári var svo vinsamlegur að leyfa mér að heyra prufuupptökur af nokkrum lögum sem eru í vinnslu fyrir breið- skífu. Tvö þeirra, „Heimsslit“ og „Holskefla“, voru spiluð síðasta laug- ardagskvöld. Hið fyrrnefnda, tíu mínútur, er ógurlegt, smávegis Sól- stafir í gangi en líka níðþung riff og bæði dómsdagssprettir („doom“) og drunutilþrif („drone“). Og íslenskar kvæðavísanir í bláendann. Eftirtekt- arvert er hversu vel lagið er samið og útsett, það er tónskáldablær yfir mætti segja (þess má geta að Kári á tónlistina í kvikmyndinni Harmur sem frumsýnd var fyrir stuttu). Svip- að má segja um „Holskeflu“, mel- ódískt öfgarokk í ætt við Opeth. Kári segir að lokaútgáfa laganna liggi ekki fyrir og sum séu eldri en önnur. Í lög- unum sem eru aukreitis við þessi („Eldhaf“ og „Frelsari“) má heyra áhrif frá Anathema og Sigur Rós t.a.m. Prufuupptökur eða ekki, allt saman er þetta einkar lofandi verð ég að segja og ekki undarlegt að Múr hafi hrósað sigri. Ég óska þeim góðs gengis, bæði hér heima og erlendis næstu misseri. Öfgarokkið er greini- lega í ágætis málum um þessar mundir og kófið hafði greinilega lítil áhrif og hefur mögulega bara byggt undir þessa sköpun sem nú er að ryðjast upp á yfirborðið. » Hið fyrrnefnda, tíu mínútur, er óg- urlegt, smávegis Sól- stafir í gangi en líka níð- þung riff og bæði dómsdagssprettir („doom“) og drunutilþrif („drone“). Þungarokkssveitin Múr sigraði í Íslandsriðli keppninnar Wacken Metal Battle sem fram fór um síðastliðna helgi á Húrra. Ljóst er að gróska mikil einkennir íslenskt öfgarokk. Reffilegir Meðlimir Múrs munu spila á Wacken í sumar. Nýjasta kvikmynd Hlyns Pálmason- ar, Volaða land, hefur fengið afar góðar viðtökur á kvikmyndahátíð- inni í Cannes þar sem hún var frum- sýnd fyrir fáeinum dögum. Myndin er í aðaldagskrá hátíðarinnar, í flokki Un Certain Regard og hafa gagnrýnendur verið afar jákvæðir í sínum dómum. Átján virtir kvik- myndagagnrýnendur hafa ausið myndina lofi og er hún með hæstu meðaleinkunnina af öllum í sínum flokki, 4,17 af fimm mögulegum, eins og sjá má á stigatöflu ICS- gagnrýnendasamtakanna á vef Int- ernational Cinephile Society, ics- film.org. Skýtur myndin einnig þeim sem eru í aðalkeppninni ref fyrir rass því engin þeirra fær svo háa meðalstjörnugjöf. Volaða land heillar gagnrýnendur Í Cannes Hlynur Pálmason leikstjóri. Simon McBurn- ey, einn virtasti leikstjóri heims, er þessa dagana að vinna í Þjóð- leikhúsinu að þróun sýningar sinnar sem frum- sýnd verður í London á næsta ári og er byggð á skáldsögu nóbelsverðlaunahafans Olgu Tokarczuk, Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu, að því er fram kemur í tilkynningu frá leik- húsinu. Er Þóðleikhúsið samstarfs- aðili hins virta leikhóps Complicité, Odéon-leikhússins í París o.fl. um þessa alþjóðlegu sýningu sem sýnd verður víða um lönd á næsta ári og þá m.a. í Þjóðleikhúsinu. Compli- cité er sagður einn virtasti leik- hópur Evrópu og hefur hann hlotið yfir 50 eftirsótt leiklistarverðlaun. Einn virtasti leik- hópur Evrópu Simon McBurney

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.