Morgunblaðið - 13.06.2022, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.06.2022, Qupperneq 24
Með barnabörnunum Frá vinstri eru Katla, Jökull, Embla, Tristan Máni, Bjartmar eldri og Bjart- mar yngri situr hjá afa sínum, Styrmir, Sara Mist og María Björt fyrir ofan, alls átta barnabörn. Súrmjólk í hádeginu og Háseta vant- ar á bát. Hann hóf síðan eigin feril með plötunni Ef ég mætti ráða frá 1984, en á henni eru m.a. lögin Sumarliði er fullur, og Kótilettukallinn. Hann átti síðan fleiri vinsæl lög en sló rækilega í gegn með fjórðu plötu sinni, Í fylgd með fullorðnum, sem tugu fór hann að semja lög og texta, fyrst fyrir aðra eins og Þorgeir Ást- valdsson á plötunni Á puttanum, Björgvin Gíslason á plötunni Örugg- lega og einnig jólaplötu þar sem Laddi söng lag Bjartmars og Þor- geirs, Út með jólaköttinn. Meðal fleiri laga og texta sem Bjartmar samdi fyrir aðra í byrjun ferilsins eru B jartmar Anton Guð- laugsson er fæddur 13. júní 1952 í Pétursborg á Fáskrúðsfirði. Hann bjó á Fáskrúðsfirði til 7 ára aldurs og flutti þá til Vest- mannaeyja með fjölskyldunni. Bjartmar byrjaði í Barnaskóla Fá- skrúðsfjarðar og fór í barnaskóla og gagnfræðaskóla í Vestmannaeyjum. Hann lauk iðnnámi í málaradeild frá Iðnskólanum í Reykjavík. Síðar, eða 1992, fór hann til Danmerkur og nam myndlist hjá Bendt Veber rektor í Det Fynske kunstakademi í Óðins- véum og lauk því námi 1997. „Ég byrjaði mjög snemma í myndlist, en um fermingaraldurinn fékk ég leið- sögn hjá Magnúsi Á. Árnasyni sem þá var kennari við Myndlistarskóla Vestmannaeyja og hjálpaði honum og bar fyrir hann trönur þegar hann var að mála úti.“ Bjartmar vann við sjómennsku og flest þau störf sem fylgja því að búa í sjávarplássi á sjó eða í landi. Eftir út- skrift úr Iðnskólanum vann hann síð- an við húsaviðgerðir. Tónlistarferill Bjartmars fór rólega af stað, hann lék fyrst á trommur en upp úr tví- seldist í tæplega 20.000 eintökum. „Þetta er þemaplata og fjallar um þá veröld sem við fullorðna fólkið búum börnum.“ Meðal laga á plötunni eru Týnda kynslóðin, Sunnudagsmorg- unn og Ég er ekki alki. Bjartmar gaf út fleiri plötur en söðlaði síðan um og fór í myndlist- arnám án þess þó að yfirgefa tónlist- ina. „Þetta snerist um að láta gamlan draum rætast, ég var alltaf á leiðinni í skóla hér heima en svo frétti ég af Bendt Veber og ákvað að fara til hans og vann með honum á stofunni hans í þrjú ár og lærði af honum. Akademíurnar í dag snúast ekki bara um málverk, en ég vildi bara ná tök- um á því og litafræðinni, kunna þær bragðfræðireglur líka.“ Bjartmar hélt sýningar úti og starfaði sem sýn- ingarvörður í Brandts Klædefabrik, sem er sýningarhöll í Óðinsvéum. Bjartmar flutti síðan aftur heim til Íslands 1998. Síðan hefur Bjartmar unnið við myndlist, og laga- og ljóðagerð og hefur einnig haldið áfram að semja fyrir aðra. Lag Bjartmars, Þannig týnist tíminn, var kosið óskalag þjóð- arinnar í kosningu á RÚV. „Það fer Bjartmar Anton Guðlaugsson, tónlistar-, myndlistar- og ljóðlistarmaður Þannig týnist tíminn Með dætrunum Berglind, Elma Björk, Bjartmar og Arna. 24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 50 ÁRA Sif er Reykvíkingur og ólst að mestu upp í Hlíðunum og Vest- urbænum, en býr í Safamýri. Hún er með BA-gráðu í þýsku og kvikmynda- fræði frá HÍ. Hún hefur starfað sem flugfreyja hjá Icelandair frá 1998. „Áhugamál mín eru útivist og golf meðal annars. Ég hef líka gaman af að ferðast innanlands sem utan.“ FJÖLSKYLDA Maki Sifjar er Guð- mundur Hrafn Pálsson, f. 1970, fram- kvæmdastjóri auglýsingastofunnar Pipar/TBWA. Sonur Sifjar er Hilmar Þorgnýr Hákonarson, f. 2005. Stjúp- börn hennar eru Fannar Daníel, f. 1993, Sara Ísabella, f. 1999, og Aron Örn, f. 2006. Foreldrar Sifjar eru Katrín Gísladóttir, f. 1949, myndmenntakennari, og Hilmar Þorgnýr Helgason, f. 1947, d. 2001, auglýsingateiknari. Stjúpfaðir Sifjar er Árni Erlendur Stefáns- son, f. 1949, viðskiptafræðingur. Sif Björk Hilmarsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Ánægjulegir atburðir hafa gerst í lífi þínu og þú vilt deila þeim með öðrum. Haltu þínu striki og láttu úrtölur sem vind um eyru þjóta. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú leitar svara við þeim spurningum sem á þér hvíla. Vertu viss um að þú vitir hvað þú viljir áður en þú færð aðra til að ganga til liðs við þig. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Miklar kröfur eru gerðar til þín í vinnunni. Vertu því vel undirbúinn og hafðu öll þín mál á hreinu. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú getur átt í erfiðleikum með að ná jafnvægi í lífi þínu, ekki síst í ljósi þess að þú ert sífellt að. Gerðu fyrst kröfur til sjálfs þín áður en þú gerir kröfur á hendur öðrum. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Það er ástæðulaust að hafna samstarfi við aðra fyrirfram því einn þíns liðs getur þú ekki klárað verkefnið. Tilfinningarnar eiga það til að hlaupa með þig í gönur. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú stendur með hugmyndum þínum, án þess að vita nákvæmlega hvernig þú ætl- ar að framkvæma þær. Láttu því draumana fara að rætast því þú átt það svo skilið. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú ert fær í flestan sjó svo þér er óhætt að vera stórtækur. Lærðu að sjá undir yf- irborðið og upplifðu þá fölskvalausu gleði sem svo oft felst í því smáa. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú verður að leggja málin niður fyrir þér í smáatriðum og vera viðbúinn alls kyns uppákomum. Viljirðu breytingar, skaltu stíga á stokk og láta í þér heyra. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Viðkvæm vandamál koma upp og krefjast allrar þinnar athygli. Þú mátt ekki ganga fram af sjálfum þér því það mun hefna sín grimmilega. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú ert mikilvægur hluti af hópi og hefur vald til þess að hafa áhrif á aðstæður. Vertu á verði ef þú átt í vandræðum. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú hefur haft yfrið nóg að starfa að undanförnu en sérð nú fram á að eiga tíma aflögu fyrir sjálfan þig. Ekki óttast að öðrum þyki þú eigingjarn. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Reyndu að láta ekki drunga og leið- indi annarra smita þig. Sjaldan er ríkari ástæða til að gæta heilsu sinnar en þegar streitan er í algleymingi. Til hamingju með daginn Kópavogur Ernir Valur Leuson fædd- ist 28. maí 2021 kl. 9.56 í Reykjavík. Hann vó 4.915 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Lea Hrund Guð- jónsdóttir og Helena Rut Jónsdóttir. Nýr borgari Þín upplifun skiptir okkur máli Kringlan ... alltaf næg bílastæði Borðabókanir á www.finnssonbistro.is eða info@finnssonbistro.is Djúsí andasalat Frábær kostur í hádeginu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.