Morgunblaðið - 08.06.2022, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.06.2022, Blaðsíða 17
lestrinum fjallaði María um rétt fólks með þroskahömlun til að halda frjósemi sinni og stofna fjöl- skyldu ef þeim svo sýndist. Þarna kvað við nýjan tón í réttindum fólks með þroskahömlun. María fylgdi síðan þessu baráttumáli sínu eftir með blaðaviðtölum og í sjónvarpi. Ári síðar fórum við á stóra nor- ræna ráðstefnu, María var meðal fyrirlesara við opnun ráðstefn- unnar. Auk Maríu töluðu félags- málaráðherra Svía, Bengt Ves- terberg, sem kalla má pólitískan guðföður NPA-þjónustu þar í landi, og finnski rithöfundurinn og móðirin Marta Tikkanen. Er- indi Maríu vakti mesta athygli enda á þessum tíma fáheyrt að fólk með þroskahömlun talaði máli sínu og setti á dagskrá mál sem snertu grundvallarmannrétt- indi. María barðist alla tíð fyrir þessum hagsmunum með marg- víslegum hætti og þegar Lands- samtökin Þroskahjálp ákváðu að skrifa leiðbeiningar til stuðnings- aðila vegna aðstoðar við seinfæra foreldra og börn þeirra lá það í augum uppi að kalla hana að því verki. Á formannsárum Maríu í Átaki fórum við tvisvar á ári sam- an á fundi hagsmunasamtaka fólks með þroskahömlun á Norð- urlöndum. Þangað kom María alltaf vel undirbúin, hafði látið að- stoðarfólk sitt þýða öll gögn og myndað sér skoðun á umræðuefn- um. Hún gerði líka þá kröfu að tími væri gefinn á fundunum fyrir þýðingar þannig að þeir sem ættu í erfiðleikum með tungumál gætu fylgst með allri umræðinni og tek- ið þátt í henni sem jafningjar. María fór þess á leit við und- irritaðan þegar hún vissi að ég væri að minnka starfshlutfallið mitt árið 2015 að ég tæki að mér að aðstoða hana við heimanám Ottós Bjarka. Ég tók þeirri áskorun og síðastliðin sjö ár hef ég aðstoðað þau mæðginin vegna skólamála Ottós. Þessi ósk Maríu lýsir vel fyrirhyggju hennar og umhyggju fyrir velferð Ottós sem hún setti alltaf í fyrsta sæti. Kynni okkar urðu með öðrum hætti vegna þessarar aðstoðar minnar og það var Maríu mjög mikilvægt að sýna þakklæti. Eitt af því sem var henni eðlislægt var höfðingsskapur og reisn. Þetta kom meðal annars fram í veislum sem hún hélt og gjöfum sem hún gaf. Síðustu sjö ár höfum við Ottó unnið saman að því markmiði sem hann átti sameiginlegt með móð- ur sinni, að mennta sig. María var ávalt mjög meðvituð um að menntun Ottós væri mikilvægust. Það var því tregablandin stund þegar Ottó Bjarki útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrauta- skólanum við Ármúla nú í vor. Mikið held ég að móðir hans hefði verið stolt og glöð að sjá soninn setja upp hvíta kollinn. Við Þórdís vottum foreldrum og systkinum Maríu okkar dýpstu samúð. Kæri Ottó, þú veist að þú varst það verðmætasta sem mamma þín átti. Minning um góða manneskju lifir. Friðrik Sigurðsson. Í dag er kær vinkona mín, María Hreiðarsdóttir, borin til grafar. Lífið er sannarlega hverfult og kveðjustund sár. Skilningur okk- ar á tilverunni er takmörkum háður en ég kveð Maríu mína í þeirri staðföstu trú að hennar bíði góðar móttökur í Sumarlandinu. Árið 2012 kynnist ég Maríu þegar ég réð mig í NPA þjónustu. Með okkur Maríu tókst góð vin- átta sem dafnaði með árunum. Í starfi mínu sá ég mikla bar- áttukonu fyrir málefnum og rétt- indum fatlaðs fólks, fyrirmynd sem lagði mikið af mörkum. Ekkert skipti Maríu samt meira máli en velferð Ottó Bjarka, augasteinsins hennar. Hann hvatti hún með ráðum og dáðum í hvívetna, til náms, sjálf- stæðis og heiðarleika. Samband þeirra var fallegt og kærleiksríkt. Stolt hennar yfir dugnaði og elju Ottós Bjarka leyndi sér ekki, enda duglegur ungur maður. María er án efa stoltust mæðra yfir stúdentinum Ottó Bjarka, sem lauk prófum eftir fráfall móð- ur sinnar, einbeittur í sorginni að halda áfram, viss um að ekkert hefði glatt hana meira. María elskaði ferðalög, sum- arbústaðaferðir og stuttar dags- ferðir. Ottó Bjarki og fjölskyldu- vinurinn Björgvin voru ferða- félagarnir. Þá var mikið fjör, spilað og hlegið, grillað og leikið. Síðasta sumar tók María stefn- una á Vestfirði og gistum við í Hænuvík. Eftir akstur um holótt- an og snarbrattan veg Hafnar- múla sagðist hún aldrei aftur fara þangað, þó fallegt væri. Þessar samgöngur væru engum boðleg- ar, sagði mín kæra vinkona. Til Grenivíkur var ferðinni heitið í sumar eftir Tenerife-ferð í lok júní, Mikil tilhlökkun var í gangi, allt klappað og klárt. Sum- arlandið á án efa eftir að bjóða okkur upp á gott ferðalag saman þegar við hittumst þar elsku vin- kona. María var menningarlega sinnuð og voru tónleikar og leik- hús í sérstöku uppáhaldi. Jóla- tónleikar Siggu Beinteins og Björgvins Halldórs var fastur lið- ur í jólahaldi Maríu og þá máttu jólin koma. Fjölskylda og vinir skipuðu stóran sess í lífi Maríu. Hún var vinamörg og minnug á afmæli ættingja og vina og alltaf kort eða gjafir á takteinum. Jólahátíðin var Maríu kær. Allt var fagurlega skreytt, ekkert til sparað í mat eða drykk og menn sem málleys- ingjar fengu sínar jólagjafir og hátíðinni fagnað með stórfjöl- skyldunni á heimili Maríu. Þeim kynntist ég vel og urðu þau mín hliðarfjölskylda. Missir þeirra er mikill og sár. Minni hjartans vinkonu þakka ég samfylgdina, vináttuna og góðu stundirnar sem við áttum saman, jafnt á heimili hennar sem utan þess. Oft sátum við og spjöll- uðum yfir kaffibolla, prjónuðum, fórum yfir málefni líðandi stund- ar og verkefni sem lágu fyrir. Kær minning frá árshátíð Sameykis í ár er þegar við María, í okkar fínasta pússi, dönsuðum saman, hlógum eins og stelpur og nutum samverunnar. Við vorum ákveðnar í að tjútta meira þegar tækifæri gæfist. Elsku vinkona, ég er harmi slegin yfir skyndilegu fráfalli þínu en þakklát fyrir að hafa haldið í hönd þína og sagt þér hversu vænt mér þætti um þig. Þú varst einstök. Elsku Ottó Bjarki og aðrir að- standendur, mínar dýpstu sam- úðarkveðjur. Ég sakna þín vinkona. Sigurlaug Jónsdóttir. Hún Mæja okkar er látin. Það er með söknuði og eftirsjá sem við skrifum þessi orð. Mæja var vin- kona okkar og skólasystir frá Hússtjórnarskólanum á Hall- ormsstað. Við vorum alls 21 í skól- anum þennan vetur. Ólíkur en samheldinn hópur stelpna á aldr- inum 16-21 árs. Þegar við útskrif- uðumst fyrir rúmum 30 árum ótt- uðumst við að missa tengslin hver við aðra en þegar við hittumst, með nokkurra ára millibili, var eins og tíminn hefði staðið í stað. Fyrir nokkrum árum fórum við, sem búum á höfuðborgarsvæðinu, að hittast reglulega, einu sinni í mánuði og förum í sumarbústað einu sinni á ári. Þar eru gamlir og nýir tímar ræddir, alltaf mikið fjör og mjög mikið hlegið. Mæja naut sín vel í þessum ferðum. Allt- af hress og kát og fannst sérstak- lega gaman þegar við spiluðum bingó og önnur spil. Mæja var skemmtileg og yndisleg mann- eskja. Hún var dugleg að berjast fyrir réttindum fatlaðra og skrif- aði bók fyrir nokkrum árum sem er í senn fróðleg og skemmtileg. Það má með sanni segja að við lærðum meira af Mæju en hún af okkur. Það er sárt til þess að hugsa að gullmolinn hún Mæja verði ekki lengur með þegar við hittumst. Það verður tómlegra án hennar. Við munum sakna hláturs hennar og húmors. Takk fyrir samferðina elsku Mæja. Elsku Ottó Bjarki og fjöl- skylda, guð gefi ykkur styrk í sorginni. Þínar vinkonur, Selma, Erla Hrönn, Silja, Hulda, Berglind, Bergný (Bebbý), Guðríður (Guja), Júlía og Svanhildur. Baráttukonan og vinkona mín María Hreiðarsdóttir er látin, öllum harmdauði sem hana þekktu. Mestur er þó harmur einkasonarins og aldraðra for- eldra Maríu. Eru þeim og fjöl- skyldunni allri færðar innilegar samúðarkveðjur. Leiðir okkar Maríu lágu sam- an á starfsárum mínum hjá Landssamtökunum Þroskahjálp, árin þegar verið var að undirbúa stofnun Átaks félags fólks með þroskahömlun sem stofnað var árið 1993 á vettvangi Þroska- hjálpar. María var ein þeirra sem tók virkan þátt í Umræðu- hópum Þroskahjálpar sem lögðu grunninn að stofnun Átaks. Í umræðuhópunum réði fólk með þroskahömlun ráðum sínum og valdelfdi hvert annað. Slagorðið varð „Ekkert um okkur án okk- ar“. Við fyrstu kynni kom María fyrir sem hæglát og jafnvel feim- in ung kona en þegar réttinda- baráttu þroskahamlaðs fólks bar á góma kom í ljós baráttuglöð, opinská og jafnvel herská ung kona sem hvergi lét sig þegar hagsmunir fólks með þroska- hömlun voru í húfi. Seinna varð María formaður Átaks og vann fram á síðasta dag að hagsmun- um hópsins. Það var hrein unun að hlusta á Maríu taka til máls um mannréttindi þroskahamlaðs fólks, bæði í ræðum sem hún hélt gjarnan á málþingum og einnig þegar hún tók þátt í umræðum um stefnur og strauma í mála- flokknum. María stóð lengi í stafni í hagsmunabaráttu fólks með þroskahömlun. Hún sýndi og sannaði í eigin lífi að þroska- hamlað fólk bæði vill og getur tekið þátt í samfélaginu til jafns við aðra ef það fær til þess tæki- færi og viðeigandi stuðning. María var ein þeirra sem ruddu brautina á mörgum svið- um. Hún tók þátt í opinberri um- ræðu og átti sæti í nefndum og ráðum um málefni þroskahaml- aðra. Hún stofnaði fjölskyldu og eignaðist Ottó Bjarka sem varð hennar stolt í lífinu enda lagði hún mikla rækt við uppeldi hans og var óhrædd við að leita sér hjálpar ef með þurfti. Það er sárt að þurfa að kveðja Maríu svona alltof snemma. Hún sem átti svo margt ógert í lífinu, ekki síst að fylgja syni sínum áfram út í lífið. Mér er þó þakk- læti og gleði efst í huga á þessari kveðjustundu. Fyrir allt sem María var og gaf af sér til fjöl- skyldu, vina og þjóðfélagsins alls. Blessuð veri minning Maríu Hreiðarsdóttur. Lára Björnsdóttir. Ég kynntist Maríu árið 1993 í Hveragerði í umræðuhópi þar sem Átak, félag fólks með þroskahömlun, var stofnað. Ég eignaðist þar þessa góðu vin- konu sem hefur verið mér kær. Það myndaðist yndisleg vinátta sem við héldum í í 28 ár. Við gerðum margt saman þegar við vorum að kynnast eins og þegar við fórum á Steinastaðahátíð í Skagafirði og þú fórst á hestbak og grillaðir. Við María og sonur hennar Ottó ferðuðumst um allt land, fórum hringinn ásamt því að fara vestur á Krosshóla með Sigurlaugu Jónsdóttur aðstoðar- konu og vinkonu. Við áttum margar góðar stundir í sumarbú- stað og fórum vítt og breitt um Akureyri, Dalvík, Siglufjörð og Ólafsvík og heimsóttum systur mína, Maríu, sem bauð okkur í kaffi. Það var glens og gaman en svo fórum við í Vík í Mýrdal sem var síðasti áfanginn í hringferð- inni. Þá segir María við mig: Ró- bert, síðasta ferðin og þá sagði ég: María mín, þetta er nú ekki síðasta ferðin. Ræðurnar þínar voru mjög fallegar og á ég upp- töku af þeim á diski María var formaður Átaks í sex ár og við fórum 4-5 saman til Englands og svo sendi María mig til Noregs, Stavanger, á vegum Átaks. Við fórum í sumarbústað í Skorra- dal, spiluðum bingó. Ég var svo heppinn að þú varst besta vin- kona mín og ég var heppinn að hafa fengið að kynnast Ottó Bjarka, syni þínum, sem var sól- argeislinn í lífi þínu. Þegar Átak var með jólaboð varst þú alltaf til taks, elsku María, þú hafðir regl- urnar á hreinu og skipulagðir allt. Ég er þakklátur fyrir öll jóla- og páskaboðin sl. 7 ár sem þú bauðst mér í með fjölskyldu þinni. Á aðfangadag borðuðum við hamborgarhrygg og ístertu í eftirrétt. Á eftir vöskuðum við Ottó upp. Síðan voru pakkarnir opnaðir og þá kom jólastressið í mig, vegna þess að ég fékk jóla- spennufall. Á jóladag borðuðum við hangikjöt með uppstúf, horfðum á jólamyndir og þá klikkaði ekki jólakonfektið. Á annan í jólum borðaði fjölskyld- an grísakótilettur í raspi. Í eft- irrétt á jóladag og annan í jólum voru kökur og ís. Á gamlársdag var horft á Kryddsíldina. Við borðuðum lambalæri og í eftir- rétt voru ístertur, ís og kökur og hlustað á gamlársdagstónlist. Við horfðum á áramótaskaupið. Svo í lokin voru flugeldar sprengdir. Við María og Ottó nutum þess að fara saman í bíó og leikhús sem var yndislegt. Við María höfum átt dýrmæta vin- áttu frá því að Ottó Bjarki fædd- ist og brölluðum margt saman í gegnum tíðina. María var besta vinkona mín. Ef ég þurfti á ein- hverju að halda leitaði ég alltaf til hennar, hún var mín hægri hönd. Ástkæra vinkonan mín, María, bauð mér reglulega í mat. Uppáhaldið voru lambakótilett- ur. Elsku María mín, ég sakna þín svo mikið, ég hef grátið síðan þú féllst frá og þó ég komi til með að læra að lifa með söknuðinum, þá verður hann alltaf til staðar. Betri vinkonu hefði ekki verið hægt að hugsa sér, þú áttir svo mörg skemmtileg nöfn fyrir mig sem mér þótti svo vænt um um, eins og Róbert, Bobbi, Doddi, Bráði og mr. Bó. Minningarnar um þig eru ógleymanlegar og lifa að eilífu í minni sál. Ég gleymi þér aldrei. Þú varst alltaf einlæg vinkona með stórt hjarta. Við verðum alltaf með þér og þú með okkur. Þinn ástkæri vinur , Björgvin (Mr. Bo). María Þ. Hreiðarsdóttir, bar- áttukona fyrir réttindum fatlaðs fólks og fyrrverandi formaður og heiðursfélagi í Átaki – félagi fólks með þroskahömlun, er látin aðeins 51 árs að aldri. María var einn af stofnfélög- um Átaks og sat í fyrstu stjórn félagsins sem ritari á árunum 1993 til 1995. Þá var hún formað- ur Átaks í sex ár, eða til ársins 2001. María sat einnig í stjórn Landssamtakanna Þroskahjálp- ar, starfaði á skrifstofu samtak- anna og var ötull talsmaður þess að samtökin gættu þess í öllu sínu starfi að raddir fólks með þroskahömlun væru í forgrunni. María var brautryðjandi í bar- áttu fatlaðs fólks, m.a. fyrir rétti fólks með þroskahömlun til að halda frjósemi sinni og stofna fjölskyldu, og skrifaði árið 2021 fræðslurit ásamt Sigríði Elínu Leifsdóttur, um stuðning við seinfæra foreldra. Þá barðist hún ötullega fyrir því að laun fatlaðs fólks í verndaðri vinnu væru sambærileg launum ann- arra, fyrir bættri þjónustu ferða- þjónustu fatlaðra, réttinum til notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar og svo mætti áfram telja. María hélt marga fyrir- lestra bæði á Íslandi og erlendis sem vöktu mikla athygli og skrif- aði einnig blaðagreinar um bar- áttumál fatlaðs fólks. Þá var María einn af sendiherrum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Árið 2017 gaf María út lífs- sögu sína sem bar titilinn Ég lifði í þögninni í samvinnu við Guð- rúnu V. Stefánsdóttur og hlaut Múrbrjót Þroskahjálpar fyrir. Í inngangi bókarinnar skrifar María: „Ég hef oft spurt sjálfa mig hver ég er. Ég er með skerð- ingu en skerðingin er ekki ég. Ég er dóttir foreldra minna, ég er systir systkina minna og frænka barna þeirra. Ég er líka móðir Ottós Bjarka og vinur vina minna. Þá er ég ekki síst mikil baráttukona.“ María eignaðist son sinn Ottó Bjarka árið 2002 og ræktaði móðurhlutverkið af mikilli alúð. Má segja að velferð Ottós hafi átt hug hennar allan. Á sama tíma hélt hún áfram baráttu sinn fyrir auknum réttindum og betra lífi fatlaðs fólks, m.a. með þátttöku í Tabú – femínískri fötlunarhreyf- ingu og á vettvangi Átaks og Þroskahjálpar. Stjórn og starfsfólk Þroska- hjálpar minnist Maríu með mik- illi hlýju og þakklæti, og kveður þessa kjarkmiklu og öflugu bar- áttukonu fyrir mannréttindum fatlaðs fólks með miklum sökn- uði. Ottó Bjarka, og öðrum að- standendum og vinum Maríu, sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Unnur Helga Óttars- dóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi, BIRGIR HALLVARÐSSON, áður til heimilis í Botnahlíð 14, Seyðisfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 3. júní. Útförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 11. júní klukkan 14. Ólafur Birgisson Charuwan Rongmalee Guðfinna Björk Birgisdóttir Ásbjörn G. Jónsson Birgir Aron, Sara Bóel, Prim, Gell og Guðrún Stella Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KLARA JENNÝ ARNBJÖRNSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði, lést sunnudaginn 5. júní. Jarðarförin fer fram í Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 10. júní klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Hornbrekku. Við viljum færa starfsfólki Hornbrekku innilegar þakkir. Streymt verður frá útförinni á https://youtu.be/qldStnVP0lk en einnig má nálgast streymi á mbl.is/andlat. Addi, Soffía, börn og barnabörn Dagur, María, börn og barnabörn Fylkir, Mattý og börn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, SIGVALDI GUNNARSSON, Litlahvammi 9, Húsavík, lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík mánudaginn 30. maí. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju föstudaginn 10. júní klukkan 14. Lilja Jónasdóttir Klara Sigvaldadóttir Bolli Eiðsson Heiðar Sigvaldason Margrét G. Þórhallsdóttir Elínborg Sigvaldadóttir Þorvaldur Yngvason Sigríður K. Sigvaldadóttir Einar Jónasson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Elsku hjartans hugrakki, yndislegi, hjálpsami og besti pabbi okkar, sonur, bróðir, tengdapabbi og mágur, GYLFI BERGMANN HEIMISSON, lést laugardaginn 4. júní. Útförin verður auglýst síðar. Dóróthea Gylfadóttir Davíð Stefánsson Darri Bergmann Gylfason Dísella Gylfadóttir Tómas Jökull Bergmann Gylfason Heimir Bergmann Gíslason Svala Þyrí Steingrímsdóttir Ólafur Björn Heimisson Júlíana Ósk Guðmundsdóttir Vigfús Birgisson Theodóra Björk Heimisdóttir Haukur Þorsteinsson Gísli Kristján Heimisson Beata Makilla og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.