Morgunblaðið - 08.06.2022, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 8. J Ú N Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 132. tölublað . 110. árgangur .
NORÐURLAND
LAÐAR TIL SÍN
FERÐAMENN
TYLFT FYRIR
SJÖ ÆVINTÝRI
UM SKÖMM
HLUTHAFAR
Í FESTI EKKI
SÁTTIR
TILNEFNINGAR TIL GRÍMUNNAR 2022 25 VIÐSKIPTAMOGGINNFERÐALÖG 16 SÍÐUR
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íslenska hagkerfið er í þeirri óvenju-
legu stöðu að nokkrir samverkandi
þættir gætu hamlað hagvexti á síðari
hluta ársins. Það gæti aftur haft
áhrif á aðflutning fólks til landsins og
vænta íbúafjölgun næstu ár.
Samkvæmt mannfjöldaspá Hag-
stofunnar, miðspá, mun íbúum
landsins fjölga um 19 þúsund á ár-
unum 2022 til 2024 sem er rúmlega
íbúafjöldi Garðabæjar. Þá er gert
frammi fyrir slíkum skorti á aðföng-
um í a.m.k. nokkra áratugi.
Óyfirstíganlega dýrt?
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing-
ur Samtaka iðnaðarins, segir skort á
húsnæði geta dregið úr hagvexti.
„Ef við byggjum ekki í takt við
þörf verður það hamlandi fyrir hag-
vöxt litið til næstu ára,“ segir Ing-
ólfur sem telur aðspurður að þessi
þróun muni þrýsta á íbúðaverð.
Það geti aftur haft í för með sér að
húsnæðiskostnaður verði óyfirstíg-
anlega hár fyrir erlent vinnuafl. En
alls fluttu hingað 1.350 fleiri erlendir
ríkisborgarar á fyrsta ársfjórðungi
sem er álíka fjöldi og árin 2019 og
2020. Fyrsti fjórðungur 2018 var
drýgri en þá fluttu hingað 1.720 fleiri
erlendir ríkisborgarar en fluttu þá
frá landinu. Þessi fjöldi og koma
flóttamanna frá Úkraínu kann að
auka líkur á að mannfjöldaspáin ræt-
ist fyrir þetta ár en það mun auka
þrýsting á húsnæðismarkaði.
MViðskiptaMogginn
ráð fyrir að á sama tímabili flytji
22.500 fleiri til landsins en frá.
Mannfjöldaspáin var uppfærð í
desember síðastliðnum en stríð var
þá ekki hafið í Úkraínu. Margt í
efnahagsumhverfinu hefur tekið
miklum breytingum og verðbólgan
aukist langt umfram fyrri spár.
Yngvi Harðarson hagfræðingur
segir hætt við að ekki takist að full-
nýta svigrúm til hagvaxtar á síðari
hluta ársins vegna takmarkaðs
framboðs á aðföngum og hrávörum.
Alþjóðahagkerfið hafi ekki staðið
Hagkerfi á ókunnum slóðum
- Stríðið í Úkraínu setur spár um öra íbúafjölgun og húsnæðisþörf í nýtt ljós
Nýr meirihluti í borgarstjórn var
gagnrýndur harkalega af minni-
hlutanum á fyrsta fundi í Ráðhúsi
Reykjavíkur í gær. Um hálftíma
fyrir fundinn komu fimm tillögur
frá meirihlutanum um breytingar á
nefndaskipan en eftir gagnrýni
minnihlutans var þremur af þessum
tillögum frestað.
Hildur Björnsdóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, vakti fyrst at-
hygli á þessu á fundi borgar-
stjórnar og baðst Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri afsökunar á að
hafa breytt dagskrá fundarins með
svo skömmum fyrirvara.
Kjartan Magnússon, Sjálfstæðis-
flokki, sagði breytingar á breyttri
nefndaskipan afrakstur „hrossa-
kaupa“ meirihlutaviðræðna að und-
anförnu. Þá gagnrýndi hann hve
fyrirvari breytinga á dagskrá og
nefndaskipan var skammur, það
væri ekki í takti við yfirlýsingar um
betri samskipti meiri- og minni-
hluta. „Í dag fellur nýstofnaður
meirihluti á fyrsta prófi hvað þetta
varðar,“ sagði Kjartan.
Á fundinum í gær var Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir kjörin forseti
borgarstjórnar og Dagur kosinn
borgarstjóri. Í byrjun árs 2024 tek-
ur Einar Þorsteinsson við en fram
að því verður hann formaður borg-
arráðs. Dóra Björt Guðjónsdóttir,
oddviti Pírata, verður formaður
umhverfis- og skipulagsráðs. Kjöri
í forsætisnefnd og nýtt mannrétt-
indaráð var frestað. »4, 9 og 12
„Féll á fyrsta prófinu“
Morgunblaðið/Eggert
Borgarstjórn Einar Þorsteinsson og Hildur Björnsdóttir fylgjast með Þór-
dísi Lóu Þórhallsdóttur telja atkvæði um borgarstjóra, Dag B. Eggertsson.
- Hörð gagnrýni á meirihlutann á fyrsta fundi borgarstjórnar
_ Mikael Mika-
elsson, umsjónar-
maður með sam-
evrópsku
samstarfi á sviði
loftslagsmála,
hefur hlotið orð-
una og nafn-
bótina MBE af
hendi bresku
krúnunnar, eða
„Member of the Most Excellent Or-
der of the British Empire“. Segir
Mikael í samtali við Morgunblaðið
að sig hafi skort orð við tíðindin,
heiðurinn sé mikill en fyrst og
fremst sé hann heppinn með far-
sælt samstarfsfólk. »2
Borðalagður Íslend-
ingur í Bretlandi
Mikael Mikaelsson
Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid eru í
opinberri heimsókn í Ísafjarðarbæ. Í skrúð-
göngu um miðbæ Ísafjarðar blasti við leik-
urinn parís á götunni og námu bæjarbúar stað-
ar á meðan forsetahjónin hoppuðu í gegnum
leikinn. Þau heimsóttu m.a. hjúkrunarheimilið
á Ísafirði og áttu samtal við Karl Sigurðsson,
elsta karl landsins, 104 ára. »10
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Forsetahjónin léku sér í parís á Ísafirði