Morgunblaðið - 13.06.2022, Síða 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022
w w w. i t r. i s
S ý num hver t ö ð r u tilli t s s emi
13. júní 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 130.18
Sterlingspund 161.91
Kanadadalur 102.12
Dönsk króna 18.511
Norsk króna 13.567
Sænsk króna 13.083
Svissn. franki 132.35
Japanskt jen 0.9718
SDR 174.33
Evra 137.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.1375
« Bandaríski
tæknirisinn Apple
tilkynnti í síðustu
viku að viðskipta-
vinum fyrirtækisins
í Bandaríkjunum
muni standa til
boða að greiða
fyrir raftæki sín
með afborgunum.
Mun Apple lána
fyrir kaupunum
milliliðalaust og leyfa að skipta
greiðslum í fernt en afborganir verða á
tveggja vikna fresti. Greinir WSJ frá
að dótturfélag Apple hafi þegar fengið
leyfi til að starfa sem lánveitandi í flest-
um ríkjum Bandaríkjanna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Apple
bætir fjármálaþjónustu við vöruúrval
sitt en símar fyrirtækisins eru búnir
Apple Pay-snjallveskinu sem geymir
greiðslukortaupplýsingar. Með forritinu
geta notendur greitt snertilaust með
símanum og einnig sent peninga sín á
milli. Þá gaf Apple út greiðslukortið
Apple Card árið 2019 en fékk bankann
Goldman Sachs til að vinna úr umsókn-
um og annast fjárhagshlið kortanna.
Tækjakaupalán Apple verða milliliða-
laus sem þýðir að Apple situr uppi með
tjónið sem kann að hljótast af því ef
lántakendur standa ekki í skilum.
Hyggst Apple minnka áhættu vegna
lánanna m.a. með því að nota eigin
gögn um notendur Apple-tækja til að
auðkenna lántakendur og koma í veg
fyrir svik. Þá mun hvert lán nema að há-
marki 1.000 dölum. ai@mbl.is
Apple fikrar sig inn
á lánamarkaðinn
Verslun Apple
í Sjanghaí.
STUTT
Yfirvofandi stýrvaxtahækkun á
evrusvæðinu skaut fjárfestum skelk
í bringu á föstudag og varð til þess
að þeir seldu frá sér ítölsk og grísk
ríkisskuldabréf. Óttast markaðurinn
að hækkun stýrivaxta gæti gert
skuldsettustu ríkjum Evrópu erfið-
ara að standa í skilum við lánveit-
endur.
Hækkaði ávöxtunarkrafa grískra
10 ára skuldabréfa upp í 4,28% en
ítalskra ríkisskuldabréfa upp í 3,75%
á föstudag og greinir FT frá að
ávöxtunarkrafa þeirra hafi ekki ver-
ið hærri í tvö ár.
Ávöxtunarkrafa spænskra og
portúgalskra ríkisskuldabréfa
hækkaði sömuleiðis og þá lækkaði
hlutabréfaverð evópskra banka sem
margir eiga stórt safn ríkisskulda-
bréfa. Lækkaði ítalska MIB-vísital-
an um 5% á föstudag og skrifaðist
það einkum á þróun hlutabréfaverðs
ítalskra banka en UniCredit lækkaði
um 9% og Intesa Sao Paolo um 7,6%.
Lagarde vill viðhalda jafnvægi
Stjórnendur seðlabanka Evrópu
(SBE) upplýstu á fimmtudag að
bankinn myndi senn láta af inngrip-
um sínum á skuldabréfamarkaði og
að í næsta mánuði verði stýrivextir
hækkaðir í fyrsta skipti frá árinu
2011. Þá gaf bankinn til kynna að
frekari vaxtahækkana sé von síðar á
þessu ári.
Christine Lagarde, seðlabanka-
stjóri Evrópu, sagði á fimmtudag að
bankinn gæti kynnt til sögunnar
nýtt úrræði til að koma í veg fyrir
mikla hækkun ávöxtunarkröfu ríkis-
skuldabréfa einstakra ríkja á evru-
svæðinu en á föstudag fór munurinn
á ávöxtunarkröfu ítalskra og þýskra
10 ára ríkisskuldabréfa á tímabili
upp í 2,27%. ai@mbl.is
Ávöxtunarkrafa ítalskra og
grískra ríkisskuldabréfa á uppleið
John Thys/AFP
Vandi Christine Lagarde á blaðamannafundi SBE. Stjórnvöld í álfunni vilja
afstýra því að ávöxtunarkrafa skuldabréfa skuldsettustu ríkjanna rjúki upp.
- SBE veldur titringi - Bilið breikkar á milli ítalskra og þýskra ríkisskuldabréfa
Rannsókn stendur yfir hjá Meta,
móðurfélagi Facebook, vegna grun-
semda um að Sheryl Sandberg hafi
látið starfsfólk samfélagsmiðilsins
vinna í eigin þágu. Líkt og Morgun-
blaðið hefur fjallað um hefur Sand-
berg ákveðið að láta af störfum sem
framkvæmdastjóri Meta en í fjórtán
ár hefur hún verið hægri hönd
Marks Zuckerbergs, forstjóra og
stofnanda félagsins, og um leið verið
eitt þekktasta andlitið í bandarísku
atvinnulífi. Stendur til að Sandberg
sitji áfram í stjórn Meta.
Wall Street Journal greindi frá því
á föstudag að grunur léki á að svo ár-
um skipti hefði Sandberg m.a. látið
fólk á launum hjá Meta vinna að
verkefnum sem tengjast góðgerðar-
félaginu Lean In sem hún starfræk-
ir, og að hún hefði nýtt starfskrafta
fyrirtækisins til að hjálpa til við að
skrifa og kynna bókina Option B sem
kom út árið 2015.
Að sögn heimildarmanna WSJ
hófst rannsóknin síðasta haust, en
áður hafði blaðið greint frá að Meta
hefði rannsakað hvort Sandberg
hefði farið út fyrir heimildir sínar
með því að láta starfsfólk félagsins
taka þátt í að undirbúa fyrirhugað
brúðkaup hennar síðar í sumar. Hef-
ur hún vísað ásökunum þess efnis á
bug.
Hefur WSJ eftir fólki sem þekkir
vel til Sandberg að rannsóknin hafi
valdið henni ama en hafi þó ekki átt
þátt í þeirri ákvörðun hennar að
hætta sem framkvæmdastjóri.
Meta hefur áður upplýst með ná-
kvæmum hætti hvernig bæði Sand-
berg og Zuckerberg hafa látið Meta
standa straum af ýmsum útgjöldum
og greiðir félagið t.d. fyrir öryggis-
vörslu þeirra beggja. Þá nafngreindi
Sandberg marga starfsmenn félags-
ins í síðustu bók sinni og þakkaði
þeim fyrir framlag sitt. ai@mbl.is
Fabrice Coffrini/AFP
Dáð Mögulegt er að Sheryl Sand-
berg hafi misnotað stöðu sína.
Starfshættir Sand-
berg rannsakaðir
- Kann að hafa látið
starfsfólk Meta vinna
í eigin þágu
Stjórnvöld í Tyrklandi upplýstu í lok
síðustu viku um útgáfu nýrra af-
komutengdra skuldabréfa með
tryggða lágmarksávöxtun. Tyrk-
neska fjármálaráðuneytið hefur ekki
upplýst frekar um eðli skuldabréf-
anna en árin 2009 og 2010 gaf ríkis-
sjóður landsins út skuldabréf sem
tengd voru tekjum ríkisfyrirtækja á
borð við ríkisolíufélag og flugvalla-
rekstrarfélag Tyrklands. Hefur FT
eftir sérfræðingum að í ljósi frammi-
stöðu tyrkneskra ríkisfyrirtækja það
sem af er þessu ári ættu afkomu-
tengdu skuldabréfin að geta greitt
hærri vexti en greiddir eru af inni-
stæðum á tyrkneskum bankareikn-
ingum. Í júní námu vextir á banka-
innistæðum um 16% á ársgrundvelli
sem er þó langt undir verðbólgustig-
inu í landinu en í maí mældist verð-
bólga 73,5% og hefur ekki verið
hærri í 23 ár.
Fjórðungi veikari en um áramót
Undanfarið ár hefur gengi tyrk-
nesku lírunnar lækkað um hér um
bil helming gagnvart helstu gjald-
miðlum og virðist botninum ekki
enn náð. Hefur líran veikst um 22%
gagnvart bandaríkjadal það sem af
er þessu ári.
Líran tók
skarpa dýfu í
desember síðast-
liðnum og brugð-
ust stjórnvöld
m.a. við með því
að bjóða inni-
stæðueigendum
tryggingu gegn
gengislækkun ef
þeir breyttu inni-
stæðum í erlend-
um gjaldmiðlum í lírur. Mun þetta
kerfi renna sitt skeið á enda á kom-
andi mánuðum og óttast greinendur
að margir muni ekki kjósa að fram-
lengja tryggingartilboð stjórnvalda
heldur breyta innistæðum sínum
aftur í erlenda gjaldmiðla, með til-
heyrandi þrýstingi á gengi lírunnar.
Líkt og Morgunblaðið hefur
fjallað um vill Recep Tayyip Erdog-
an Tyrklandsforseti alls ekki að
seðlabanki landsins hækki stýrivexti
til að draga úr verðbólgu og stöðva
veikingu lírunnar og hefur hann
þess í stað þrýst á stjórnendur
seðlabankans að lækka stýrivexti.
Þvert á hefðbundnar hagfræðikenn-
ingar telur Erdogan að lágvaxta-
stefna muni á endanum stöðva verð-
bólguna í landinu. ai@mbl.is
Tyrkneska líran heldur áfram að veikjast
- Verðbólga mælist nú yfir 73% - Hyggjast gefa út afkomutengd skuldabréf
Recep Tayyip
Erdogan