Morgunblaðið - 13.06.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
LÚXUS GOLF Á ÍTALÍU
CHERVO GOLF HÓTEL OG SPA Á ÍTALÍU
Chevro Golf and Spa Resort er glæsilegt
lúxus hótel sem er staðsett í San Vigilio í
Trentico - Alto Adige héraði, sem er í 40 mín
akstursfjarlægð frá Verona og 12 mín. akstri
frá Gardavatninu.
Hér er á ferðinni einstök ferð þar sem nóg er
af sól, menningu, mat og golfi á Ítalíu.
Chervo-golfvöllurinn státar af 36 holum þar
af 9 holur par 3 velli og 3×9 holu keppnisvelli:
Benaco, Solferino og San Martino.
BEINT FLUG, INNRITAÐUR FARANGUR,
HANDFARANGUR OG FLUTNINGUR Á GOLFSETTI
8 DAGAR Á LÚXUS GISTINGU M. MORGUNVERÐI,
ÍSLENSK FARARSTJÓRN,
AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI,
6 GOLF-DAGAR Á CHERVOGOLFVELLINUM
OG AÐGANGUR AÐ ÆFINGASVÆÐI
INNIFALIÐ Í VERÐI:
04. – 11. SEPTEMBER
VERÐ FRÁ 299.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
KYNNINGARVERÐTAKMARKAÐURSÆTAFJÖLDI ÍBOÐI
ÖRFÁSÆTI LAUS
WWW.UU.IS | GOLF@UU.IS
Þurfa öðruvísi hjálp en fangelsisvist
- Dómsmálaráðuneytið vinnur að því að koma með tillögur til úrbóta - Formaður Afstöðu segir úr-
ræði skorta fyrir þá sem falla á milli þess að vera sakhæfir eða ósakhæfir - Skoða sameiginlegt átak
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra
segir ráðuneytið meðvitað um að úr-
ræði vanti fyrir fólk sem þurfi á
öðruvísi aðstoð að halda en hefð-
bundin fangelsi geta veitt. Það þurfi
læknishjálp og hjálp sérfræðinga á
öðrum sviðum. Unnið sé að því að
koma með tillögur til úrbóta.
„Þetta er búið að vera allt of lengi
vandamál hjá okkur sem þarf að
leysa,“ segir hann.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, for-
maður Afstöðu, félags fanga, sagði í
samtali við mbl.is í fyrradag að úr-
ræði skorti fyrir þá sem falla á milli
þess að vera sakhæfir eða ósakhæfir
eða þá sem reynast „of erfiðir“ fyrir
réttargeðdeild. Menn fengju ekki þá
aðstoð í fangelsum sem þeir þyrftu til
betrunar.
Í samvinnu við
Fangelsismálastofnun
Jón segir ráðuneytið hafa verið í
samvinnu við Fangelsismálastofnun
sem snýr einmitt að þessu vanda-
máli og því hvort mögulegt sé að
bregðast við þessu og öðru sem
snýr að fangelsismálum á sama
tíma. Utanaðkomandi aðili hafi verið
ráðinn til að vinna með stofnuninni
við að skoða þessi mál. Síðan er
stefnan að setja fram einhverjar
leiðir sem mögulegt er að feta til
þess að leysa málið.
Að sögn Jóns er um fjölbreyttan
hóp að ræða. „Við erum auðvitað fá-
mennt samfélag sem er að glíma við
ósakhæfi og fólk sem þarf einhverja
sérstaka meðferð í fangelsum. Við
erum líka með fólk sem þarf örygg-
isvistun út frá ákveðnum sjónarmið-
um. Ég hef skoðað það hvort við
getum leyst aðstæður þessa fá-
menna hóps með einhverju sameig-
inlegu átaki sem getur náð utan um
þessi vandamál sem við er að
glíma.“
Teymið fyllti ákveðið skarð
Þá segir Jón að mikið hafi áunnist
varðandi geðheilbrigði í íslenskum
fangelsum og að tilkoma geðheil-
brigðisteymis undir forystu Sigurð-
ar Hektorssonar geðlæknis, sem
var komið á fyrir nokkru, hafi í raun
fyllt ákveðið skarð. Það þyrfti því að
þróa starf teymisins svo það ætti við
fleiri aðstæður.
Jón bendir á að um samspil dóms-
málaráðuneytis, félagsmálaráðu-
neytis og heilbrigðisráðuneytis sé
að ræða.
„Við erum á okkar vettvangi að
vinna hugmyndir að einhverjum úr-
lausnum sem þessir aðilar gætu síð-
an sameinast um.“
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
Hjalti Már Björnsson, starfandi yf-
irlæknir á bráðadeild Landspítala,
fagnar nýju viðbragðsteymi heil-
brigðisráðuneytisins og vonast eftir
því að legurým-
um spítalans
verði fjölgað.
Eins og greint
var frá í fyrradag
hafa, að frum-
kvæði heilbrigð-
isráðuneytisins,
ýmsar heilbrigð-
isstofnanir og
samtök sem heil-
brigðiskerfinu
tengjast myndað
viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í
landinu vegna alvarlegrar stöðu inn-
an hennar.
„Ég fagna því að það virðist vera
sem svo að forstjóri og ráðherra taki
þessa stöðu mjög alvarlega núna og
það séu í undirbúningi aðgerðir af
fullri hörku til að snúa við þessu
ófremdarástandi,“ segir Hjalti í
samtali við Morgunblaðið.
Hjalti bendir á að ákall hafi verið í
hálfan áratug um að laga stöðuna
svo hann bíður nú eftir því að sjá að-
gerðir sem muni leysa hana. Það sé
þó framfararskref að ráðherra og
forstjóri Landspítalans virðist taka
ástandið mjög alvarlega.
Fram kemur í tilkynningu frá
heilbrigðisráðuneytinu að nánar
verði sagt frá viðbrögðum teymisins
þegar þau hafa verið skilgreind frek-
ar. Spurður um það hvernig við-
brögð hann vilji sjá bendir Hjalti á
að árum saman sé búið að kalla eftir
því að fjölga þurfi legurýmum til að
annast sjúklinga sem þarfnast inn-
lagnar.
Ætlar að halda í vonina
„Ég minni á að í raun og veru hef-
ur grunnvandamálið aldrei verið á
bráðamóttökunni. Vandamálið er að
það eru ekki til pláss fyrir sjúklinga
sem þurfa innlögn. Það gerir það að
verkum að innlagnarsjúklingar eru
vistaðir tugum saman á bráðamót-
töku sem gerir okkur ókleift að
sinna okkar starfi. En nú ætla ég að
halda í vonina að það séu bjartari
tímar fram undan og þetta verði
leyst,“ segir Hjalti og bætir við að
lokum:
„Við verðum að trúa því að það sé
nú verið að leysa málin fyrir alvöru.“
Trúir því að nú
eigi að leysa málin
- Yfirlæknir fagnar viðbragðsteymi
Hjalti Már
Björnsson
„Við erum að mótmæla aðgerðum
rússneskra stjórnvalda sem fremja nú
stríðsglæpi í nafni rússnesku þjóð-
arinnar,“ segir Andrei Menshenin,
rússneskur nemi í Háskóla Íslands.
Andrei er einn skipuleggjenda mót-
mæla sem fóru fram fyrir framan rúss-
neska sendiráðið í gær vegna stríðsins í
Úkraínu.
„Tólfta júní ár hvert er sjálfstæði
Rússlands fagnað. Mótmælin í dag
voru vegna þess að þjóðin er ekki sjálf-
stæð. Þjóðinni er stjórnað af hópi
glæpamanna og Vladimír Pútín fer þar
fremstur í flokki. Hann tekur allt Rúss-
land og gerir það sem hann vill án þess
að fylgja neinum mannréttindalögum.“
Andrei segir að fangelsi bíði sín fari
hann til Rússlands en nú stefnir í að
honum verði vísað úr landi. Vegabréf
hans er að renna út og illa gengur að fá
nýtt því hann geti ekki snúið heim.
Hann vonast til að geta fengið íslenskt
vegabréf.
Rússar
mótmæltu
stríðinu
Morgunblaðið/Kristvin
Mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan rússneska sendiráðið í gær, 12. júní, á sjálfstæðisdegi Rússlands