Morgunblaðið - 13.06.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 13.06.2022, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 Dagný Brynjarsdóttir Fjórði þáttur ámbl.is * %)'%#)&" !($+ DÆTUR ÍSLANDS Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Í fjórða þætti af Dætrum Íslands heimsækjum við knattspyrnukonuna Dagnýju Brynjarsdóttur en hún er samningsbundin West Ham í ensku úrvalsdeildinni. Dagný, sem er þrítug, gekk til liðs við West Ham í janúar á síðasta ári en hún skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við enska félagið á dög- unum. Hún er uppalin á Hellu og steig sín fyrstu skref á knattspyrnuvellinum með Knattspyrnufélagi Rangæinga, KFR, en hún lék sinn fyrsta meist- araflokksleik með sameiginlegu liði KFR og Ægis í 1. deildinni árið 2006, þá 14 ára gömul. Dagný gekk til liðs við Val þegar tímabilinu 2006 lauk en hún lék með Val í sjö tímabil, frá 2007 til 2013, og varð fjórum sinnum Íslandsmeistari á Hlíðarenda og þrívegis bikarmeistari. Hún gekk svo til liðs við Selfoss ár- ið 2014 og lék með liðinu í tvö tímabil en hún fór alla leið í úrslit bikar- keppninnar með Selfyssingum árið 2015 þar sem liðið tapaði 1:2 gegn Stjörnunni í úrslitaleik á Laugardals- velli. Alls á Dagný að baki 118 leiki í efstu deild með Selfossi og Val þar sem hún hefur skorað 44 mörk. Dagný gekk til liðs við þýska stór- liðið Bayern München í janúar 2015, á miðju tímabili, og lék með liðinu út keppnistímabilið en hún varð Þýska- landsmeistari með liðinu síðar um vorið. Mikil tilhlökkun fyrir EM Árið 2016 lék hún svo með Port- land Thorns í bandarísku atvinnu- mannadeildinni en hún lék með Port- land til ársins 2019. Hún varð bandarískur meistari með liðinu árið 2017 og deildarmeistari árið 2016. Hún lék svo með Selfossi í úrvals- deildinni tímabilið 2020 áður en hún hélt aftur út í atvinnumennsku. Dagný á að baki 101 A-landsleik fyrir íslenska kvennalandsliðið þar sem hún hefur skorað 34 mörk. Hún lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Bandaríkjunum í febrúar 2010, þá 18 ára gömul. Hún er gift Ómari Páli Sigurbjarts- syni en þau gengu í það heilaga árið 2019. Þau eignuðust sitt fyrsta barn saman árið 2018, soninn Brynjar Atla, en Dagný og Ómar hafa verið saman frá árinu 2007. „EM leggst mjög vel í mig,“ sagði Dagný þættinum. „Við erum allar búnar að þroskast mikið síðan lokakeppnin fór fram í Hollandi fyrir fimm árum. Við erum líka betri leikmenn í dag en þá og ég hlakka mikið til að fara á annað stórmót,“ sagði Dagný meðal annars. Hafa þroskast mikið á fimm árum Morgunblaðið/Hallur Már West Ham Dagný gekk til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið í janúar á síðasta ári en hún skrifaði undir tveggja ára samning við félagið á dögunum. - Miðjumaðurinn Dagný Brynjarsdóttir er samningsbundin West Ham í ensku úrvalsdeildinni - Dagný er uppalin á Hellu en hún á að baki 101 A-landsleik og er á leið á sitt þriðja stórmót Æfing Dagný fylgist vel með fyrirmælum þjálfarans Olli Harder en hann lét af störfum eftir tímabilið. London Dagný býr í London ásamt eiginmanni sínum Ómari Páli Sigurbjartssyni og syni þeirra Brynjari Atla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.