Morgunblaðið - 13.06.2022, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022
Dagný
Brynjarsdóttir
Fjórði þáttur
ámbl.is
* %)'%#)&" !($+
DÆTUR ÍSLANDS
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Í fjórða þætti af Dætrum Íslands
heimsækjum við knattspyrnukonuna
Dagnýju Brynjarsdóttur en hún er
samningsbundin West Ham í ensku
úrvalsdeildinni.
Dagný, sem er þrítug, gekk til liðs
við West Ham í janúar á síðasta ári
en hún skrifaði undir nýjan tveggja
ára samning við enska félagið á dög-
unum.
Hún er uppalin á Hellu og steig sín
fyrstu skref á knattspyrnuvellinum
með Knattspyrnufélagi Rangæinga,
KFR, en hún lék sinn fyrsta meist-
araflokksleik með sameiginlegu liði
KFR og Ægis í 1. deildinni árið 2006,
þá 14 ára gömul.
Dagný gekk til liðs við Val þegar
tímabilinu 2006 lauk en hún lék með
Val í sjö tímabil, frá 2007 til 2013, og
varð fjórum sinnum Íslandsmeistari á
Hlíðarenda og þrívegis bikarmeistari.
Hún gekk svo til liðs við Selfoss ár-
ið 2014 og lék með liðinu í tvö tímabil
en hún fór alla leið í úrslit bikar-
keppninnar með Selfyssingum árið
2015 þar sem liðið tapaði 1:2 gegn
Stjörnunni í úrslitaleik á Laugardals-
velli.
Alls á Dagný að baki 118 leiki í
efstu deild með Selfossi og Val þar
sem hún hefur skorað 44 mörk.
Dagný gekk til liðs við þýska stór-
liðið Bayern München í janúar 2015, á
miðju tímabili, og lék með liðinu út
keppnistímabilið en hún varð Þýska-
landsmeistari með liðinu síðar um
vorið.
Mikil tilhlökkun fyrir EM
Árið 2016 lék hún svo með Port-
land Thorns í bandarísku atvinnu-
mannadeildinni en hún lék með Port-
land til ársins 2019. Hún varð
bandarískur meistari með liðinu árið
2017 og deildarmeistari árið 2016.
Hún lék svo með Selfossi í úrvals-
deildinni tímabilið 2020 áður en hún
hélt aftur út í atvinnumennsku.
Dagný á að baki 101 A-landsleik
fyrir íslenska kvennalandsliðið þar
sem hún hefur skorað 34 mörk. Hún
lék sinn fyrsta A-landsleik gegn
Bandaríkjunum í febrúar 2010, þá 18
ára gömul.
Hún er gift Ómari Páli Sigurbjarts-
syni en þau gengu í það heilaga árið
2019. Þau eignuðust sitt fyrsta barn
saman árið 2018, soninn Brynjar
Atla, en Dagný og Ómar hafa verið
saman frá árinu 2007.
„EM leggst mjög vel í mig,“ sagði
Dagný þættinum.
„Við erum allar búnar að þroskast
mikið síðan lokakeppnin fór fram í
Hollandi fyrir fimm árum.
Við erum líka betri leikmenn í dag
en þá og ég hlakka mikið til að fara á
annað stórmót,“ sagði Dagný meðal
annars.
Hafa þroskast mikið á fimm árum
Morgunblaðið/Hallur Már
West Ham Dagný gekk til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið í janúar á síðasta ári en hún skrifaði undir tveggja ára samning við félagið á dögunum.
- Miðjumaðurinn Dagný Brynjarsdóttir er samningsbundin West Ham í ensku úrvalsdeildinni
- Dagný er uppalin á Hellu en hún á að baki 101 A-landsleik og er á leið á sitt þriðja stórmót
Æfing Dagný fylgist vel með fyrirmælum þjálfarans
Olli Harder en hann lét af störfum eftir tímabilið.
London Dagný býr í London ásamt eiginmanni sínum
Ómari Páli Sigurbjartssyni og syni þeirra Brynjari Atla.