Morgunblaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022
Brosa! Hallgrímskirkja er vinsæll áningarstaður innlendra sem erlendra ferðamanna og myndataka nauðsynleg við það tækifæri.
Hákon Pálsson
Við lagasetningu um
útlendinga var samstaða
í þinginu um að láta
stjórnsýslustofnanir
fjalla um óskir um land-
vist hér en ekki ráð-
herra. Ein af ástæðum
fyrir þessu var sú að
ekki þótti heppilegt að
ákvarðanir um þetta
væru í höndum póli-
tískra ráðherra. Þær
væru betur komnar í
höndum hlutlausra aðila
sem létu afstöðu til
stjórnmála ekki villa sér
sýn.
Í árásum á dóms-
málaráðherra nú hefur
því m.a. heyrst fleygt að
hann hafi vald til að
setja nýjar reglugerðir á
grundvelli heimilda í
lögunum, sem myndu
leysa mál þeirra sem nú
á að senda úr landi. M.a. heyrði ég ummæli lög-
manns fólksins í þessa átt.
Þetta er undarlegur málflutningur. Er verið að
óska eftir að ráðherra setji sérstaka reglugerð fyrir
þennan afmarkaða hóp? Allir ættu að sjá að það er
ekki unnt að gera. Reglugerðir verða að vera al-
menns eðlis en mega ekki beinast sérstaklega að
hagsmunum tiltekinna manna sem vilja fá aðra af-
greiðslu mála en aðrir hafa fengið.
Allt ber þetta að sama brunni. Dómsmálaráð-
herra hefur ekki vald til að taka yfir ákvarðanir um
mál þessa fólks, nema breytt lög komi til. Heimild
til að leggja fram lagafrumvörp er í höndum
alþingismanna, meðal annarra þeirra sem hæst láta
um þessar mundir.
Er það ekki dálítið dæmigert að sumir stjórn-
málamenn séu fyrst, meðan fjallað er almennt um
skipan þessara mála, sammála um að ráðherra
skuli ekki hafa þetta vald í höndum, en ráðast síðan
á hann við fyrsta tækifæri fyrir að beita ekki því
valdi sem hann hefur ekki?
Eru þeir stjórnmálamenn trúverðugir sem haga
sér svona? Svari nú hver fyrir sig.
Eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson
»Dómsmála-
ráðherra
hefur ekki vald
til að taka yfir
ákvarðanir um
mál þessa fólks,
nema breytt lög
komi til.
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Höfundur er lögmaður.
Tvískinn-
ungur
Hvernig viltu
nautasteikina? Rare,
medium, well done
eða stendur þú fram-
ar öðrum og vilt hana
bleu? Ertu béarnaise-
týpa, er fólk enn veikt
fyrir chimichurri, sem
tröllreið öllum nauta-
steikum síðasta sumar
eða viltu enga sósu,
svo bragðið fái að
njóta sín? Mikilvægasta spurningin
er líklegast: Hvaðan viltu fá hana?
Úrval neytenda
Umræða síðustu mánuði um
hækkað aðfanga- og matarverð
hefur líklegast ekki farið fram hjá
neinum, enda verðvitund neytenda
með besta móti. Bændasamtökin
hafa ítrekað fjallað um erfiða stöðu
nautakjötsframleiðslunnar síðustu
ár. Staða greinarinnar var ekki
nægilega góð fyrir en fordæma-
lausar aðfangahækkanir í kjölfar
heimsfaraldurs og Úkraínustríðs
ógna nú heilli búgrein, þar sem ís-
lenskir bændur sjá sér ekki lengur
fært, að öllu óbreyttu, að framleiða
nautakjöt.
Hér ætla ég ekki að gera erfiða
stöðu bænda að umfjöllunarefni
heldur áhrif stöðunnar fyrir neyt-
endur. Skiptir það þjóðina og neyt-
endur einhverju máli að halda í ís-
lenska nautakjötsframleiðslu? Mitt
svar er já. Fyrir það fyrsta hafa
skoðanakannanir sýnt að neyt-
endur vilja innlenda
vöru á diskinn sinn og
íslenskir naut-
gripabændur hafa
hingað til selt allt kjöt
sem framleitt er svo
ekki gætir offram-
leiðslu í greininni. Ef
innlend framleiðsla
leggst af fækkar ein-
faldlega valkostum
neytenda þegar kemur
að nautakjöti. En af
hverju ætti neyt-
endum að vera svo
umhugað um að velja íslenskt
nautakjöt?
Sérstaða íslenska
nautakjötsins
Kolefnisspor skiptir neytendur
sífellt meira máli. Íslenskt nauta-
kjöt ber allt að helmingi lægra kol-
efnisspor en erlent nautakjöt og er
því mun fýsilegri kostur fyrir þá
sem er umhugað um loftslags-
breytingar en vilja sína nautasteik.
En það er ekki aðeins kolefn-
issporið sem íslenskt nautakjöt
stendur sterkara á velli. Má þar
nefna heilnæma framleiðsluþætti
sem m.a. felast í aðgangi að hreinu
neysluvatni, gripirnir eru að mestu
fóðraðir á grasi en grasfóðrun er
jafnan talin gera kjötið bæði
bragðbetra og hollara. Notkun
varnarefna í jarðrækt hér er engin
eða þá í algjöru lágmarki. Íslend-
ingar nota hvað minnst af sýkla-
lyfjum í landbúnaði af löndum
heimsins og hefur okkur tekist að
draga enn frekar úr notkun þeirra
á síðustu árum. Notkun sýklalyfja,
eða annarra lyfja s.s. hormóna, í
vaxtarhvetjandi tilgangi er hér
ólögleg og því ekki til staðar í ís-
lenskri nautgriparækt.
Á síðustu árum hefur orðið mik-
ill uppgangur í gæðum og fag-
mennsku í innlendri nautakjöts-
framleiðslu. Fleiri bændur sérhæfa
sig í framleiðslu á nautakjöti og
þróun á holdafyllingu nautgripa er
komin fram úr þeim markmiðum
sem bændur settu sér fyrir árið
2028. Á næstu dögum fáum við á
markað fyrstu steikurnar af ís-
lenskum Angus-gripum af nýju
erfðaefni. Innflutningur á Angus-
fósturvísum frá Noregi hefur verið
eitt stærsta verkefni íslensks land-
búnaðar á síðustu árum. Verkefnið,
sem mun færa neytendum enn
betra úrval í kjötborðið, hefur ver-
ið unnið af gríðarlegri fagmennsku
og metnaði. Ef innlend framleiðsla
leggst af sjáum við ekki einungis á
eftir dýrmætri aðstöðu og þekk-
ingu, sem hefur skapast hér á
landi, heldur töpum við sem þjóð
möguleikanum til að hafa áhrif á
loftslagsmál og heilnæma fram-
leiðsluhætti okkar nautakjöts. Að
því ógleymdu að störfin ásamt
loftslagsvandanum eru með því
flutt til annarra landa.
Er nóg til frammi í búð?
Við stöndum frammi fyrir þeirri
undarlegu stöðu sem flestir höfðu
ekki reiknað með; að ákveðin mat-
væli geti skort. Erlendis hefur verð
á nautakjöti rokið upp síðustu
misseri og í einhverjum tilfellum er
orðið erfiðara að fá nautakjöt.
Verður þá nóg til frammi?
Frá árinu 2018 hefur afurðaverð
til íslenskra nautgripabænda lækk-
að um tæp 10% en verð á nauta-
kjöti út í búð hefur hækkað um
15% og vísitala neysluverðs hækk-
að um 18%. Rekstarafgangur hjá
nautakjötsframleiðendum minnkaði
um helming á milli 2018 og 2019 og
reiknuð laun á hvert framleitt kíló
af nautakjöti lækkuðu um fjórðung
á árunum 2017-2019. Bændur hafa
því ekki notið verðhækkana síðustu
ára, heldur tekið hækkandi að-
fangaverð allt á innri rekstur.
Sveigjanleikinn, sem nautakjöts-
bændur hafa til að taka á sig stór-
fenglegar aðfangahækkanir, er því
lítill sem enginn og framleiðendur
sjá sér ekki fært að halda áfram
með sama hætti. Einhverjir eru því
farnir að draga úr framleiðslu eða
jafnvel hugsa sér að hætta.
Ef fer fram sem horfir, er ljóst
að val neytenda fer minnkandi í
kjötborðinu, helgarsteikin er í upp-
námi og við hljótum að spyrja okk-
ur ekki aðeins hvernig, heldur
hvaðan munum við fá nauta-
steikina?
Eftir Herdísi
Mögnu Gunn-
arsdóttur
»Ef innlend fram-
leiðsla leggst af,
fækkar einfaldlega val-
kostum neytenda þegar
kemur að nautakjöti.
Þróun afurðaverðs nautakjöts
2018 2019 2020 2021 2022
Vísitala - Matur Vísitala - Naut Afurðverð - Matur
120
115
110
105
100
95
90
85
Höfundur er varaformaður
Bændasamtaka Íslands.
herdis@bondi.is
Helgarsteikin í uppnámi
Herdís Magna
Gunnarsdóttir