Morgunblaðið - 13.06.2022, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.06.2022, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 w w w. i t r. i s S ý num hver t ö ð r u tilli t s s emi 13. júní 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 130.18 Sterlingspund 161.91 Kanadadalur 102.12 Dönsk króna 18.511 Norsk króna 13.567 Sænsk króna 13.083 Svissn. franki 132.35 Japanskt jen 0.9718 SDR 174.33 Evra 137.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.1375 « Bandaríski tæknirisinn Apple tilkynnti í síðustu viku að viðskipta- vinum fyrirtækisins í Bandaríkjunum muni standa til boða að greiða fyrir raftæki sín með afborgunum. Mun Apple lána fyrir kaupunum milliliðalaust og leyfa að skipta greiðslum í fernt en afborganir verða á tveggja vikna fresti. Greinir WSJ frá að dótturfélag Apple hafi þegar fengið leyfi til að starfa sem lánveitandi í flest- um ríkjum Bandaríkjanna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Apple bætir fjármálaþjónustu við vöruúrval sitt en símar fyrirtækisins eru búnir Apple Pay-snjallveskinu sem geymir greiðslukortaupplýsingar. Með forritinu geta notendur greitt snertilaust með símanum og einnig sent peninga sín á milli. Þá gaf Apple út greiðslukortið Apple Card árið 2019 en fékk bankann Goldman Sachs til að vinna úr umsókn- um og annast fjárhagshlið kortanna. Tækjakaupalán Apple verða milliliða- laus sem þýðir að Apple situr uppi með tjónið sem kann að hljótast af því ef lántakendur standa ekki í skilum. Hyggst Apple minnka áhættu vegna lánanna m.a. með því að nota eigin gögn um notendur Apple-tækja til að auðkenna lántakendur og koma í veg fyrir svik. Þá mun hvert lán nema að há- marki 1.000 dölum. ai@mbl.is Apple fikrar sig inn á lánamarkaðinn Verslun Apple í Sjanghaí. STUTT Yfirvofandi stýrvaxtahækkun á evrusvæðinu skaut fjárfestum skelk í bringu á föstudag og varð til þess að þeir seldu frá sér ítölsk og grísk ríkisskuldabréf. Óttast markaðurinn að hækkun stýrivaxta gæti gert skuldsettustu ríkjum Evrópu erfið- ara að standa í skilum við lánveit- endur. Hækkaði ávöxtunarkrafa grískra 10 ára skuldabréfa upp í 4,28% en ítalskra ríkisskuldabréfa upp í 3,75% á föstudag og greinir FT frá að ávöxtunarkrafa þeirra hafi ekki ver- ið hærri í tvö ár. Ávöxtunarkrafa spænskra og portúgalskra ríkisskuldabréfa hækkaði sömuleiðis og þá lækkaði hlutabréfaverð evópskra banka sem margir eiga stórt safn ríkisskulda- bréfa. Lækkaði ítalska MIB-vísital- an um 5% á föstudag og skrifaðist það einkum á þróun hlutabréfaverðs ítalskra banka en UniCredit lækkaði um 9% og Intesa Sao Paolo um 7,6%. Lagarde vill viðhalda jafnvægi Stjórnendur seðlabanka Evrópu (SBE) upplýstu á fimmtudag að bankinn myndi senn láta af inngrip- um sínum á skuldabréfamarkaði og að í næsta mánuði verði stýrivextir hækkaðir í fyrsta skipti frá árinu 2011. Þá gaf bankinn til kynna að frekari vaxtahækkana sé von síðar á þessu ári. Christine Lagarde, seðlabanka- stjóri Evrópu, sagði á fimmtudag að bankinn gæti kynnt til sögunnar nýtt úrræði til að koma í veg fyrir mikla hækkun ávöxtunarkröfu ríkis- skuldabréfa einstakra ríkja á evru- svæðinu en á föstudag fór munurinn á ávöxtunarkröfu ítalskra og þýskra 10 ára ríkisskuldabréfa á tímabili upp í 2,27%. ai@mbl.is Ávöxtunarkrafa ítalskra og grískra ríkisskuldabréfa á uppleið John Thys/AFP Vandi Christine Lagarde á blaðamannafundi SBE. Stjórnvöld í álfunni vilja afstýra því að ávöxtunarkrafa skuldabréfa skuldsettustu ríkjanna rjúki upp. - SBE veldur titringi - Bilið breikkar á milli ítalskra og þýskra ríkisskuldabréfa Rannsókn stendur yfir hjá Meta, móðurfélagi Facebook, vegna grun- semda um að Sheryl Sandberg hafi látið starfsfólk samfélagsmiðilsins vinna í eigin þágu. Líkt og Morgun- blaðið hefur fjallað um hefur Sand- berg ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Meta en í fjórtán ár hefur hún verið hægri hönd Marks Zuckerbergs, forstjóra og stofnanda félagsins, og um leið verið eitt þekktasta andlitið í bandarísku atvinnulífi. Stendur til að Sandberg sitji áfram í stjórn Meta. Wall Street Journal greindi frá því á föstudag að grunur léki á að svo ár- um skipti hefði Sandberg m.a. látið fólk á launum hjá Meta vinna að verkefnum sem tengjast góðgerðar- félaginu Lean In sem hún starfræk- ir, og að hún hefði nýtt starfskrafta fyrirtækisins til að hjálpa til við að skrifa og kynna bókina Option B sem kom út árið 2015. Að sögn heimildarmanna WSJ hófst rannsóknin síðasta haust, en áður hafði blaðið greint frá að Meta hefði rannsakað hvort Sandberg hefði farið út fyrir heimildir sínar með því að láta starfsfólk félagsins taka þátt í að undirbúa fyrirhugað brúðkaup hennar síðar í sumar. Hef- ur hún vísað ásökunum þess efnis á bug. Hefur WSJ eftir fólki sem þekkir vel til Sandberg að rannsóknin hafi valdið henni ama en hafi þó ekki átt þátt í þeirri ákvörðun hennar að hætta sem framkvæmdastjóri. Meta hefur áður upplýst með ná- kvæmum hætti hvernig bæði Sand- berg og Zuckerberg hafa látið Meta standa straum af ýmsum útgjöldum og greiðir félagið t.d. fyrir öryggis- vörslu þeirra beggja. Þá nafngreindi Sandberg marga starfsmenn félags- ins í síðustu bók sinni og þakkaði þeim fyrir framlag sitt. ai@mbl.is Fabrice Coffrini/AFP Dáð Mögulegt er að Sheryl Sand- berg hafi misnotað stöðu sína. Starfshættir Sand- berg rannsakaðir - Kann að hafa látið starfsfólk Meta vinna í eigin þágu Stjórnvöld í Tyrklandi upplýstu í lok síðustu viku um útgáfu nýrra af- komutengdra skuldabréfa með tryggða lágmarksávöxtun. Tyrk- neska fjármálaráðuneytið hefur ekki upplýst frekar um eðli skuldabréf- anna en árin 2009 og 2010 gaf ríkis- sjóður landsins út skuldabréf sem tengd voru tekjum ríkisfyrirtækja á borð við ríkisolíufélag og flugvalla- rekstrarfélag Tyrklands. Hefur FT eftir sérfræðingum að í ljósi frammi- stöðu tyrkneskra ríkisfyrirtækja það sem af er þessu ári ættu afkomu- tengdu skuldabréfin að geta greitt hærri vexti en greiddir eru af inni- stæðum á tyrkneskum bankareikn- ingum. Í júní námu vextir á banka- innistæðum um 16% á ársgrundvelli sem er þó langt undir verðbólgustig- inu í landinu en í maí mældist verð- bólga 73,5% og hefur ekki verið hærri í 23 ár. Fjórðungi veikari en um áramót Undanfarið ár hefur gengi tyrk- nesku lírunnar lækkað um hér um bil helming gagnvart helstu gjald- miðlum og virðist botninum ekki enn náð. Hefur líran veikst um 22% gagnvart bandaríkjadal það sem af er þessu ári. Líran tók skarpa dýfu í desember síðast- liðnum og brugð- ust stjórnvöld m.a. við með því að bjóða inni- stæðueigendum tryggingu gegn gengislækkun ef þeir breyttu inni- stæðum í erlend- um gjaldmiðlum í lírur. Mun þetta kerfi renna sitt skeið á enda á kom- andi mánuðum og óttast greinendur að margir muni ekki kjósa að fram- lengja tryggingartilboð stjórnvalda heldur breyta innistæðum sínum aftur í erlenda gjaldmiðla, með til- heyrandi þrýstingi á gengi lírunnar. Líkt og Morgunblaðið hefur fjallað um vill Recep Tayyip Erdog- an Tyrklandsforseti alls ekki að seðlabanki landsins hækki stýrivexti til að draga úr verðbólgu og stöðva veikingu lírunnar og hefur hann þess í stað þrýst á stjórnendur seðlabankans að lækka stýrivexti. Þvert á hefðbundnar hagfræðikenn- ingar telur Erdogan að lágvaxta- stefna muni á endanum stöðva verð- bólguna í landinu. ai@mbl.is Tyrkneska líran heldur áfram að veikjast - Verðbólga mælist nú yfir 73% - Hyggjast gefa út afkomutengd skuldabréf Recep Tayyip Erdogan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.