Morgunblaðið - 08.06.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.06.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 Atvinnuauglýsingar Blaðberar Morgunblaðið óskar eftir blaðberum í Keflavík Upplýsingar veitir Guðbjörg í síma 773 5164 Raðauglýsingar Tilkynningar Umhverfismat framkvæmda Matsáætlun í kynningu Stækkun Sigöldustöðvar um allt að 65 MW, Ásahreppi og Rangárþingi ytra Landsvirkjun hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats stækkunar Sigöldustöðvar um allt að 65 MW. Kynning á matsáætlun: Matsáætlunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun og á skrifstofu Rangárþings ytra á Hellu. Einnig er hún aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is. Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn.Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. júlí til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Morgunspjall, heitt á könnunni kl. 9-11. Kl.12.15-13.30 jóga með Grétu, kl.14.30-15.20 kaffi, kl. 18-20 Miðstöð fyrir fólk frá Úkraínu. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir. Árskógar 4 Útileikfimi kl. 11. Bónus-bíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Sími 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30- 15.30. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn- unni. Döff, félag heyrnarlausra frá kl. 12.30. Félagsvist frá kl. 130. Allir velkomnir. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Fram- haldssaga kl. 10.30. Handavinna, opin vinnustofa kl. 13-16. Brids kl. 13. Fjölskyldudagur í Félagsmiðstöðinni frá kl. 13-15.30: Skemmti- atriði, andlitsmálun, Mr. Kaboom blöðrumaðurinn, tónlist, fríar pylsur og frostpinnar. Allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni. Opin handverksstofa kl. 9-12. Bókband í smiðju kl. 9-12.30. Opin handverksstofa kl. 13-16. Bókband í smiðju kl. 13-16.30 og síðdegiskaffið á sínum stað frá kl. 14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9. Botsía á Skólabraut kl. 10. Frí stund, handavinna, kaffi og samvera kl. 13 í salnum á Skólabraut. alltaf - alstaðar mbl.is FINNA.is Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Sandblástursfilmur Elsku afi minn, þú leist alltaf á lífið sem daginn í dag. Ég hefði viljað geta eytt meiri tíma með þér en er þakklátur fyrir þann tíma sem við fengum sam- an. Það eru til endalausar sögur sem ég gæti sagt um afa en ein minnisstæðasta minningin um hann er Grænlandsferðin. Ég fékk símtal frá afa þar sem hann spyr mig um hvort ég vilji koma með sér í ljósmyndaferð til Grænlands og meðal annars til að skoða báta. Ég þáði það boð og þarna vorum við tveir allt í einu mættir til Grænlands með ljósmyndahópnum hans afa ásamt betri helmingum okkar. Þar var drukkið og borðaðir rækjukokteilar á hverju kvöldi. Einn morguninn var svo farið í bátsferð til að kíkja á jökulinn, skoðuðum við hann vel en skoð- uðum brugghúsið í þorpinu ennþá betur. Skoðað var allt á bæði sjó og landi, það var ákveðið að leigja bíl einn dag- inn og ekki fannst afa það verra og ferðaðist hann um eins og forsetinn með mig sem einka- bílstjóra. Svo þegar heim var haldið var farið í aðra bátsferð á leið á flugvöllinn með stoppi í litlu þorpi. Það er ekki í frásög- ur færandi nema er hann stekk- ur í land gefur annar fóturinn sig með þeim afleiðingum að hann fékk sér næstum sund- sprett og tók mig og einn úr áhöfninni næstum með sér út í sjóinn! Þetta er ógleymanleg ferð, þar var margt skoðað og skemmtum við okkur konung- lega saman. Þá má segja að Runólfur Haraldsson ✝ Runólfur fædd- ist 26. október 1941. Hann lést 28. maí 2022. Útför fór fram 4. júní 2022. þetta hafi verið stór áfangi hjá afa því mikil óvissa ríkti um hvort hann gæti farið í þessa ferð yfirhöf- uð. Þegar ég minn- ist afa hugsa ég um góðan og skemmtilegan mann sem kunni margt og alltaf tilbúinn að deila þekkingu sinni. Afi var heiðarlegur og mikill vinnuþjarkur, honum þótti vænt um fjölskyldu sina og var vinur vina sinna. Allt sem hann tók fyrir hendur sér gerði hann vel. Hann afi skilur eftir sig fallegar minningar og hefur eflaust snert mörg hjörtu og megum við vera stolt af honum. Elsku afi minn, það er komið að kveðjustund. Ég vil þakka þér veganestið sem þú gafst út í lífið en það er traust, um- burðarlyndi og nægjusemi og mun það ávallt fylgja mér. Hvíldu í friði elsku afi minn. Runólfur Georg og Herdís Mjöll. Elsku afi. Það er undarlegt að hugsa til þess að þú sért ekki lengur hérna á meðal okk- ar. Þú varst eins og akkeri sem aldrei haggaðist sama hversu mikið öldugangurinn braut á þér. Þú varst alveg ótrúlega sterkur og líklega hefðir þú getað orðið framúrskarandi íþróttamaður hefði það staðið þér til boða á yngri árum. En lífi þínu voru ætlaðar ákveðnar aðstæður, jafn mikið og á sem rennur í djúpu gljúfri hefur engan annan farveg til að streyma um. Bóndi skyldir þú verða sama þótt gáfur þínar og hæfileikar lægju annars staðar. Þér fórst það vel úr hendi líkt og allt annað sem þú lagðir fyrir þig. Ég get hins vegar ekki hætt að hugsa um hvað þú hefðir getað gert við þennan fróðleiksfúsa hug þinn hefðir þú sjálfur fengið að ráða þínum farvegi í lífinu. Mögu- leikarnir eru endalausir enda hef ég aldrei kynnst neinum sem veit jafn mikið um allt mögulegt og þú. Það var sama við hvern var talað og um hvað, alltaf draup af þér fróðleikur- inn eins og hann kæmi af upp- sprettu óendanlegrar visku. Og ef kom fyrir að þú vissir ekki eitthvað, þá lastu þér til um það, slík var fróðleiksfýsnin og áhuginn. Ég var heppin að fá að alast að hluta til upp á Birkivöll- unum hjá þér og ömmu. Ég eyddi löngum stundum inni í bókaherbergi með þér lesandi bækur á meðan þú varst að lesa Lifandi vísindi, dunda þér í tölvunni að vinna fallegu mynd- irnar þínar sem þú hafðir tekið á myndavélina eða bara baksa við eitthvað. Ég lærði alveg óskaplega mikið af þessum tíma sem ég eyddi með ykkur, enda erfði ég fróðleiksþorstann frá þér og sogaði upp allt sem þú hafðir að segja mér eins og þurr svampur. Að þessu öllu mun ég alltaf búa, og ég ætla að reyna eftir fremsta megni að leyfa lífi mínu að fljóta eftir þeim far- vegi sem ég vel sjálf og láta þá hæfileika sem ég erfði frá þér njóta sín í því ljósi sem þeir eiga heima. Ég veit að þú munt alltaf vera þarna og hjálpa mér á leiðinni löngu, því kvöldið eft- ir að þú fórst frá okkur fann ég lyktina úr bókaherberginu ykk- ar ömmu inni hjá mér, og hjarta mitt fylltist af innri ró og friði, alveg eins og mér leið þegar ég var hjá ykkur. Ljós þitt mun lýsa mér leið- ina. Þín Brynja. Elsku afi okkar. Það er sárt að sitja hér og skrifa þessi orð og hugsa um það að þú sért ekki lengur hjá okkur en á sama tíma vitum við að núna líður þér mun betur. Þegar maður kveður ástvin eins og þig standa minningarn- ar upp úr og þær eru aldeilis margar, góðu minningarnar sem við eigum um þig. Þessar minningar varðveitum við í hjörtum okkar um alla ævi. Stundirnar sem við áttum með þér á Syðri-Rauðalæk þar sem þú lékst oftar en ekki á als oddi voru margar og dásam- legar. Búningaleikirnir sem við fórum í með þér, ferðirnar nið- ur að læk sem oft urðu að veiði- ferðum, prakkarastrikin og hrekkirnir sem þú þreyttist seint á, þegar við lögðumst í grasið og skoðuðum stjörnurn- ar, þegar þú byggðir snjóhús handa okkur fyrir framan bæ, þegar við gerðum drulluköku- bakarí og þú komst að gæða þér á kræsingunum og svona mætti lengi telja. Ferðalögin sem við fórum í með ykkur ömmu geyma líka margar góðar minningar. Það sem stendur helst upp úr er fróðleikurinn og vitneskjan sem þú bjóst yfir og miðlaðir til okk- ar um allt sem á vegi okkar varð. Þessum fróðleik búum við að um ókomna tíð og gerum okkar besta í að miðla honum áfram til barnanna okkar. Eftir að þið amma fluttuð á Selfoss héldum við áfram að skapa minningar en þó af ólík- um toga. Það sem ekki breyttist er að þessar minningar ein- kennast af hlátri, gleði, fróðleik og gæðastundum. Það var gam- an að sjá þig blómstra við hand- verkin þín sem þú fjöldafram- leiddir af mikilli list og ást fyrir alla fjölskylduna. Þó svo að okkur hafi alltaf þótt mikið til verka þinna koma eru þau sem gull í höndum okkur núna. Það er mikill missir að þú sért farinn frá okkur en við er- um þér ævinlega þakklátar fyr- ir öll árin sem við fengum með þér og allar þær minningar sem við sköpuðum saman. Við elsk- um þig alltaf. Þínar afastelpur, Elsie og Rúna. Ég var rétt að verða unglingur, eða 12 ára, þegar Gústi kom inn í líf okkar er hann kynnist mömmu. Ég átti agalega erfitt með þess- ar snöggu breytingar á lífinu og lét líklega öllum illum látum fyrstu árin. Ég man ekki eftir einu skipti þar sem Gústi minn skipti skapi yfir stælunum og leiðindunum í mér. Gústi átti þrjú uppkomin börn þegar hann kynntist mömmu. Með henni fylgdum við þrjú systkinin, Helgi sem var 19 ára, ég 12 ára og Þór sem var fjögurra ára. Við vor- um langt því frá að vera auð- veldasti pakkinn til að taka við og ég áttaði mig fljótlega á því þegar gelgjan fór að renna sitt skeið. Það eru óteljandi skipti sem hann fór úr vinnu til að sækja, skutla eða til að reka út drauga og bófa fyrir eitt af okkur (nefni engin nöfn). Margir töluðu um það í upp- hafi sambands þeirra mömmu að það væri allt of mikill ald- ursmunur á þeim en það voru 20 ár á milli þeirra. Ég get þó með sanni sagt að ástin spyr ekki um aldur. Alla tíð, frá upp- hafi og til síðasta dags, voru þau bestu vinir og ástfangin Gústav Óskarsson ✝ Gústav Ósk- arsson fæddist 29. maí 1942. Hann lést 24. maí 2022. Útför hans fór fram 2. júní 2022. upp fyrir haus. Þau dönsuðu saman daglega, skemmtu sér alltaf vel sam- an og máttu helst ekki sjá hvort af öðru. Gústi reyndist mér og mínum ein- staklega vel og vorum við góðir vinir. Ég bjó hjá þeim fyrstu mán- uðina eftir að sonur minn fædd- ist og var eftir það daglegur gestur, þangað til ég flutti út á land. Við töluðum mjög oft saman í síma. Þau mamma dvöldu mikið hjá okkur eftir að við fluttum og eftir að hann veiktist fyrir nokkrum árum, kom hann einn ef mamma þurfti að vera frá vegna vinnu. Mér þótti virkilega vænt um það að hann fyndi öryggi hér hjá okkur Jóni og Magnúsi í sveitinni. Ég veit ekki hversu oft ég bað hann afsökunar á hegðun minni sem unglingur. Í hvert skipti tók hann í hönd mína og sagði: „Vertu ekki með þetta, Kristín mín, þú ert dóttir mín og mér þykir svo mikið vænt um þig.“ Það er ansi stórt skarð sem minn elskulegi stjúpi skilur eft- ir sig. Það verður enginn sem segir hræðilega aulabrandara, enginn sem galdrar peninga eða hvað sem var hendi næst úr eyrum barnabarnanna, eng- inn sem getur þulið upp gamlar sögur – hvað þá síendurteknar, enginn sem grípur mömmu í dans fyrir morgunkaffi og svo mætti endalaust telja. Elsku Gústi, þín verður ávallt saknað. Takk fyrir allt og allt. Þín Kristín. Þau voru mörg minninga- brotin sem streymdu í gegnum hugann þegar okkur barst sú fregn að kær vinur og sam- ferðamaður, Gústav Óskarsson, væri farinn yfir móðuna miklu. Það er ekkert skrýtið, því Gústa þekktum við frá því að við munum fyrst eftir okkur. Raunar var það gagnkvæmt, því örlögin höguðu því svo að móðir hans leigði hjá föður okkar á stríðsárunum á Víðimel 31. Þar fæddist Gústi, 29. maí 1942. Það var búið þrengra í þá daga og ekki óalgengt að íbúð- ardyrnar væru ólæstar og ung- ur drengur þurfti ekkert að bíða eftir að vera boðið inn. Þar með hófst ævilöng vinátta, því ekki var nóg með að Gústi gerði sig heimakominn á barns- árunum, heldur hóf hann störf í fyrirtæki föður okkar, Tré- smiðjunni Víði, aðeins fjórtán ára gamall. Hann átti eftir að starfa þar í yfir þrjá áratugi. Gústav lærði húsgagnasmíði en lengst af starfaði hann sem verslunarstjóri í húsgagna- versluninni. Því til viðbótar var Gústi föður okkar innan hand- arum margt og greiðvikinn með afbrigðum. Í Trésmiðjunni Víði starfaði líka Elsa Haraldsdótt- ir. Felldu þau Gústi hugi saman og giftu sig 1964. Eftir það var Gústav oftast kallaður „Gústi og Elsa“ í okkar fjölskyldu. Gústav var félagslyndur að eðlisfari, kátur og mannblend- inn. Hann gekk ungur í Flug- björgunarsveitina í Reykjavík og var virkur í starfi hennar. Ekki var það Gústa nóg að vera í björgunarsveit. Hann var duglegur hestamaður og er óhætt að segja að hesta- mennska hafi verið líf hans og yndi. Gústav var vinrækinn og breyttist það ekkert þótt hann flytti austur á Hvolsvöll með seinni konu sinni, Sigþrúði Sig- urjónsdóttur. Hann heimsótti okkur reglulega, síðast í haust þó að heilsu hans hafi verið að hraka. Ávallt var hann áhuga- samur um það sem var í gangi hverju sinni og ekki laust við að hann tækist aðeins á loft ef fjallgöngur og svaðilfarir bar á góma, enda var honum útiveran í blóð borin. Eins og nefnt var í upphafi, koma margar minningarnar fram í hugann. Eitt eiga þær allar sameiginlegt, hvort sem það eru upprifjanir af prakk- arastrikum frá unglingsárun- um, sögur tengdar hesta- mennskunni eða eitt og eitt óumbeðið „hressandi herða- nudd“. Þær kalla allar fram bros og hlátur. Þannig munum við Gústa, mann sem alltaf var gaman að hafa í námunda við sig. Um leið og við kveðjum kær- an vin, vottum við fjölskyldu hans og vinum okkar dýpstu samúð. Bræðurnir frá Víðivöllum, Ólafur Kristinn, Björn Ingi, Sigurður Vignir og Guð- mundur Víðir Guð- mundssynir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.