Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 24
Með barnabörnunum Frá vinstri eru Katla, Jökull, Embla, Tristan Máni, Bjartmar eldri og Bjart-
mar yngri situr hjá afa sínum, Styrmir, Sara Mist og María Björt fyrir ofan, alls átta barnabörn.
Súrmjólk í hádeginu og Háseta vant-
ar á bát.
Hann hóf síðan eigin feril með
plötunni Ef ég mætti ráða frá 1984,
en á henni eru m.a. lögin Sumarliði
er fullur, og Kótilettukallinn. Hann
átti síðan fleiri vinsæl lög en sló
rækilega í gegn með fjórðu plötu
sinni, Í fylgd með fullorðnum, sem
tugu fór hann að semja lög og texta,
fyrst fyrir aðra eins og Þorgeir Ást-
valdsson á plötunni Á puttanum,
Björgvin Gíslason á plötunni Örugg-
lega og einnig jólaplötu þar sem
Laddi söng lag Bjartmars og Þor-
geirs, Út með jólaköttinn. Meðal
fleiri laga og texta sem Bjartmar
samdi fyrir aðra í byrjun ferilsins eru
B
jartmar Anton Guð-
laugsson er fæddur 13.
júní 1952 í Pétursborg á
Fáskrúðsfirði. Hann
bjó á Fáskrúðsfirði til 7
ára aldurs og flutti þá til Vest-
mannaeyja með fjölskyldunni.
Bjartmar byrjaði í Barnaskóla Fá-
skrúðsfjarðar og fór í barnaskóla og
gagnfræðaskóla í Vestmannaeyjum.
Hann lauk iðnnámi í málaradeild frá
Iðnskólanum í Reykjavík. Síðar, eða
1992, fór hann til Danmerkur og nam
myndlist hjá Bendt Veber rektor í
Det Fynske kunstakademi í Óðins-
véum og lauk því námi 1997. „Ég
byrjaði mjög snemma í myndlist, en
um fermingaraldurinn fékk ég leið-
sögn hjá Magnúsi Á. Árnasyni sem
þá var kennari við Myndlistarskóla
Vestmannaeyja og hjálpaði honum
og bar fyrir hann trönur þegar hann
var að mála úti.“
Bjartmar vann við sjómennsku og
flest þau störf sem fylgja því að búa í
sjávarplássi á sjó eða í landi. Eftir út-
skrift úr Iðnskólanum vann hann síð-
an við húsaviðgerðir. Tónlistarferill
Bjartmars fór rólega af stað, hann
lék fyrst á trommur en upp úr tví-
seldist í tæplega 20.000 eintökum.
„Þetta er þemaplata og fjallar um þá
veröld sem við fullorðna fólkið búum
börnum.“ Meðal laga á plötunni eru
Týnda kynslóðin, Sunnudagsmorg-
unn og Ég er ekki alki.
Bjartmar gaf út fleiri plötur en
söðlaði síðan um og fór í myndlist-
arnám án þess þó að yfirgefa tónlist-
ina. „Þetta snerist um að láta gamlan
draum rætast, ég var alltaf á leiðinni
í skóla hér heima en svo frétti ég af
Bendt Veber og ákvað að fara til
hans og vann með honum á stofunni
hans í þrjú ár og lærði af honum.
Akademíurnar í dag snúast ekki bara
um málverk, en ég vildi bara ná tök-
um á því og litafræðinni, kunna þær
bragðfræðireglur líka.“ Bjartmar
hélt sýningar úti og starfaði sem sýn-
ingarvörður í Brandts Klædefabrik,
sem er sýningarhöll í Óðinsvéum.
Bjartmar flutti síðan aftur heim til
Íslands 1998.
Síðan hefur Bjartmar unnið við
myndlist, og laga- og ljóðagerð og
hefur einnig haldið áfram að semja
fyrir aðra. Lag Bjartmars, Þannig
týnist tíminn, var kosið óskalag þjóð-
arinnar í kosningu á RÚV. „Það fer
Bjartmar Anton Guðlaugsson, tónlistar-, myndlistar- og ljóðlistarmaður
Þannig týnist tíminn
Með dætrunum Berglind, Elma Björk, Bjartmar og Arna.
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022
50 ÁRA Sif er Reykvíkingur og ólst
að mestu upp í Hlíðunum og Vest-
urbænum, en býr í Safamýri. Hún er
með BA-gráðu í þýsku og kvikmynda-
fræði frá HÍ. Hún hefur starfað sem
flugfreyja hjá Icelandair frá 1998.
„Áhugamál mín eru útivist og golf
meðal annars. Ég hef líka gaman af að
ferðast innanlands sem utan.“
FJÖLSKYLDA Maki Sifjar er Guð-
mundur Hrafn Pálsson, f. 1970, fram-
kvæmdastjóri auglýsingastofunnar
Pipar/TBWA. Sonur Sifjar er Hilmar
Þorgnýr Hákonarson, f. 2005. Stjúp-
börn hennar eru Fannar Daníel, f.
1993, Sara Ísabella, f. 1999, og Aron Örn, f. 2006. Foreldrar Sifjar eru Katrín
Gísladóttir, f. 1949, myndmenntakennari, og Hilmar Þorgnýr Helgason, f.
1947, d. 2001, auglýsingateiknari. Stjúpfaðir Sifjar er Árni Erlendur Stefáns-
son, f. 1949, viðskiptafræðingur.
Sif Björk Hilmarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Ánægjulegir atburðir hafa gerst í lífi
þínu og þú vilt deila þeim með öðrum. Haltu
þínu striki og láttu úrtölur sem vind um eyru
þjóta.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú leitar svara við þeim spurningum
sem á þér hvíla. Vertu viss um að þú vitir
hvað þú viljir áður en þú færð aðra til að
ganga til liðs við þig.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Miklar kröfur eru gerðar til þín í
vinnunni. Vertu því vel undirbúinn og hafðu
öll þín mál á hreinu.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú getur átt í erfiðleikum með að ná
jafnvægi í lífi þínu, ekki síst í ljósi þess að þú
ert sífellt að. Gerðu fyrst kröfur til sjálfs þín
áður en þú gerir kröfur á hendur öðrum.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er ástæðulaust að hafna samstarfi
við aðra fyrirfram því einn þíns liðs getur þú
ekki klárað verkefnið. Tilfinningarnar eiga
það til að hlaupa með þig í gönur.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú stendur með hugmyndum þínum,
án þess að vita nákvæmlega hvernig þú ætl-
ar að framkvæma þær. Láttu því draumana
fara að rætast því þú átt það svo skilið.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú ert fær í flestan sjó svo þér er óhætt
að vera stórtækur. Lærðu að sjá undir yf-
irborðið og upplifðu þá fölskvalausu gleði
sem svo oft felst í því smáa.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú verður að leggja málin niður
fyrir þér í smáatriðum og vera viðbúinn alls
kyns uppákomum. Viljirðu breytingar, skaltu
stíga á stokk og láta í þér heyra.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Viðkvæm vandamál koma upp
og krefjast allrar þinnar athygli. Þú mátt ekki
ganga fram af sjálfum þér því það mun
hefna sín grimmilega.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú ert mikilvægur hluti af hópi og
hefur vald til þess að hafa áhrif á aðstæður.
Vertu á verði ef þú átt í vandræðum.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú hefur haft yfrið nóg að starfa
að undanförnu en sérð nú fram á að eiga
tíma aflögu fyrir sjálfan þig. Ekki óttast að
öðrum þyki þú eigingjarn.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Reyndu að láta ekki drunga og leið-
indi annarra smita þig. Sjaldan er ríkari
ástæða til að gæta heilsu sinnar en þegar
streitan er í algleymingi.
Til hamingju með daginn
Kópavogur Ernir Valur Leuson fædd-
ist 28. maí 2021 kl. 9.56 í Reykjavík.
Hann vó 4.915 g og var 54 cm langur.
Foreldrar hans eru Lea Hrund Guð-
jónsdóttir og Helena Rut Jónsdóttir.
Nýr borgari
Þín upplifun skiptir okkur máli
Kringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Djúsí
andasalat
Frábær kostur í hádeginu