Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 25
eftir skapinu hvort ég er í ljóðinu,
málverkinu eða laginu, en er oft í
þessu öllu sama daginn og reyni að
sinna þessu jafnt. Það sem þó á hug
minn í dag er hljómsveitin Bergris-
arnir en við erum búnir að gefa út
fjögur lög á þessu ári og erum að
huga að plötu.“ Hljómsveitin heldur
afmælistónleika í Háskólabíói 18.
júní og mun síðan halda tónleika víða
um land í kjölfarið.
Bjartmar sat í stjórn Félags tón-
skálda og textahöfunda. Hann hlaut
menningarverðlaun DV árið 2010
undir liðnum val lesenda, Íslensku
tónlistarverðlaunin sem textahöf-
undur ársins 2011 og Fréttapýra-
mídann 2016 fyrir framlag til menn-
ingarmála sem tónlistarmaður,
myndlistarmaður og rithöfundur.
Bjartmar gaf út bók árið 2016
Þannig týnist tíminn sem er skáld-
ævisaga ásamt myndlist og ljóðlist
höfundar.
Helstu áhugamál Bjartmars eru
tónlist, ljóðlist og myndlist. „Ég
gerði áhugamálin að atvinnu minni.“
Fjölskylda
Eiginkona Bjartmars er María
Helena Haraldsdóttir, f. 1.8. 1960,
forstöðumaður. Þau eru búsett á
Bauganesi í Skerjafirði. Foreldrar
Maríu: Harald Albertsson, f. 13.1.
1942, d. 18.8. 1997, skósmiður í
Reykjavík, og Erla J. Marinósdóttir,
f. 30.3. 1943, fyrrverandi bankamað-
ur, búsett í Reykjavík. Þau voru hjón
en skildu árið 1977.
Börn Bjartmars eru 1) Arna
Bjartmarsdóttir, f. 21.12. 1974, BA í
spænsku með sjávarútvegsfræði sem
hliðargrein og vinnur hjá Sam-
skipum, búsett í Hollandi; 2) Elma
Björk Bjartmarsdóttir, f. 12.12. 1978,
viðskipta- og markaðsfræðingur, bú-
sett í Reykjavík. Maki: Orri Péturs-
son sjómaður; 3) Berglind Bjart-
marsdóttir, f. 18.9. 1985, nemi í
innanhússarkitektúr, búsett í Óðins-
véum í Danmörku. Maki: Magnús
Ómarsson hljóðmaður. Barnabörn
Bjartmars eru orðin 8.
Systur Bjartmars: Sigurlaug
Ágústa Guðlaugsdóttir, f. 22.9. 1945,
d. 17.6. 2019, og Ingeborg Guðlaugs-
dóttir, f. 4.8. 1947. búsett í Reykjavík.
Foreldrar Bjartmars voru hjónin
Guðlaugur Ágústsson, f. 2.4. 1919, d.
27.7. 2004, vélstjóri, og Svanhild Jen-
sen Ágústsson, f. 22.6. 1926, d. 21.7.
2001, húsmóðir. Þau voru gift í 60 ár
og bjuggu á Fáskrúðsfirði, í Vest-
mannaeyjum, Keflavík og Reykjavík.
Bjartmar Anton
Guðlaugsson
Petrína Símonsen
húsmóðir á Sandi
Gunnar Jensen
sjómaður á Sandi í Færeyjum
Svanhild Jensen Ágústsson,
húsmóðir á Fáskrúðsfirði, í
Vestmannaeyjum, Keflavík og Reykjavík
Guðný Benediktsdóttir
húsfreyja í Gamla-Garði
Einar Pálsson
bóndi í Gamla-Garði í Suðursveit
Sigurlaug Stefanía Einarsdóttir
húsmóðir á Fáskrúðsfirði
Ágúst Pálsson
verkamaður á Fáskrúðsfirði
Guðlaug Magnúsdóttir
húsfreyja á Þiljuvöllum
Páll Þorvarðarson
bóndi á Þiljuvöllum á Berufjarðarströnd
Ætt Bjartmars Guðlaugssonar
Guðlaugur Ágústsson
vélstjóri á Fáskrúðsfirði,
í Vestmannaeyjum, Keflavík
og Reykjavík
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022
ÁR
1921-2021
Í Y
KKA
R ÞJÓNUSTU
10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
„VILTU HÆTTA AÐ FLAKKA Á MILLI
STÖÐVA EITT ANDARTAK OG GIFTAST
MÉR?“
„KAFFI FYRIR MIG OG STEIKARSAMLOKU
FYRIR HANN… BORGAÐ SITT Í HVORU
LAGI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að njóta stundanna
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
KETTIR ERU KONUNGAR
FRUMSKÓGARINS!
OG VEL SLEGINNA
BAKGARÐA
VILTU FARA Á EINHVERN
ÞÆGILEGRI STAÐ?
JÁ!
HÚN FÓR HEIM.
Ármann Þorgrímsson yrkir á
Boðnarmiði og kallar „Svart-
sýniskast …“:
Ævilínan illa teygð
ellimörk þið sjáið
að mér sækir eflaust feigð
eins og búast má við.
Eldast stöðugt allir menn
ætíð þannig gengur
dauður karlinn ekki enn
eitthvað hjari lengur.
Hallmundur Kristinsson yrkir og
kallar „Vor á þingi“:
Í góðviðrinu ilmur vorsins angar.
Alþingis er vandamálið skýrt:
Umræðurnar eru heldur langar
og innihaldið stundum fremur rýrt.
„Eyrnahreinsun“ segir Guð-
mundur Arnfinnsson:
Eldhúsdagsins argaþras
yndi hjá mér vekur,
þingskörunga mergjað mas
merg úr eyrum skekur.
Gunnar J. Straumland skrifar:
„Það var árið 1967 sem síðustu
eyjaskeggjar í Flatey á Skjálfanda
tóku sig upp og fluttu upp á „fasta-
landið“. Töluverður hluti þeirra
ílengdist í mínum gamla heimabæ,
Húsavík. Margir minna leikfélaga
úr æsku eru afkomendur síðustu
ábúendanna í eynni. Það er með að-
dáun og ánægju sem ég hef fylgst
úr fjarska með ræktarsemi og
dugnaði þeirra við að halda arfleifð
sinni lifandi með því að gera upp
gömlu húsin í Flatey og dvelja þar í
frístundum sínum.“
Flateyjarkvæði
Í dimmbláum flóa er dulítil ey,
dásamleg gerðist þar saga.
Upp risu kynslóðir, áttu þar fley
austan við Flateyjarskaga.
Þær samfélag byggðu er sagan nú á
með samtakamætti og hlýju
er synir og dætur nú segja okkur frá.
Þar sækja má yndi að nýju.
Því allt sem var liðið má efla á ný,
arfurinn hvílir í hjörtum
sem fengu í æsku frásögn af því
er finnst nú í minningum björtum.
Pétur Bjarnason skrifar: „Ný-
kjörin sveitarstjórn Norðurþings
stefnir að því að fjölga íbúum sveit-
arfélagsins um eitt hundrað. Það
þarf þá að aðlaga þá aðstæðum
nema stjórnin ætli sjálf að annast
fjölgunina“:
Nú hefur stjórnin Norðurþinga
nýja fundið tekjulind.
Í þessa hundrað Þingeyinga
þarf að líkum mikinn vind.
„Léttur“ eftir Bjarna frá Gröf:
Yndi færir ævin mér
æskan nærir sporin,
lífið hær og leikur sér
líkt og blær á vorin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Dulítil ey og Norðurþing