Morgunblaðið - 13.06.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.06.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. LÚXUS GOLF Á ÍTALÍU CHERVO GOLF HÓTEL OG SPA Á ÍTALÍU Chevro Golf and Spa Resort er glæsilegt lúxus hótel sem er staðsett í San Vigilio í Trentico - Alto Adige héraði, sem er í 40 mín akstursfjarlægð frá Verona og 12 mín. akstri frá Gardavatninu. Hér er á ferðinni einstök ferð þar sem nóg er af sól, menningu, mat og golfi á Ítalíu. Chervo-golfvöllurinn státar af 36 holum þar af 9 holur par 3 velli og 3×9 holu keppnisvelli: Benaco, Solferino og San Martino. BEINT FLUG, INNRITAÐUR FARANGUR, HANDFARANGUR OG FLUTNINGUR Á GOLFSETTI 8 DAGAR Á LÚXUS GISTINGU M. MORGUNVERÐI, ÍSLENSK FARARSTJÓRN, AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI, 6 GOLF-DAGAR Á CHERVOGOLFVELLINUM OG AÐGANGUR AÐ ÆFINGASVÆÐI INNIFALIÐ Í VERÐI: 04. – 11. SEPTEMBER VERÐ FRÁ 299.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA KYNNINGARVERÐTAKMARKAÐURSÆTAFJÖLDI ÍBOÐI ÖRFÁSÆTI LAUS WWW.UU.IS | GOLF@UU.IS Þurfa öðruvísi hjálp en fangelsisvist - Dómsmálaráðuneytið vinnur að því að koma með tillögur til úrbóta - Formaður Afstöðu segir úr- ræði skorta fyrir þá sem falla á milli þess að vera sakhæfir eða ósakhæfir - Skoða sameiginlegt átak Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir ráðuneytið meðvitað um að úr- ræði vanti fyrir fólk sem þurfi á öðruvísi aðstoð að halda en hefð- bundin fangelsi geta veitt. Það þurfi læknishjálp og hjálp sérfræðinga á öðrum sviðum. Unnið sé að því að koma með tillögur til úrbóta. „Þetta er búið að vera allt of lengi vandamál hjá okkur sem þarf að leysa,“ segir hann. Guðmundur Ingi Þóroddsson, for- maður Afstöðu, félags fanga, sagði í samtali við mbl.is í fyrradag að úr- ræði skorti fyrir þá sem falla á milli þess að vera sakhæfir eða ósakhæfir eða þá sem reynast „of erfiðir“ fyrir réttargeðdeild. Menn fengju ekki þá aðstoð í fangelsum sem þeir þyrftu til betrunar. Í samvinnu við Fangelsismálastofnun Jón segir ráðuneytið hafa verið í samvinnu við Fangelsismálastofnun sem snýr einmitt að þessu vanda- máli og því hvort mögulegt sé að bregðast við þessu og öðru sem snýr að fangelsismálum á sama tíma. Utanaðkomandi aðili hafi verið ráðinn til að vinna með stofnuninni við að skoða þessi mál. Síðan er stefnan að setja fram einhverjar leiðir sem mögulegt er að feta til þess að leysa málið. Að sögn Jóns er um fjölbreyttan hóp að ræða. „Við erum auðvitað fá- mennt samfélag sem er að glíma við ósakhæfi og fólk sem þarf einhverja sérstaka meðferð í fangelsum. Við erum líka með fólk sem þarf örygg- isvistun út frá ákveðnum sjónarmið- um. Ég hef skoðað það hvort við getum leyst aðstæður þessa fá- menna hóps með einhverju sameig- inlegu átaki sem getur náð utan um þessi vandamál sem við er að glíma.“ Teymið fyllti ákveðið skarð Þá segir Jón að mikið hafi áunnist varðandi geðheilbrigði í íslenskum fangelsum og að tilkoma geðheil- brigðisteymis undir forystu Sigurð- ar Hektorssonar geðlæknis, sem var komið á fyrir nokkru, hafi í raun fyllt ákveðið skarð. Það þyrfti því að þróa starf teymisins svo það ætti við fleiri aðstæður. Jón bendir á að um samspil dóms- málaráðuneytis, félagsmálaráðu- neytis og heilbrigðisráðuneytis sé að ræða. „Við erum á okkar vettvangi að vinna hugmyndir að einhverjum úr- lausnum sem þessir aðilar gætu síð- an sameinast um.“ Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Hjalti Már Björnsson, starfandi yf- irlæknir á bráðadeild Landspítala, fagnar nýju viðbragðsteymi heil- brigðisráðuneytisins og vonast eftir því að legurým- um spítalans verði fjölgað. Eins og greint var frá í fyrradag hafa, að frum- kvæði heilbrigð- isráðuneytisins, ýmsar heilbrigð- isstofnanir og samtök sem heil- brigðiskerfinu tengjast myndað viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu vegna alvarlegrar stöðu inn- an hennar. „Ég fagna því að það virðist vera sem svo að forstjóri og ráðherra taki þessa stöðu mjög alvarlega núna og það séu í undirbúningi aðgerðir af fullri hörku til að snúa við þessu ófremdarástandi,“ segir Hjalti í samtali við Morgunblaðið. Hjalti bendir á að ákall hafi verið í hálfan áratug um að laga stöðuna svo hann bíður nú eftir því að sjá að- gerðir sem muni leysa hana. Það sé þó framfararskref að ráðherra og forstjóri Landspítalans virðist taka ástandið mjög alvarlega. Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu að nánar verði sagt frá viðbrögðum teymisins þegar þau hafa verið skilgreind frek- ar. Spurður um það hvernig við- brögð hann vilji sjá bendir Hjalti á að árum saman sé búið að kalla eftir því að fjölga þurfi legurýmum til að annast sjúklinga sem þarfnast inn- lagnar. Ætlar að halda í vonina „Ég minni á að í raun og veru hef- ur grunnvandamálið aldrei verið á bráðamóttökunni. Vandamálið er að það eru ekki til pláss fyrir sjúklinga sem þurfa innlögn. Það gerir það að verkum að innlagnarsjúklingar eru vistaðir tugum saman á bráðamót- töku sem gerir okkur ókleift að sinna okkar starfi. En nú ætla ég að halda í vonina að það séu bjartari tímar fram undan og þetta verði leyst,“ segir Hjalti og bætir við að lokum: „Við verðum að trúa því að það sé nú verið að leysa málin fyrir alvöru.“ Trúir því að nú eigi að leysa málin - Yfirlæknir fagnar viðbragðsteymi Hjalti Már Björnsson „Við erum að mótmæla aðgerðum rússneskra stjórnvalda sem fremja nú stríðsglæpi í nafni rússnesku þjóð- arinnar,“ segir Andrei Menshenin, rússneskur nemi í Háskóla Íslands. Andrei er einn skipuleggjenda mót- mæla sem fóru fram fyrir framan rúss- neska sendiráðið í gær vegna stríðsins í Úkraínu. „Tólfta júní ár hvert er sjálfstæði Rússlands fagnað. Mótmælin í dag voru vegna þess að þjóðin er ekki sjálf- stæð. Þjóðinni er stjórnað af hópi glæpamanna og Vladimír Pútín fer þar fremstur í flokki. Hann tekur allt Rúss- land og gerir það sem hann vill án þess að fylgja neinum mannréttindalögum.“ Andrei segir að fangelsi bíði sín fari hann til Rússlands en nú stefnir í að honum verði vísað úr landi. Vegabréf hans er að renna út og illa gengur að fá nýtt því hann geti ekki snúið heim. Hann vonast til að geta fengið íslenskt vegabréf. Rússar mótmæltu stríðinu Morgunblaðið/Kristvin Mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan rússneska sendiráðið í gær, 12. júní, á sjálfstæðisdegi Rússlands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.