Morgunblaðið - 08.06.2022, Page 28

Morgunblaðið - 08.06.2022, Page 28
Edinborg fegursta borg Skotlands Verð 219.000 á mann m.v. gistingu í tvíbýli* Haustferð 23.-27. október Edinborg er ein fegursta borg Skotlands og vagga skoskrar menningar. Það er mikil upplifun að heim- sækja borgina og skoða sig um í ”Old Town” sem og nýrri borgarhlutanum. Gist er á hinu glæsilegu Hótel Kimpton Charlotte Square þar sem öll aðstaða er í hæsta gæðaflokki, þ.m.t. barir, innisundlaug og íþróttaaðstaða. Hótelið er staðsett við George Street eða ”Champs-Élýsée” Edingborgar þar sem kaffi- og veitingahús eru á hverju strái ásamt glæsilegum verslunum. Farið verður í eina skoðunarferð inn í landið og Stirling kastali heimsóttur ásamt siglingu á stöðuvatnin Loch Katrine. Innifalið í verði: Flug með Icelandair til Glasgow báðar leiðir, 4ra nátta gisting á Kimpton Square ásamt morgunverði. Rútuakstur til og frá hóteli og flugvelli ásamt skoðunarferð og aðgangseyri að stöðum sem heimsóttir verða. Íslensk fararstjórn. • Aukagjald fyrir einbýli er kr. 85.000. Niko ehf, Austurvegi 6, 800 Selfoss, sími 783-9300, www.hotelbokanir.is, hotel@hotelbokanir.is Nánari upplýsingar um ferðina má finna á www.hotelbokanir.is þar sem hægt er að skrá sig til þátttöku. Einnig eru allar upplýsingar veittar í síma 783-9300 á skrifstofutíma. Sumarsýning Skaftfells á Seyðisfirði hefur verið opnuð og nefnist hún Fjær. Á henni má bæði sjá samtímalist og muni úr náttúru- og minjasöfnum sem tengjast inn- byrðis og hafa skírskotanir í himininn, jarðfræði, könn- un á landi og sýnatökur, skv. tilkynningu. Rýnt er í sam- band manns og umhverfis. Sýnd verða verk eftir Diane Borsato, Geoffrey Hendricks (1931-2018) og Þorgerði Ólafsdóttur. Einnig má sjá steina sem Nicoline Wey- wadt safnaði og jarðfundna plastmuni frá fornleifaupp- greftri við bæinn Fjörð á Seyðisfirði sumrin 2020 og 2021. Sýningarstjóri er Becky Forsythe. Sumarsýningin Fjær í Skaftfelli MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 159. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Valskonur náðu í gærkvöld þriggja stiga forystu í Bestu deild kvenna í fótbolta þegar þær unnu stórsigur á Aftureldingu á Hlíðarenda, 6:1. Katla Tryggvadóttir, 17 ára stúlka úr Þrótti, skoraði öll mörk liðsins í 3:1-sigri á KR í Vesturbænum, ÍBV vann Keflavík 3:2 í fjörugum leik í Eyjum og Hildur Antonsdóttir tryggði Breiðabliki sigur gegn Selfossi, 1:0. »22 Valur náði þriggja stiga forystu ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Gítarleikarinn Anton Benedikt Kröyer var 19 ára þegar hann kom fyrst fram opinberlega með Her- berti Guðmundssyni söngvara og fleiri tónlistarmönnum í hljómsveit- inni Eilífð 1969. Síðan hefur hann spilað með ýmsum dansböndum og býður nú fram krafta sína með söng- konunni Ann Andreasen. „Við vor- um saman í hljómsveit í gamla daga og ákváðum að taka upp þráðinn á ný, fyrst og fremst hjá fyrirtækjum og stofnunum og í einka- samkvæmum,“ segir hann. Gítarinn heillaði Anton snemma á lífsleiðinni. „Björgvin Gíslason kenndi mér nokkur grip og Addi í Flowers líka,“ rifjar hann upp. Bæt- ir við að lítið hafi verið um að vera í Kópavogi þegar hann ólst þar upp. Fótboltinn hafi verið í flugumynd í samanburði við nútímann, engin fót- boltamenning, ekkert íslenskt sjón- varp og í raun ekkert annað að gera fyrir stráka í barnaskóla með áhuga á tónlist en að horfa á kana- sjónvarpið og reyna að líkja eftir bandarískum tónlistarmönnum. „Ég keypti mér gamalt Grundig- segulbandstæki, við tókum upp lög- in, sem okkur þótti mjög flott í kana- sjónvarpinu, og æfðum þau saman í skúrnum hjá pabba. Einn sagðist vilja spila á bassa, annar á trommur og þá sagðist ég ætla að spila á gít- ar.“ Kennari og verslunarmaður Ferill Antons í spilamennskunni er langur. „Þetta er svo gaman,“ segir hann um úthaldið. Bætir við að hann hafi vissulega verið sprækari þegar hann var yngri, en gleðin hafi alla tíð haldið sér við efnið. Hann hafi spilað í öllum helstu danshúsum landsins og oft suður á Velli. „Ég var mikið í klúbbunum hjá bandaríska hernum og get ekki hætt. Sumir fara í golf og spilamennskan er mitt golf.“ Tónlistin hefur alltaf fyrst og fremst verið áhugamál hjá Antoni. Hann útskrifaðist sem kennari frá Kennaraskóla Íslands 1972 og kenndi víða um land um árabil, en stofnaði hljóðfæraverslunina Gítar- inn 1989 og hefur rekið hana síðan samfara spilamennskunni. Anton hefur spilað með mörgu tónlistarfólki og þar á meðal með Bjarna Sigurðssyni, harmonikuleik- ara frá Geysi í Haukadal. „Við spiluðum saman um hverja helgi í sex ár og þá lærði ég að spila gömlu dansana. Svo spilaði ég líka mikið með Jónu Einarsdóttur harm- onikuleikara á jólaböllum og árs- hátíðum,“ segir Anton. Tónlistarsmekkur fólks er mis- jafn, en Anton segist halda sig við vinsæla slagara, gömul gullaldarlög. Hann hafi dálæti á hljómsveitum eins og Creedence Clearwater Revival, Smokie og Eagles. „Eric Clapton hefur líka alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og að sjálf- sögðu Rolling Stones og Bítlarnir. Svo tökum við það sem hefur staðið upp úr í íslenskri tónlist. Ég hangi á öllu þessu gamla og góða eins og hundur á roði.“ Morgunblaðið/Hákon Á ferðinni Anton Kröyer hefur komið fram opinberlega í rúmlega hálfa öld og tekur nú lagið með Ann Andreasen. Sem hundur á roði - Anton á fullu í hálfa öld - „Spilamennskan er mitt golf“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.