Morgunblaðið - 08.06.2022, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022
Allur heimurinn er að bregðast
við afleiðingum stríðsátakanna í
Úkraínu með því að auka mat-
vælaframleiðslu innanlands, en
hvar stöndum við á Íslandi? Fjöl-
margar þjóðir hafa nú þegar lagt
til aukið fjármagn til landbúnaðar
til að koma í veg fyrir hrun í mat-
vælaframleiðslu. Kostnaðar-
hækkanir á innfluttu hráefni eru
langt umfram það sem eðlilegt er
að velta yfir á neytendur. Það
þarf viðbótarfjármagn við þær 700 milljónir
króna sem settar voru í landbúnaðinn til að
bregðast við allt að 120% áburðarverðshækk-
unum í byrjun árs. Þær hækkanir voru aðeins
forsmekkurinn að því sem síðar kom.
Finnar styrkja landbúnað
og sjávarútveg
Í liðnum aprílmánuði ákvað finnska ráð-
herranefndin sem fjallar um neyðarviðbúnað
að setja 300 milljónir evra til styrktar innlendri
matvælaframleiðslu. Neyð-
arpakkinn inniheldur m.a.
greiðslur til að styðja við lausa-
fjárstöðu bænda og langtíma-
aðgerðir innanlands. Yfir 27
milljónum evra var varið til bygg-
ingar á eldishúsum, gróður-
húsum, geymslum fyrir græn-
metis- og garðyrkjuafurðir,
stuðning við hreindýrarækt og
sjávarútveg. Það vekur athygli
Íslendinga að nágrannaþjóðirnar
styrki sjávarútveg, sem hér er
sérstaklega skattlagður. Þá var
45 milljónum evra varið til lækk-
unar á orkuskatti og í raun allt gert til að
styrkja og auka matvælaframleiðslu innan-
lands.
Það er lán Íslendinga að vera ekki hluti af
raforkumarkaði Evrópusambandsins en mikl-
ar hækkanir á raforku ganga nærri fjárhag
heimila og atvinnulífs í sambandinu. Á Íslandi
standa heimilin og atvinnulífið styrkari fótum
með stöðugt raforkuverð þegar aðrar inn-
fluttar kostnaðarhækkanir dynja á þjóðinni
þrátt fyrir verulega styrkingu krónunnar.
Norðmenn bæta kjör bænda
Í Noregi hafa bændur og stjórnvöld nýlega
lokið samningaviðræðum um landbúnaðar-
stuðning fyrir 2022-2023. Síðustu ár hafa
norskir bændur setið eftir í tekjuþróun sam-
anborið við aðrar greinar í landinu en núna
hafa norsk stjórnvöld komið til móts við bænd-
ur og bæta þeim versnandi kjör síðustu ára.
Þeim kostnaðarauka sem nú blasir við bænd-
um í Noregi er að fullu mætt með hærra af-
urðaverði og opinberum stuðningi (90% tekin í
gegnum aukinn stuðning með styrkingu bú-
vörusamninga og 10% með hækkun afurða-
verðs). Með þessum ráðstöfunum mun stuðn-
ingur við norska bændur aukast um 10,9
milljarða norskra króna og hækkun afurða 1,5
milljarða norskra króna á samningstímabilinu.
Viðspyrnuaðgerðir fyrir bændur
En hvað geta stjórnvöld hér á landi gert til
að treysta fæðuöryggi þjóðarinnar? Væri það
ekki góð hugmynd að skoða viðspyrnuaðgerðir
fyrir landbúnaðinn líkt og gert var í kórónu-
veirufaraldrinum, en nú til að lækka kostnað
sem lagst hefur á matvælaframleiðsluna í land-
inu vegna stríðsaðgerða Rússa í Úkraínu? Í
byggingariðnaði er þeim kostnaði óhikað velt
út í verðlagið, á herðar neytendum.
Með því að fara að hætti Norðmanna mætti
koma í veg fyrir hækkanir til neytenda og þeir
bændur sem hafa þurft að taka á sig auknar
hækkanir fái þær bættar en komist hjá því að
velta þeim út í verðlagið. Það mun líka gera
bændum auðveldara í samkeppni að mæta und-
irboðum innfluttra landbúnaðarafurða. Það á
að vera stefna stjórnvalda að auka og treysta
matvælaframleiðslu í landinu. Það er hluti af
þeim kostnaði að vera frjáls og fullvalda þjóð.
Eftir Ásmund
Friðriksson »Það á að vera stefna stjórn-
valda að auka og treysta
matvælaframleiðslu í landinu.
Það er hluti af þeim kostnaði að
vera frjáls og fullvalda þjóð.
Ásmundur Friðriksson
Höfundur er alþingismaður.
asmundurf@althingi.is
Matvælaframleiðsla er
kostnaður fyrir fullveldi þjóðar
Þegar þetta er skrifað er óljóst
um hvenær yfirstandandi vorþingi
lýkur. Það eina, sem vitað er með
vissu, er að starfsáætlun þingsins
um þingfrestun næsta föstudag,
stenst ekki. Hversu lengi þingið
stendur er undir þingmönnum og
þingflokkum komið. Hvort vonir
rætist um að hægt verði að ljúka
þingstörfum fyrir þjóðarhátíðar-
daginn með sómasamlegum hætti,
á eftir að koma í ljós.
Yfirstandandi þing hefur í mörgu verið sér-
stakt og ekki alltaf áferðarfallegt eða þing-
heimi til sóma. Heilu vikurnar fóru í innihalds-
litlar umræður, þar sem fá mál þokuðust
áfram – allra síst þau sem horfa til framfara.
Gallar þingskaparlaga hafa komið enn betur í
ljós – gallar sem þingmenn geta ekki lengur
litið fram hjá og komið sér undan að sníða af. Í
raun getur minnihluti tekið þingið „í gíslingu“
– hindrað að mál sem njóta stuðnings meiri-
hlutans nái fram að ganga. Málþóf tryggir
yfirleitt ekki pólitíska landvinninga en þó eru
dæmi um að málþóf hafi skipt þjóðina miklu.
Ég hef haldið því fram að stjórnarandstaða
hafi sjaldan, ef nokkru sinni, unnið betur fyrir
sínu kaupi en í „málþófi“ gegn Icesave-
samningum árið 2009.
Tugir mála í biðstöðu
Tugir stjórnarmála – frum-
vörp og þingsályktunartillögur –
bíða afgreiðslu. Einhver eru um-
deild en flest virðast í sæmilegri
sátt. Líklega hafa þingmanna-
málin sjaldan verið fleiri – fram-
leiðsla þeirra virðist stundum
líkjast færibandi en vel útfærðri
vinnu og margt er endurnýtt ár
eftir ár. Fyrirspurnir, annað
hvort til skriflegs eða munnlegs
svars eða munnlegar í óundir-
búnum fyrirspurnatímum, eru á
þriðja hundrað.
Miðað við reynslu má gera ráð fyrir að tugir
þingmála verði samþykktir eða afgreiddir með
öðrum hætti á síðustu starfsdögum þingsins,
hvenær sem þeir renna upp. Þingmenn þurfa á
öllu sínu að halda til að fylgjast með.
Það er ekki auðvelt að fá innsýn í öll þau mál
sem koma til kasta þingsins – sum eru einföld
en önnur flókin. Þingmenn eiga litla möguleika
á því að kynna sér öll þingmál ofan í kjölinn,
hvað þá að öðlast skilning á hugsanlegum
áhrifum og afleiðingum væntanlegrar laga-
setningar. Til þess er hvorki tími né á stundum
nauðsynleg þekking á flóknum viðfangsefnum.
Þingmenn þurfa því að treysta á sam-
verkamenn sína – skipta liði og sérhæfa sig. Til
þess njóta þeir ráðgjafar sérfræðinga á
nefndasviði þingsins og starfsmanna eigin
þingflokka. Þeir verða einnig að reiða sig á
sérfræðinga ráðuneyta og stofnana, á fulltrúa
hagsmunaaðila og einstaklinga með sérþekk-
ingu á viðkomandi málasviði. En fyrst og síð-
ast verða þeir að treysta eigin hyggjuviti og
byggja afstöðu sína á grunnhugsjónum og
pólitísku mati á hvað er framkvæmanlegt og
hvað ekki, hvar rétt er að gefa eftir og hvar
ekki.
En sé það erfitt fyrir þingmenn að kynna
sér í þaula hvert einasta frumvarp og laga-
grein, segir það sig sjálft að fyrir almenning er
útilokað að öðlast yfirsýn yfir það hvernig leik-
reglum er breytt. Oftar en ekki fela breyting-
arnar í sér að reglur eru hertar og þær gerðar
flóknari, útgjöld og völd kerfisins aukin með
beinum eða óbeinum hætti. Frelsismálin sitja
fremur á hakanum. Mér hefur alltaf fundist
það athyglisvert (og áhyggjuefni) hve margir
þingmenn hafa lítinn áhuga á eða eru hrein-
lega andvígir því að stíga skref í átt að auknu
frelsi einstaklinga. Þess vegna daga litlu og
stóru frelsismálin uppi í nefndum eða þau
komast ekki á dagskrá þingsins.
Vítahringur og lítið breytist
Í mörg ár hefur forsetum Alþingis, ekki síð-
ur en óbreyttum þingmönnum og ráðherrum,
– þvert á flokka – orðiðtíðrætt um nauðsyn
þess að breyta vinnubrögðum. Umræðan hef-
ur litlu skilað, eins og berlega kom í ljós á liðn-
um vetri. Endurskoðun þingskaparlaga er
nauðsynleg, eins og áður hefur verið vikið að,
en fleira þarf að koma til.
Í mörg ár hef ég reglulega minnt á að Al-
þingi verði að brjótast út úr þeim vítahring
sem búinn hefur verið til með mælistiku sem
þingmenn og fjölmiðlar nota til að meta þing-
störfin. Hreyknir fara þingmenn og ráðherrar
út í sumarið og benda á ótrúlegan fjölda frum-
varpa og tillagna sem samþykkt hafa verið.
Magnið yfirtekur gæðin. Metnaðurinn liggur í
fjölda en ekki innihaldi, skýrleika eða einfald-
leika. Áherslan, ekki síst stjórnarþingmanna,
er að koma „uppskerunni“ í hús, óháð því
hvernig hún gagnast almenningi og fyrir-
tækjum í landinu.
Afkastamikil þing eru yfirleitt ekki góð
þing.
Eftir Óla Björn
Kárason » Sé það erfitt fyrir þing-
menn að kynna sér í þaula
hvert einasta frumvarp, er það
útilokað fyrir almenning að
fylgjast með því hvernig leik-
reglum er breytt.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Undir lok þings
Flutningur Nýverið voru nemendur Listaháskólans með sýningu á Kjarvalsstöðum, þar sem gínur voru til sýnis. Þær enduðu á pallbíl sem flutti þær á næsta áfangastað.
Árni Sæberg